Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni RE/MAX 6. júní 2024 12:25 Fjölbýlishúsið við Hestamýri 1 á Álftanesi inniheldur 28 íbúðir. Íbúðirnar eru hannaðar að innan af Sæju innanhúshönnuði og stæði í bílageymslu fylgir þeim öllum. Glæsilegar íbúðir með stórkostlegu útsýni. Nú eru komnar í söluferli 28 glæsilegar íbúðir í vönduðu og vel skipulögðu lyftu fjölbýlishúsi á Álftanesi við Hestamýri 1. Íbúðirnar eru hannaðar að innan af Sæju innanhúshönnuði og stæði í bílageymslu fylgir þeim öllum. Stórar geymslur fylgja auk þess öllum íbúðum.
Nýja húsið stendur við Hestamýri 1 á Álftanesi en Hestamýri 2 og 3 verða afhentar sumarið 2025 og 2026. Allar íbúðir innihalda vandaðar innréttingar og stein á borðum. Glæsilegt útsýni, stórar stofur, gólfhiti og aukin lofthæð einkenna íbúðirnar sem eru allar með gólfsíðum gluggum svo hægt sé að njóta fallegs útsýni til sjávar og fjalla og víðar. „Við ákváðum frá upphafi að ganga lengra en gengur og gerist í hönnun íbúðanna,“ segir Ásgeir J. Guðmundsson, húsasmíðarmeistari og byggingarstjóri hjá Flotgólfi ehf., sem er aðalverktaki framkvæmdanna. Ásgeir J. Guðmundsson, húsasmíðarmeistari og byggingarstjóri hjá Flotgólfi ehf., er aðalverktaki framkvæmdanna. „Miðrýmið fær t.d. óvenju gott pláss með stofu og borðstofu en það hefur vantað hingað til í ný fjölbýli. Hér er því gott pláss fyrir stórar fjölskyldur.“ Hér getur þú skoðað sýningaríbúð, íbúð 203 í Hestamýri 1, í 3D. Þvottahús má einnig finna í öllum íbúðum sem breyting frá þróun síðustu tveggja áratuga. „Við höfum séð þá þróun að þvottavélar færast inn í baðherbergi en í Hestamýri er sér þvottahús í öllum íbúðum auk þess sem allar íbúðir utan tveggja eru með tvö baðherbergi sem er mikill lúxus.“ Stór bílageymsla fylgir fjölbýlinu og allar íbúðir eru með stæði eins og fyrr segir. „Auk þess hafa sextán íbúðir bílskúr sem er á bilinu 22-25 fermetrar og inn af sumum bílskúrum er sér geymsla en hjá öðrum er geymsla staðsett á geymslugangi. Fjórar lyftur eru í húsinu sem þýðir að sjö íbúðir eru með hverja lyftu fyrir sig sem er alls ekki mikið álag.“ Hverfið er hálfgerð sveit í borg að sögn Ásgeirs. „Afar fallegt útsýni er úr öllum íbúðum yfir Stór-Reykjavíkursvæðið þar sem m.a. má sjá Hallgrímskirkju, Perluna og Esjuna. Það verður ekki byggt þannig að það skyggi á þetta útsýni í framtíðinni. Svo er stutt í sjóinn, næsta golfvöll og þetta er frábært umhverfi fyrir börn til að alast upp í.“ Öllum íbúðum er skilað fullbúnum með innréttingum, tækjum og gólfefnum. Innréttingar koma frá Parka og heimilistæki eru frá Ormsson. Flísar í íbúðum eru hágæða ítalskar flísar frá Porcalenosa. Fallegt 12 mm harðparket frá Parka er á öllum íbúðum. Gólfhiti er í öllum íbúðarrýmum. Allar íbúðir eru með loftskiptikerfi sem tekur loft inn og út úr hverju rými. Þetta kerfi nýtir líka afgangsvarma frá útloftun til þess að hita kalt ferskt loft sem tekið er inn og með því getur orka sparast. Þriggja metra lofthæð og Free-at-home kerfi er í íbúðum þriðju hæðar sem er efsta hæð hússins. Þaksvalir þeirra íbúða eru með heitum potti. Öllum íbúðum á þriðju hæð fylgir sér bílskúr í bílageymslu. Sjá má grunnmyndir, skilalýsingu og ásett verð inn á Hestamýri.is. Hægt er að bóka skoðun hjá söluaðilunum Guðlaugi J. Guðlaugssyni, í síma 661-6056 eða með tölvupósti á [email protected], og Gunnari Sverri, í síma 862-2001 og með tölvupósti á [email protected], löggiltum fasteignasölum hjá RE/MAX fasteignasölu.
Hús og heimili Fasteignamarkaður Mest lesið Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Atvinnulíf Búið að draga tennurnar úr jagúarnum Viðskipti innlent Vona að Musk takmarki tolla Trumps Viðskipti erlent Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Atvinnulíf Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Viðskipti innlent Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Viðskipti innlent First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Viðskipti innlent Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Reykskynjara vantar of víða – Eldvarnarátak stendur nú yfir Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar? Greiðsluáskorun Eini sjö sæta rafbíllinn frá Peugot Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Hvernig verður steypa græn? Land Cruiser 250: Frumsýning á laugardag Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf Krafturinn keyrir alla skynsemi á kaf - Polestar 4 reynsluakstur Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði Slepptu biðröðinni og bókaðu dekkjaskiptin á nesdekk.is Hvað gefa vinnustaðir í jólagjöf? Fyrirtækjagjafir á Vísi Met mæting í Klinkuboð Ert þú á leið í framkvæmdir og veist ekki hvar þú átt að byrja? Októberfest í Bílheimum á laugardaginn Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Sjá meira