Lífið

Skellti sér á djammið

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Meghan Markle nýtur lífsins þessa dagana.
Meghan Markle nýtur lífsins þessa dagana. EPA-EFE/KIM LUDBROOK

Miðnæturferð bandarísku hertogaynjunnar Meghan Markle með vinkonum sínum út á skemmtistaði Los Angeles borgar í gærkvöldi hefur vakið mikla athygli. Hertogaynjan er sögð hafa skemmt sér konunglega og dansaði hún fram á nótt.

Þetta kemur fram í umfjöllun bandaríska slúðurmiðilsins Page Six. Meghan var þar að fagna útgáfu nýrrar hárlínu vinkvenna hennar þeirra Kadi Lee og Myka Harris. Öllu var til tjaldað og birtu þær vinkonurnar margar myndir á samfélagsmiðlinum Instagram.

Meghan var í glæsilegum svörtum samfesting og dönsuðu vinkonurnar saman langt fram á nótt. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem djamm vinkvennanna vekur athygli slúðurmiðla en í ágúst í fyrra héldu þær einnig á djammið svo athygli vakti.

Fram kemur í frétt miðilsins að Meghan hafi að sjálfsögðu fjárfest í hárlínu vinkvenna sinna. Athygli hefur vakið undanfarið að hún og eiginmaðurinn Harry Bretaprins hafa lítið sést saman. Þau hafa búið í Bandaríkjunum síðan árið 2020 og eiga saman tvö börn, Archie og Lilibet.

Instagram





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.