Skoðun

Lyf og dá­leiðsla

Hannes Björnsson skrifar

Það eru válegar fréttir af lyfjaónæmi og ofnotkun ýmissa lyfja. Lyf geta gerbreytt hlutum til hins betra en þau geta þau einnig haft ýmsa vankanta og jafnvel valdið meiri vanda en þau leysa þegar litið er til framtíðar. Gott dæmi um það er ópíóðafaraldurinn sem hefur tekið mörg líf og eyðilagt enn fleiri. Því getur verið gott að horfa jafnframt til annarra leiða sem ekki hafa sömu vankanta og þá sem geta fylgt langvarandi lyfjanotkun.

Fyrir tveimur árum síðan tók ég að mér formennsku í félagi sem heitir Dáleiðslufélag Íslands. Dáleiðsla sem hluti af meðferð hefur sýnt sig geta bætt árangur meðferðar. Hún getur meðal annars oft komið í stað lyfja og / eða dregið úr óþægindum sem fylgja lyfjanotkun oft á tíðum, til dæmis er hægt að hafa mikil áhrif á sársauka með dáleiðslu.

Dáleiðslufélag Íslands er félag háskólagenginna heilbrigðisstarfsmanna sem byggir á arfleifð Jakobs Jónassonar geðlæknis sem bar þessi fræði inn í heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga. Sjálft félagið var stofnað 2001 og fyrsti formaður þess var Ingólfur Sveinsson geðlæknir. Félagið er aðili að Evrópusamtökum og alþjóðasamtökum háskólamenntaðs heilbrigðisstarfsfólks og ber ekki að rugla því saman við dáleiðslufélög leikmanna sem starfa utan við eftirlit landlæknisembættisins. Nánar má lesa um félagið á heimasíðu þess dfi.is.

Félagið átti hagsældarár en hefur hnignað undanfarið samhliða því að virkustu aðilar þess hafa farið á eftirlaun og endurnýjun verið hæg. Það hefur því verið nokkur brekka að koma félaginu á kortið á ný á meðal fagfólks. Það virðist gæta nokkurra fordóma í garð þessarar tækni sem í versta falli er meinlaus en virðist oft á tíðum geta breytt mjög miklu til hins betra án þess að hafa skaðlegar aukaverkanir fyrir einstaklinga og samfélög.

Ef til vill væri gott fyrir fagfólk í heilbrigðisvísindum að hafa ávallt í huga að manneskjan er ekki bara hylki utan um ýmis efnaskipti heldur eru ýmsir kraftar að verki í henni sem geta haft mikil áhrif á velgengni hennar eða volæði. Meira að segja hörðustu atferlis­fræðingar átta sig á því að er umhverfi í manneskjunni, jafnt sem utan hennar, og það er mikils virði að huga að því samhliða öðru. Þar henta aðferðir dáleiðslu einstaklega vel.

Höfundur er formaður Dáleiðslufélags Íslands.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×