Skoðun

Krossinn er fal­legur

Krossinn er djúpstætt tákn kristinnar trúar og menningar. Á sama tíma og hann er tákn um harmdauða og upprisu Jesú Krists er hann sigurtákn kærleikans yfir illskunni - lífsins yfir dauðanum - ljóssins yfir myrkrinu.

Í kristinni trú táknar krossinn hina miklu fórn Jesú Krists sem dó á krossi til að frelsa mannkynið frá syndum. Hann er tákn píslargöngunnar en einnig upprisunnar og sigursins yfir dauðanum, sem er grunnur að von og trú kristinna manna um eilíft líf.

Krossinn er lifandi tákn fyrir þá skilyrðislausu ást, náð og miskunn, sem Guð sýndi mannkyni með því að senda son sinn, mannsoninn, í heiminn til að raungera skilning mannsins í ímynd Guðs.

Krossinn gegnir lykilhlutverki í helgisiðum kirkjunnar. Hann er blessunartákn fyrir samfélög, heimili og önnur mannvirki, farartæki á legi, láði og lofti. Þannig hefur táknrænt gildi krossins, í gegnum aldirnar, veitt vernd Guðs gegn hættum og ógnum.

Að „bera kross sinn“ merkir í kristinni hefð að taka á sig þjáningar og erfiðleika í þjónustu við Guð og náungann. Þessi fórnfýsi er lykilatriði í kristnu lífi, þar sem krossinn minnir á að fylgjendur Krists eru kallaðir til að taka þátt í hinni andlegu baráttu og auðsýna trúfesti, jafnvel á kostnað eigin hagsmuna.

“Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.”

Eftir að kristni varð opinber trú Rómaveldis á fjórðu öld var krossinn innleiddur sem tákn Guðs innan kristinna ríkja. Öll ríki Norðurlandanna bera kross í þjóðfánum sínum til að undirstrika þann kristilega jöfnuð og velferð sem þjóðríkin hvíla á.

Krossinn er uppspretta sköpunar í listum, bókmenntum og mannvirkjagerð í gegnum aldirnar. Hann stendur sem tákn fyrir andlega vegferð, þrautseigju kærleika og von, og hefur verið miðlægt tákn í kirkjum og helgistöðum, bæði sem áminning um fórn Krists og vernd hans.

Krossinn er táknræn grunnstoð kristinnar trúar og áhrifa afl í mótun menningu og samfélaga gegnum aldirnar og stendur enn í dag sem öflugt tákn trúar, vonar og kærleika.

Um krossinn er hægt að rita heilu hillumetrana enda frægasta tákn veraldar en læt þetta nægja að sinni.

Guðs blessun og góðar stundir.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×