Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Augað 17. maí 2024 11:25 Bill Barton er annar stofnenda gleraugnamerkisins Barton Perreira. Hann og teymi hans heimsóttu gleraugnaverslunina Augað í Kringlunni fyrr í vikunni þar sem var úrval af 2024 línunni var sýnt við góðar undirtektir. Síðasta þriðjudag heimsótti Bill Barton, annar stofnenda gleraugnamerkisins Barton Perreira, og teymi hans gleraugnaverslunina Augað í Kringlunni en þar var úrval af 2024 línunni sýnt við góðar undirtektir gesta. „
Það var mjög góð stemning hjá okkur á þriðjudaginn og fjöldi gesta mættu,“ segir Bill Barton. „Boðið var upp á kampavín og léttar veitingar og fólk var duglegt að spyrja út í nýju línuna okkar sem ég var mjög ánægður með.“ Bill er búinn að vera lengi í gleraugnabransanum en hann stofnaði Barton Perreira ásamt hönnuðinum Patty Perreira árið 2007. Áður var hann forstjóri gleraugnaframleiðandans Oliver Peoples, sem síðar var selt til Oakley. Á síðasta ári gerðust þau stórtíðindi að tískuvörurisinn LVMH, sem er með vörumerkin Louis Vuitton, Moet&Chandon, Dior, Hennessy, Marc Jabobs og fleiri keypti Barton Perreira, sem þykir einsdæmi í sögu LVMH. Áhersla lögð á sjálfbærni í framleiðsluferlinu Óvenju mikil vinna og natni er lögð í gleraugnaumgjarðir Barton Perreira eða allt að 100-120 klukkustundir. „Þessi langi framleiðslutími skýrist af því að við erum ekki í hefðbundinni fjöldaframleiðslu heldur framleiðum við hverja týpu í litlu magni. Auk þess leggjum við mjög mikla áherslu á sjálfbærni í framleiðsluferlinu. Efnið í umgjörðunum er sem dæmi unnið úr bómull og við og er fyrsta flokks enda framleitt í Japan þar sem öll gleraugun okkar eru framleidd í samvinnu við trausta aðila þar í landi. Þessar umgjarðir eru framleiddar til að endast en ég á vini sem hafa gengið með umgjarðir frá okkur í fimmtán ár. Það segir ýmislegt um útlit þeirra og gæði. Fólk á falleg jakkaföt og kjóla í mjög langan tíma, það sama ætti að gilda um fallegar og vandaðar gleraugnaumgjarðir.“ Hugað er að öllum smáatriðum í hönnun umgjarðanna, áferðin er mjúk og gleraugun sitja mjög vel í andliti. No Time To Die línan frá Barton Perreira kom í takmörkuðu upplagi og var hönnuð fyrir nýjustu James Bond myndina sem kom út 2021. Gjöful samstarfsverkefni Barton Perreira fer árlega í samstarf við ýmsa listamenn og hönnuði í heimabyggð. „Við eigum í mjög góðu og persónulegu samstarfi við þá sem hafa gefið af sér ýmsa skemmtilega hluti, til dæmis gleraugnaklútana sem innihalda myndir af listaverkum frá ólíkum hönnuðum og listafólki. Þess má geta að allir gleraugnaklútar frá okkur eru unnir úr endurunnum plastflöskum. Þessi samvinna okkar hefur gengið vel hingað til og ég sé hana bara vaxa áfram á næstu árum sem mun gefa okkur fleiri umhverfisvænar og fallegar gleraugnavörur.“ Gleraugnaklútarnir frá Barton Perreira eru unnir úr endurunnum plastflöskum og hannaðir af ólíkum listamönnum og hönnuðum. Annað áhugavert verkefni sem Barton Perreira tekur þátt í er The Women Colation en það snýst um samstarf við konur sem hafa getið sér góðs orðspors í listum og hönnun og hafa vakið athygli fyrir verkefni sín. „Þetta verkefni stendur mér mjög nærri enda á ég frábæra móður og systur með glæsilegan starfsferil. Patty, meðstofnandi minn, er líka fædd inn í stóra fjölskyldu og þegar við stofnuðum fyrirtækið fannst okkur einfaldlega rétti tíminn til að kynna betur verk ýmissa kvenna.“ The Women Colation hefur m.a. gefið af sér gleraugnalínur í samstarfi við Sarah Hoover, Kelley Baker og Keerin Rose. „Í þessu samstarfi vekjum við athygli á flottum kvenfyrirmyndum, leggjum áherslu á jafnrétti kynjanna og reynum ekki síst að veita öðrum konum innblástur. Ég er mjög stoltur af þessu samstarfi en svona hefur aldrei verið gert áður í þessu geira.“ „Gerum eitthvað saman, ég og þú“ Bill og Patty störfuðu saman hjá Oliver Peoples þar til fyrirtækið var selt. Patty starfaði þó áfram þar í einhvern tíma eða þar til hún hringdi í Bill og sagðist ekki vilja starfa þar áfram. „Gerum eitthvað saman, ég og þú,“ sagði hún við Bill og stuttu síðar áttu þau fund á írskum pöbb. „Við byrjuðum strax að kasta á milli okkar hugmyndum og urðum fljótt mjög náin. Samband okkar hefur verið frábært frá upphafi og við erum svo sannarlega stolt af gleraugnalínum sem við höfum sett á markað síðustu ár. Ein þeirra er til dæmis „No Time To Die“ línan sem kom í takmörkuðu upplagi og var hönnuð fyrir nýjustu James Bond myndina sem kom út 2021.“ Aðspurður hvaða nýju vörur eru væntanlegar á næstu 1-2 árum segir Bill að Barton Perreira stundi frekar að þróa þær vörur sem eru til staðar, frekar en að vera stöðugt að koma út með nýjungar. „Við bætum við 5-6 litum á hverju tímabili sem dæmi og reynum almennt að þróa þær vörur sem við eigum til nú þegar í stað þess að vera stöðugt að setja á markað eitthvað glænýtt.“ Slíkur hugsunarháttur rímar vel við það fólk sem notar gleraugu frá Barton Perreira segir Bill. „Meðal viðskiptavina okkar eru fjölskyldur sem hafa keypt umgjarðir hjá okkur frá því við stofnuðum fyrirtækið. Viðskiptavinir okkar vilja vörur sem eru sérstakar og lifa í langan tíma. Ég segi alltaf, að það er vel hægt að kaupa ódýrari gleraugu en hjá okkur og það er í góðu lagi fyrir sumt fólk. En ef þú vilt gæði sem lifa í langan tíma, þá mæli ég með umgjörðum frá okkur.“
Tíska og hönnun Verslun Mest lesið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Lífið Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Lífið Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Bíó og sjónvarp Eins og að setja bensín á díselbíl Heilsa Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Lífið Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga rifja upp gamla takta í Draumahöllinni Bíó og sjónvarp Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Khalid kemur út úr skápnum Lífið Fleiri fréttir Smáralindin fylltist af bókþyrstum gestum Bókaumfjöllun: Einlæg og íhugul skáldævisaga Höfundar lesa upp úr bókum sínum í beinni í kvöld Bókadómur: Þörf bók um missi Frábært gjafakort sem gleymist ekki ofan í skúffu Skautadiskó til styrktar góðu málefni Vestfjarðaglæpasaga sem kemur á óvart Bókakonfekt Forlagsins: Níu höfundar lesa upp í kvöld Ritdómur: Naskar mannlýsingar í misjöfnu verki Troðfull Smáralind af krökkum að fylgjast með Birgittu Bókaumfjöllun: Að hverfa í tómið Bókaumfjöllun: Kjarkmiklar og áræðnar konur Rauðvínsgljáður sviðakjammi og mysuglassúr á kleinu Höfundar lesa upp í beinni Upplifun og dýrmætar minningar í jólagjöf Bókaumfjöllun: Netflix áhrif í ljúfri jólaástarsögu Bókaumfjöllun: „Allt sem rafmagnið huldi“ Magnesíum kemur í mörgum mismunandi formum Jólaboð sem gleður og yljar á aðventunni Pantaðu sól og gleði með Úrval Útsýn Ritdómur: Gáskafull þeysireið Friðsemdar Ostaboxið frá EasyCheese hefur slegið í gegn Nýr og glæsilegur uppskriftavefur frá Nóa Síríus Ritdómur: Glæpasaga hlaðin leyndarmálum og rómans Ritdómur: Ekkert eins ljúffengt og minningin Þriggja daga veisla með Skálmöld í Hörpu Hrá upplifun í einstakri náttúruperlu Hlúa að heilsunni í infrarauðum hita í skammdeginu Óléttan breytir viðhorfum til innihaldsefna Allt í búðinni í boði - gjafabréf frá Maí stórsniðug jólagjöf Sjá meira