Tíska og hönnun

Kátir tískukarlar hjá Kölska

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Tómas Sjöberg og Hjörleifur Davíðsson eigendur Kölska héltu tryllt teiti ásamt Daníel Ágúst og Doctor Victori.
Tómas Sjöberg og Hjörleifur Davíðsson eigendur Kölska héltu tryllt teiti ásamt Daníel Ágúst og Doctor Victori. Mummi Lú

Stórglæsilegir gæjar komu saman föstudaginn þréttanda september þegar Kölski hélt heljarinnar veislu í tilefni af því að liðin eru sex ár frá stofnun merkisins.

Tómas Sjöberg og Hjörleifur Davíðsson eru eigendur Kölska, herrafataverslunar sem sérhæfir sig í sérsaumuðum jakkafötum. Síðustu misseri hafa þeir sömuleiðis bætt við sig hágæða flíkum frá þekktum vörumerkjum en verslunin er staðsett í Síðumúla 31.

Þá hafa þeir hannað alls konar jakkaföt og fatnað úr ýmsum efnum fyrir fjöldann allan af smekkmönnum. Daníel Ágúst hefur til að mynda oftar en ekki látið sjá sig í jakkafötum sem hann hannar með Kölska strákunum og hann lét sig ekki vanta í afmælið og tók nokkur lög af sinni alkunnu snilld.

Hér má sjá vel valdar myndir frá teitinu:

Ásgeir Kolbeins og Daníel Ágúst flottir.Mummi Lú
Daníel Ágúst kom öllum í gírinn.Mummi Lú
Hera Gísladóttir og Elínborg.Mummi Lú
Björn Ingi og Birgir Steinn.Mummi Lú
Kristófer Beck og Viktor skáluðu fyrir Kölska.Mummi Lú
Daníel Ágúst rokkaði tryllt jakkaföt frá Kölska.Mummi Lú
Mikið stuð!Mummi Lú
Ívar Österby í dökkgrænu.Mummi Lú
Tómas Sjöberg, Daníel Ágúst, Hjörleifur og Doctor Victor.Mummi Lú
Pétur Óskar.Mummi Lú
Daníel Ágúst steig trylltan dans.Mummi Lú
Valgeir SteinnMummi Lú
Eigendurnir Tómas og Hjörleifur.Mummi Lú
Ísak, Ívar, Davíð og Styrmir.Mummi Lú
Strákar í stuði.Mummi Lú
Tómas, Styrmir Jarl og Hjörleifur.Mummi Lú
Smári brosti breitt.Mummi Lú
Doctor Victor þeytti skífum.Mummi Lú





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.