Skoðun

Líf og dauði leikur á hnífs­egg

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar

Frumleg og örlítið furðuleg hugmynd hlaut fyrstu verðlaun í Nýsköpunarkeppni Vestfjarða árið 2009 – að þróa og framleiða lækningavörur úr fiskroði. Verðlaunin voru 3 milljónir króna og 40 ráðgjafatímar hjá Atvinnuþróunarfélagið Vestfjarða. Það er óhætt að segja að hugmyndinni hafi vaxið fiskur um hrygg síðan þá, því upphafsmaðurinn Guðmundur Fertram Sigurjónsson hefur byggt um eitt öflugasta fyrirtæki landsins, stuðlað að lækningu tugþúsunda manna sem margir höfðu misst vonina, og skapað gríðarleg verðmæti fyrir íslenska þjóðarbúið.

Hróður Kerecis hefur borist víða og nýjasta rósin í hnappagat félagsins er tilnefning til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna sem verða afhent á Möltu á þriðjudaginn kemur. Almenningur getur tekið þátt í kjörinu með þátttöku í netkosningu og ég hvet alla Íslendinga til að leggja sitt af mörkum á https://bit.ly/epoaward.

Verðlaunum af þessari stærðargráðu fylgir mikill sýnileiki, sem stuðlar að hraðari dreifingu á lækningarvörum frá Kerecis um heiminn og að fleiri sjúklingar fái notið þeirra. Það leiðir til aukinna umsvifa hér heima, fjölgunar starfa og meiri verðmætasköpunar fyrir land og þjóð.

Um svipað leyti og Kerecis vann Nýsköpunarkeppni Vestfjarða lagði Tækniþróunarsjóður félaginu til stuðning upp á eina milljón króna. Samkvæmt stofnandanum Guðmundi Fertram skiptu þessir fjármunir sköpum og án þeirra er óvíst að félagið hefði komist á legg. Sagan af Kerecis sýnir glöggt hvernig líf og dauði leikur á hnífsegg. Ef stuðningur í formi smáaura hefði ekki komið til, hefði samfélagið orðið af tugmilljarða tekjum, nýjum störfum og heimurinn misst af lækningavöru sem bætir líf og líðan fólks.

Nýsköpunarstuðningur við athafnafólk með góðar hugmyndir er ekki sóun á opinberu fé heldur gerir það frumkvöðlum mögulegt að taka áhættur með hugmyndirnar sínar og borga samfélaginu margfalt tilbaka. Hagkerfið okkar þarf á því að halda að hér séu fleiri stoðir, aukin útflutningsverðmæti munu tryggja okkur fleiri tækifæri og aukin lífsgæði. Viðurkenningar og sýnileiki íslenskra fyrirtækja á alþjóðlegum vettvangi skiptir okkur því öll miklu máli.

Þess vegna tek ég þátt í netkosningunni og kýs rétt á https://bit.ly/epoaward.

Höfundur er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×