Lífið samstarf

Ritdómur: Gáskafull þeysi­reið Friðsemdar

Lestrarklefinn og Rebekka Sif Stefánsdóttir
Brynja Hjálmsdóttir hefur sent frá sér sína fyrstu skáldsögu, Friðsemd og er bókin til umfjöllunar í Lestrarklefanum,
Brynja Hjálmsdóttir hefur sent frá sér sína fyrstu skáldsögu, Friðsemd og er bókin til umfjöllunar í Lestrarklefanum,

Friðsemd, fyrsta skáldsaga Brynju Hjálmsdóttur er til umfjöllunar á menningarvefnum Lestrarklefinn en þar er skrifað um hverskonar bækur og menningartengt efni. Hér fjallar Rebekka Sif Stefánsdóttir um bók Brynju.

Fyrsta skáldsaga Brynju Hjálmsdóttur er nú komin út og ber heitið Friðsemd. Brynja er þekkt fyrir ljóðabækurnar Kona lítur við og Okfruman, sem báðar fengu góðar undirtektir. Því hélt undirrituð að hér væri um að ræða ljóðræna og upphafna skáldsögu en innihaldið kom aldeilis á óvart.

Rebekka Sif Stefánsdóttir, ritstjóri Lestrarklefans fjallar um bók Brynju.

Friðsemd fjallar um samnefnda konu, hún er einfari og eyðir tíma sínum að lesa yfir og ritstýra glæpasögum um hina kynþokkafullu Advokat Larsen. Höfundur þessa vinsælu bóka er besta vinkona Friðsemdar, Fatima Bergkjær, sem er allt sem Friðsemd er ekki. Fatima er geislandi, hæfileikarík ævintýrakona sem dregur fólk að sér. 

Í upphafi bókar fellur Fatima fyrir björg sem veltur af stað furðulegri og gáskafullri atburðarrás þar sem hin rólega og hógværa Friðsemd verður að djörfum og hugrökkum spæjara.

Jörðin að drukkna í sorpi

Skáldsagan er framtíðarsaga, hún gerist á Íslandi sem við myndum ekki kannast við. Stór partur Suðurlandsins hefur sokkið undir sjó og fólk flúið upp í fjöllin. Þetta kalla Íslendingar nú Glataða landið. Meginpartur bókarinnar á sér stað í endurbyggðri Hveragerði þar sem stórfyrirtækið SELÍS starfar undir tryggri stjórn frumkvöðulsins Eldbergs Salmans Atlasonar. Umhverfið er því frekar ævintýralegt og í ætt við vísindaskáldskap þó að söguþráðurinn fléttist saman eins og gamalkunnur reifari.

„Ljóst var og hafði verið ljóst um langt skeið, að veröldin væri að farast. Jörðin var að drukkna í sorpi og óæskilegum lofttegundum, algjörlega að kafna undan frekjunni í mönnunum, og vegna hækkunar sjávar var land, Ísland þar með talið, óðum að hverfa í hafið.“ (úr 4. kafla)

Hægt er að lesa umfjöllunina í heild sinni hér. Fleiri ritdóma er að finna inni á lestrarklefinn.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.