Innlent

Mikill eldur í iðnaðar­hús­næði á Akur­eyri

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Eldurinn kom upp um klukkan sex í kvöld.
Eldurinn kom upp um klukkan sex í kvöld. vísir/vilhelm

Slökkvilið og lögregla á Akureyri vinna nú að því að ráða niðurlögum elds sem kom upp í iðnaðarhúsnæði í Kálfagerði.

Þetta staðfestir varðstjóri lögreglunnar fyrir norðan. 

Ekki hafi neinn verið inni í húsinu en allt tiltækt lið kallað út og kapp lagt á að slökkva eldinn. Hann gat ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu. 

Veistu meira um málið? Áttu myndir af vettvangi? Sendu okkur á [email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×