Lífið

Greitt úr leyfisvandræðum og tón­leikarnir fara fram í kvöld

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Svekktum gestum var vísað frá Hvalasafninu í gær en tónleikarnir fara fram í kvöld. Dagskráin er óbreytt utan þess að hafa hliðrast um sólarhring.
Svekktum gestum var vísað frá Hvalasafninu í gær en tónleikarnir fara fram í kvöld. Dagskráin er óbreytt utan þess að hafa hliðrast um sólarhring. Vísir/Samsett

Tónleikar sem áttu að fara fram í gærkvöldi en þurfti að aflýsa þegar lögregla kom og vísaði gestum frá fara fram í kvöld. Allir þeir sem áttu að koma fram í gær, koma fram í kvöld, að sögn skipuleggjenda.

Aðstandendur viðburðarins sem haldin er á vegum framleiðslufyrirtækisins LP Events birtu færslu á síðu sinni á Instagram þar sem greint er frá þessu. Fyrr í dag birtu þeir að unnið hefði verið hörðum höndum að því að leysa úr málinu en fyrr í dag kom fram að ekki hefði legið fyrir leyfi til viðburðar af þessu tagi í gærkvöldi.

Guðjón Böðvarsson, einn skipuleggjanda viðburðarins, sagði í samtali við fréttastofu í dag að allir þeir sem hefðu átt að koma fram á tónleikunum í gær komi fram í kvöld.

„Viðburðurinn verður og húsið opnar klukkan 21. Við hlökkum ekkert eðlilega mikið til að sjá ykkur! Dönsum í kvöld!“ segir í færslu skipuleggjenda.

Fred again, again?

Það vakti athygli í fyrradag þegar frambjóðandi Samfylkingarinnar rakst á góðan vin tvíeykisins í Melabúðinni, nánar tiltekið Fred again sem er einn heitasti plötusnúður í heimi um þessar mundir. Í viðburðarlýsingunni kom fram að ásamt tvíeykisins myndu koma fram sérlegir vinir þeirra. Margir leiddu af því að þar hafi verið um Fred again að ræða þó að það liggi alls ekki fyrir.

Joy Anonymous og Fred again hafa oft sameinað kraftað sína og gefið út nokkur lög. Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum eru þeir félagar í Joy Anonymous miklir hvalavinir og var því ákveðið að halda tónleikana þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.