Hrefna og Unnur til Novum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 11. júní 2024 10:34 Hrefna Þórsdóttir og Unnur Edda Sveinsdóttir hafa gengið til liðs við Novum lögfræðiþjónustu. Hrefna Þórsdóttir og Unnur Edda Sveinsdóttir hafa gengið til liðs við Novum lögfræðiþjónustu. Alls starfa nú sjö lögmenn undir merkjum Novum. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Hrefna er lögmaður sem lauk LL.M. gráðu í Evrópurétti frá Stokkhólmsháskóla árið 2013 og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2018. Hrefna sérhæfir sig í verktakarétti en einnig í innviðasamningum sveitarfélaga, kaup og sölu byggingarréttar og lóðarréttindum, þar sem hún hefur tæplega tíu ára reynslu. Hún starfaði síðast í lögfræðiteymi skrifstofu borgarstjóra og borgarritara og þar áður á skrifstofu eigna og atvinnuþróunar hjá Reykjavíkurborg. Unnur Edda hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2015. Hún lauk LL.M. gráðu í Evrópurétti frá Stokkhólmsháskóla árið 2010 og í Alþjóðarétti frá Háskólanum í Vínarborg árið 2017. Unnur starfaði síðast sem yfirlögfræðingur hjá fjártæknifyrirtækinu Z2 ehf., sem sérhæfir sig í þróun hugbúnaðar fyrir fjárfestingar í rafmyntum og fjárfestingaráðgjöf. Unnur hefur fjölbreytta reynslu af störfum úr einkageiranum og fyrir hið opinbera, meðal annars Fjármálaeftirlitið og Héraðssaksóknara. Novum lögfræðiþjónusta er ört vaxandi lögfræðistofa sem hóf starfsemi sína árið 2019. Stofan sinnir alhliða lögfræðiþjónustu við einstaklinga og fyrirtæki en sérhæfir sig þó í skaðabóta-, vátrygginga-, vinnu- og fasteignarétti. „Það er einstaklega ánægjulegt að fá Hrefnu og Unni til samstarfs við stofuna á þessum tímapunkti þar sem þekking þeirra og reynsla mun nýtast vel í þeirri þjónustu sem Novum veitir viðskiptavinum sínum,“ segir Ólafur Lúther Einarsson lögmaður og framkvæmdastjóri Novum í tilkynningunni.
Vistaskipti Lögmennska Mest lesið Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Atvinnulíf Búið að draga tennurnar úr jagúarnum Viðskipti innlent Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Atvinnulíf Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Viðskipti innlent Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Viðskipti innlent First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Viðskipti innlent Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Hækka ekki verðtryggðu vextina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Búið að draga tennurnar úr jagúarnum First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Hækka ekki verðtryggðu vextina „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Mikilvægt að verja þær gjaldeyristekjur sem ferðaþjónustan aflar Kerecis fólk fjárfestir í flugi Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Opna verslanir í Kringlunni á ný Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Kristján ráðinn til Advania Bein útsending: Raforkuöryggi, fyrir hverja? „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Stýrivextir halda áfram að lækka Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri Samtökin '78 selja slotið Allir spá lægri vöxtum Sjá meira