Samstarf

Heima­vist fyrir Fjöl­brautar­skóla Suður­lands (FSU) á Sel­fossi - leigu­hús­næði

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæðifyrir heimavist fyrir Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi.

Miðað er við að húsnæðið verði tekið á skammtímaleigu til 4 ára, fullbúið til notkunar, með lausum búnaði. Leigutími er frá 15. ágúst til 15. maí ár hvert. Gerð er krafa um staðsetningu á Selfossi eða nágrenni.

Heildarhúsrýmisþörf er áætluð 350 - 600 fermetrar. Gert er ráð fyrir 15-20

herbergjum með snyrtingum ásamt sturtu eða aðgengi að sameiginlegum snyrtingum með sturtu og matsal/-félagsrými.

Húsrýmisþörf fyrir hvert herbergi er um 12-20fermetra.

Nánar um aðrar kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is mánudaginn 4. desember 2023.

Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærðar húsnæðis og skipulags þess út frá fyrirhugaðri nýtingu, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu og aðkomu.

Fyrirspurnir varðandi verkefnið Heimavist fyrir Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi, skulu sendar á netfangið [email protected].

Fyrirspurnarfrestur rennur út 7. desember2023 en svarfrestur er til og með 11. desember,2023.

Leigutilboð skal senda á [email protected], eigi síðar en kl. 13:00 miðviku-daginn 20.desember 2023.

Merkja skal tilboðin; nr. 602715 – Heimavist fyrir Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi – Leiguhúsnæði

Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×