Lífið samstarf

Mos­fells­dalur tók vel á móti Bylgju­lestinni

Bylgjulestin
Fjöldi gesta mættu í Bylgjubílinn sem staðsettur var í Húsdýragarðinum á Hraðastöðum í Mosfellsdal síðasta laugardag. Hér er tónlistarkonan Fríða Hansen að taka lagið.  Myndir/Gotti.
Fjöldi gesta mættu í Bylgjubílinn sem staðsettur var í Húsdýragarðinum á Hraðastöðum í Mosfellsdal síðasta laugardag. Hér er tónlistarkonan Fríða Hansen að taka lagið.  Myndir/Gotti.

Bylgjulestin kom sér vel fyrir í Húsdýragarðinum á Hraðastöðum í Mosfellsdal síðasta laugardag. Margt var um manninn, ekki síst börnum sem fannst afar skemmtilegt að skoða öll fallegu dýrin.

„Í Húsdýragarðinum á Hraðastöðum eru öll möguleg íslensk húsdýr sem eru mjög hænd mannfólkinu og var mjög notaleg stemming á svæðinu,“ sagði Bragi Guðmundsson, lestarstjóri Bylgjulestarinnar. Með honum í för á laugardaginn var Agnes Ýr Arnarsdóttir.

„Þær Linda og Sara kíktu til okkar í Bylgjubílinn og sögðu okkur frá tilurð garðsins fallega sem átti í upphafi bara að vera vinna í eitt sumar. Leikhópurinn Vinir setti upp fjörlega leiksýningu í garðinum og boðið var upp á andlitsmálningu fyrir krakkana.“

Boðið var upp á dynjandi músík í Bylgjubílnum. „Tónlistarkonan Fríða Hansen kom til okkar og taldi í sumarsmellinn sinn „Það var komið sumar“ sem var svakalega viðeigandi vegna tíðarfarsins vikuna á undan. Þau Bjartmar Guðlaugsson og María Helena tóku líka tvö lög við góðar undirtektir.“

Að lokum var slegið á þráðinn til London þar sem Egill Ploder og Kristín Ruth voru í sigurvímu eftir leikinn á móti Englendingum. „Þannig að þetta var góður dagur í Mosfellsdalnum.“

Um næstu helgi verður Bylgjulestin á 80 ára afmæli lýðveldisins á Þingvöllum.

Næstu stopp Bylgjulestarinnar:

  • 15. júní – Þingvellir
  • 22. júní - Eyrarbakki
  • 29. júní – Borgarnes
  • 6. júlí – Akureyri
  • 13. júlí – Selfoss
  • 20. júlí – Hljómskálagarðurinn í Reykjavík
  • 27. júlí - Hafnarfjörður





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.