Rafíþróttir

ÍA tók Blika á enda­sprettinum

Snorri Már Vagnsson skrifar
Viruz og Hozider, leikmenn Breiðabliks og ÍA.
Viruz og Hozider, leikmenn Breiðabliks og ÍA. Ljósleiðaradeildin

Breiðablik og ÍA mættust á Overpass. Breiðablik hófu leikinn í vörn en töpuðu skammbyssulotunni í upphafi leiks. Í hófu leikinn töluvert betur og komust í stöðuna 1-5 eftir sex lotur.

Blikar minnkuðu muninn í 5-7 áður en Viruz, Vappi Breiðabliks skoraði ás og felldi alla leikmenn ÍA. Ás Viruzar virtist veita Breiðabliki byr í segl en þeir sigruðu allar lotur sem eftir lifðu seinni hálfleiks og tóku því forystuna.

Staðan í hálfleik: 8-7

Blikar héldu uppteknum hætti og sigruðu fyrstu lotur seinni hálfleiks. ÍA fundu loks sigurlotu að nýju í stöðunni 10-7. Blikar komust í 12-8 áður en ÍA fundu loks taktinn að nýju. Leikmenn ÍA sigruðu allar lotur sem eftir fylgdu og höfðu Blikar lítil sem engin svör. Sigurinn var því í höfn fyrir ÍA eftir sannfærandi endurkomu í seinni hálfleik.

Lokatölur: 12-16

ÍA slíta sig þar með frá Breiðabliki í áttunda sæti deildarinnar og eru nú með 6 stig en Blikar eru með 4.






×