Skoðun

And­leg heilsa er dauðans al­vara

Matthías Bragi Ölvisson skrifar

Fyrir tveimur árum síðan urðu fjölskylda, nánustu vinir og samfélag í kringum æskuvin minn fyrir skelfilegum atburði. Flestum að óvörum tók hann sitt eigið líf. Sársaukinn sem fráfall hans olli svíður enn, sérstaklega þegar ég hugsa til þess hvað hægt hefði verið að gera til að koma í veg fyrir að hrakandi andleg heilsa hans, sem var flestum falin, myndi taka hann úr lífi okkar allra. Fyrir okkur sem hafa upplifað slíkan sársauka er það ljóst að mikilvægt er að bregðast hratt við vísbendingum um andlega erfiðleika með virkum og áhrifaríkum lausnum.

Viðreisn vill tryggja fólki aðgengi að lífsnauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu óháð efnahagi. Árið 2020 náði Viðreisn í gegn frumvarpi sem gaf stjórnvöldum heimild til að niðurgreiða sálfræðiþjónustu. Sérstakur samningur var gerður 2023 sem gerir sálfræðingum kleift að veita niðurgreidda þjónustu fyrir börn og unglinga með tilteknar geðraskanir, sem og fullorðna með einkenni kvíða og þunglyndis. Viðreisn vil beita sér fyrir auknu fjármagni í málaflokkinn til að jafna aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu.

Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu snýst ekki bara um að gera hana fjárhagslega aðgengilega heldur snýst hún einnig um það að tekist sé á við andleg veikindi af alvöru. Með niðurgreiðslu verður til áríðandi viðurkenning á mikilvægi þess að bregðast við veikindum sem þögn hefur oft ríkt um. Með niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu vekjum við athygli á alvarleika andlegra veikinda og gerum þeim jafn hátt undir höfði og sýnilegri veikinda. Þörfin er mikil því fólk sem tekst á við andleg veikindi getur upplifað neikvæðar tilfinningar tengt þeim og fundið fyrir þörf á því að leyna sinni raunverulegu líðan. Ef það ástand stendur yfir í lengri tíma getur neikvæðnin yfirtekið líðan viðkomandi með hræðilegum afleiðingum eins og þeim sem æskuvinur minn varð fyrir.

Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu veldur því að innan kerfis verði andleg veikindi metin til jafns við önnur lífshættuleg veikindi.

Með því eru lögð á vogarskálarnar áríðandi skilaboð sem geta bjargað mannslífum.

Breytum þessu.

Höfundur er í þriðja sæti fyrir Viðreisn í Suðurkjördæmi.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s. 552-2218. Þeim sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s. 552-2218.




Skoðun

Sjá meira


×