Erlent

Vina­leg beiðni sögð kveikjan að á­rásinni á Krít

Jón Þór Stefánsson skrifar
Árásin átti sér stað á Heraklíon á Krít í Grikklandi á þriðjudag.
Árásin átti sér stað á Heraklíon á Krít í Grikklandi á þriðjudag. Getty

Lögreglan í Grikklandi hefur borið kennsl á tvo af fjórum mönnum sem réðust á fjölskyldu íslenskrar konu á bar á aðalgötu Heraklíon á Krít í Grikklandi á þriðjudag.

Samkvæmt CNN í Grikklandi eru þessir tveir árásarmenn á fertugsaldri. Minna er vitað um hina tvo. Í grískum fjölmiðlum er þeim lýst sem „blóðheitum“.

Íslenska konan er 41 árs gömul, maðurinn sem er af kanadísk-grískum uppruna er enn á sjúkrahúsi og er 49 ára gamall. Tveir synir þeirra eru 21 og 18 ára.



Málið virðist hafa vakið athygli í Grikklandi, en Olgas Kefalogiannis, ráðherra ferðamála í Grikklandi, er sagður hafa spurt út sjúkrahúsið út í líðan mannsins.

Samkvæmt gríska miðlinum Cretelive er maðurinn sagður með áverka á höfði, einkum á kjálka. Talið er að hann muni fara í aðgerð á kjálka á morgun.

Fjölskyldan, sem elski Krít og heimsæki eyjuna að minnsta kosti tvisvar á ári, er sögð í áfalli vegna árásarinnar.

Cretelive hefur eftir fjölskyldunni að þau hafi verið saman á umræddum bar á aðalgötu Heraklíon. Fjölskyldufaðirinn og einn sonurinn eru sagðir hafa verið eftir á barnum til að borga reikninginn og maður úr stærri hópi hafi óvart brennt hann með sígarettu.

Faðirinn hafi brýnt vinalega fyrir honum að það væri ekki í lagi. En þá hafi árásin hafist. Árásarmennirnir hafi ráðist á föðurinn og soninn, síðan móðurina og einnig fjórtán ára stúlku sem reyndi grípa inn í og stöðva árásina.

Skelfing braut um sig og lögreglan var kölluð til en árásarmönnunum tókst að hlaupa undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×