Innlent

Málglaðasti þing­maðurinn talaði í þrjá og hálfan sólar­hring

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Þingmenn Pírata vörðu mestum tíma í pontu Alþingis á kjörtímabilinu, en þingmenn stjórnarflokkanna vörðu að jafnaði minni tíma í pontu en þingmenn stjórnarandstöðunnar. 
Þingmenn Pírata vörðu mestum tíma í pontu Alþingis á kjörtímabilinu, en þingmenn stjórnarflokkanna vörðu að jafnaði minni tíma í pontu en þingmenn stjórnarandstöðunnar.  Vísir

Þingmenn Pírata vörðu langmestum tíma í pontu Alþingis á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka. Þingmenn Framsóknarflokksins vörðu hins vegar minnstum tíma í ræðustól Alþingis að meðaltali. Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, er málglaðasti þingmaðurinn á Alþingi, ef tekið er mið af þeim tíma sem hann varði í pontu Alþingis á kjörtímabilinu. 

Samanlagður ræðutími Björns Levís á kjörtímabilinu frá 2021 til 2024 var rúmar 84 klukkustundir eða sem jafngildir þremur sólarhringum, tólf klukkustundum og 22 mínútum. Næstur í röðinni var flokkbróðir hans Gísli Rafn Ólafsson sem talaði í tæpar 72 klukkustundir.

Botnsætið vermir Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem samtals talaði í rétt um sex klukkustundir á kjörtímabilinu, ef frá er talin Eva Dögg Davíðsdóttir þingmaður VG sem tók sæti á þingi í stað Katrínar Jakobsdóttur þegar hún hætti fyrr á þessu ári. Eva Dögg hafði þó áður komið inn sem varaþingmaður í nokkur skipti á kjörtímabilinu og hefur samtals staðið í rétt rúmar tvær klukkustundir í ræðustól.

Þingmenn stjórnarandstöðunnar verma öll sæti á topp tíu listanum yfir lengsta samanlagða ræðutímann en stjórnarþingmenn taka hins vegar níu af tíu sætum á botninum.

Tíu afkastamestu ræðumennirnir á Alþingi á kjörtímabilinu

  1. Björn Leví Gunnarsson, Píratar: 84 klst. og 22 mínútur
  2. Gísli Rafn Ólafsson, Píratar: 71 klst. og 39 mínútur
  3. Eyjólfur Ármannsson, Flokkur fólksins: 69 klst. og 25 mínútur
  4. Andrés Ingi Jónsson, Píratar: 65 klst. og 36 mínútur
  5. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Píratar: 58 klst. og 43 mínútur
  6. Guðmundur Ingi Kristinsson, Flokkur fólksins: 53 klst. og 41 mínúta
  7. Inga Sæland, Flokkur fólksins: 48 klst. og 53 mínútur
  8. Jóhann Páll Jóhannsson, Samfylkingin: 42 klst. og 43 mínútur
  9. Bergþór Ólason, Miðflokkur: 42 klst. og 2 mínútur
  10. Guðbrandur Einarsson, Viðreisn: 39 klst. og 18 mínútur

*Ræðutíminn er námundaður að næstu heilu mínútu.

Þessir þingmenn vörðu minnstum tíma í pontu á kjörtímabilinu

  1. Eva Dögg Davíðsdóttir, VG: 2 klst. og 7 mínútur
  2. Ásmundur Friðriksson, Sjálfstæðisflokkur: 5 klst. og 59 mínútur
  3. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Framsóknarflokkur: 6 klst. og 0 mínútur
  4. Tómas A. Tómasson, Flokkur fólksins: 6 klst. og 41 mínúta
  5. Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Sjálfstæðisflokkur: 6 klst. og 58 mínútur
  6. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Framsóknarflokkur: 8 klst. og 3 mínútur
  7. Bjarni Jónsson, VG/utan flokka: 8 klst. og 23 mínútur
  8. Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokkur: 8 klst. og 39 mínútur
  9. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Sjálfstæðisflokkur: 8 klst. og 53 mínútur
  10. Hildur Sverrisdóttir, Sjálfstæðisflokkur: 8 klst. og 54 mínútur

*Ræðutíminn er námundaður að næstu heilu mínútu.

Meðalræðutími þingmanna eftir þingflokkum

  1. Píratar: 59,7 klst.
  2. Miðflokkurinn: 36,4 klst.
  3. Flokkur fólksins: 36,3 klst.
  4. Viðreisn: 31,8 klst.
  5. Samfylkingin: 23,9 klst.
  6. Vinstri græn: 15,4 klst.
  7. Sjálfstæðisflokkurinn: 15,0 klst.
  8. Framsóknarflokkurinn: 13, 9 klst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×