Lífið

Full­kominn for­réttur sem þið verðið að prófa

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Berglind heldur úti vefsíðunni Gotterí og gersemar.
Berglind heldur úti vefsíðunni Gotterí og gersemar.

Matgæðingurinn Berglind Hreiðarsdóttir, hjá Gotterí og gersemar, útbjó nýverið ljúffengri uppskrift af grillosti með pestói og klettasalati. Rétturinn er tilvalinn sem léttur forréttur eða sem meðlæti með grillmatnum.

Berglind deildi uppskriftinni á vefsíðu sinni þar sem hún skrifaði meðal annars:

„Í fyrrasumar í skemmtiferð okkar vinahópsins grillaði Sandra vinkona þennan grillost með pestó við góðar undirtektir hjá öllum í hópnum. Ég ákvað því að slá til og prófa þetta loksins sjálf, það er búið að taka mig tæpt ár að prófa sem er auðvitað alveg galið miðað við hversu einfaldur þessi réttur er. Þetta er fullkominn forréttur, snarlréttur eða sem meðlæti með öðrum mat svo nú verðið þið að prófa.“

Grillostur með pestói og klettasalati

Hráefni

2 x grillostur 

Einn poki af klettasalati

Grænt ferskt pestó

Ein lúka furuhnetur 

Salt og pipar eftir smekk

Aðferð

Skerið ostinn niður í lengjur og grillið við háan hita í nokkrar mínútur.

Snúið ostinum reglulega á grillinu þar til grillrákir byrja að myndast og osturinn linast upp.

Setjið síðan vel af pestó yfir ostinn ásamt furuhnetum og saltið og piprið eftir smekk.

Njótið á meðan osturinn er heitur.


Tengdar fréttir

Ómótstæðilegt risarækju hrásalat að hætti Lindu Ben

Matarbloggarinn Linda Benediktsdóttir deildi litríkri og bragðgóðri uppskrift að risarækju hrásalati með mexíkósku ívafi með fylgjendum sínum á Instagram á dögunum. Það tekur aðeins fimmtán mínútur að framkvæma uppskriftina sem er stútfull af hollustu.

Pönnukökur með karamelliseruðum bönunum

Heilsukokkurinn og jógakennarinn Jana deildi girnilegri uppskrift að prótein pönnukökum með karamelliseruðum bönunum á Instagram-síðu sinni á dögunum. Þegar veðrið leikur okkur grátt er fátt huggulegra en að eiga notalega stund og töfra fram ljúffengar pönnukökur.

Nautasteik með bernaise-sósu og fersku pestói

Linda Benediktsdóttir matgæðingur útbjó öðruvísi og girnilega útfærslu af grillaðri nautasteik, með bernaise sósu og fersku grænu pestói. Hún segir samsetninguna afar ljúffenga. 

Sumarlegur fiskréttur á pönnu

Helga Margrét Gunnarsdóttir, betur þekkt sem Helga Magga, næringarþjálfari og matarbloggari, útbjó ljúffengan og sumarlegan fiskrétt á dögunum. Rétturinn er einfaldur og kjörinn í matarboðið á björtu sumarkvöldi.

Ljúffengur sumarréttur með burrata osti

Berglind Hreiðarsdóttir, hjá Gotterí og gersemar, útbjó nýverið sumarlega útfærslu af burrata osti með hindberjum á pestóbeði. Rétturinn er fullkominn sem meðlæti í grillveisluna eða léttur forréttur á fallegu sumarkvöldi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.