Lífið

Hel­vítis kokkurinn: Grilluð fiskispjót með bok choi

Boði Logason skrifar
Ívar Örn matreiðir gómsæta grillrétti fyrir lesendur Vísis á fimmtudögum í sumar.
Ívar Örn matreiðir gómsæta grillrétti fyrir lesendur Vísis á fimmtudögum í sumar. Vísir

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á fimmtudögum á Stöð 2, Vísi og á Stöð 2+ í sumar.

Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat. Í þetta skiptið eru það grilluð langa með grænmeti og brauði . Þáttinn má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.

Klippa: Helvítis kokkurinn - Eldgrilluð fiskispjót með bok choi

Fiskur:

  • 600 gr. langa eða keila
  • 2 tsk. rautt karrý
  • 1 msk. sítrónupipar
  • Börkur af einni sítrónu
  • 5 gr. Mynta
  • 10 gr. kóríander
  • 5 gr. basil
  • 100 ml. Isio 4 olía

Brauð:

  • 6 sneiðar súrdeigsbrauð
  • 100 gr. Isio 4 olía
  • 4 rif hvítlaukur

Mayo:

  • 1 msk. Helvítis eldpiparsultan - Habanero og appelsína
  • 2 msk. Hellmans mayones

Grænmeti:

  • 2 pakkar bok choi
  • 2 msk. olía
  • 1 msk. Kikkoman Teriayaki
  • 1 msk. Kikkoman Soya
  • 1 msk. sesamfræ
  • 2 cm. saxað engifer
  • 1 box konfekt tómatar

Fiskur og marinering

Hellið olíu í skál, saxið kryddjurtir útí og blandið saman við sítrónupipar, sítrónubörk og karrý. Skerið fisk í gúllasbita, setjið í skál og marinerið í 20 mín við stofuhita. Grillið í um 4-5 mín á annari hliðinni og kryddið með salti og pipar. Leyfið að standa á meðan þið grillið brauð.

Grillið brauðsneiðarnar á báðum hliðum og penslið með hvítlaukolíu á meðan, munið að salta einnig.

Bok Choi

Blandið saman í skál olíu, soya, teriyaki, engifer og sesamfræjum. Veltið bok choi uppúr og grillið í örfáar mínútur á heitu grilli. Leggið til hliðar.

Eldpiparmayo

Blandið saman Helvítis eldpiparsultunni Habanero og appelsína og Hellmans mayones saman í skál.

Hér fyrir neðan má sjá alla þættina af Helvítis kokkinum:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.