Tíska og hönnun

Flott klæddir feðgar

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Ástráður Haraldsson og Snorri Ástráðsson eru smart feðgar.
Ástráður Haraldsson og Snorri Ástráðsson eru smart feðgar. SAMSETT

Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari hefur verið í deiglunni að undanförnu og hefur klæðaburður hans ekki síst vakið athygli. Ástráður er með einstakan stíl og er hrifinn af óhefðbundnum settum. Sonur hans, plötusnúðurinn og viðburðahaldarinn Snorri Ástráðsson, á ekki langt að sækja tískuinnblásturinn en hann er sömuleiðis þekktur fyrir að fara töff leiðir í tískunni. 

Ástráður virðist hrifinn af breska tískuhönnuðinum Nigel Cabourn sem sérhæfir sig í einstökum gæðaflíkum og sækir innblástur til fjórða áratugarins. Hann á settið í rauðbrúnum litatónum og sömuleiðis sambærilegt sett í gráu. 

Ríkissáttasemjari Ástráður Haraldsson klæðist Nigel Cabourn.Vísir/Vilhelm

Samkvæmt vefsíðu Cabourn kostar jakkinn 31.100 krónur og buxurnar 28.900 krónur. 

Jakkinn er í rauðbrúnum litatónum með stuttum og stílhreinum kraga.Nigel Cabourn
Buxurnar fullkomlega í stíl við jakkann.Nigel Cabourn
Ástráður hér í gráu setti við ljósbláa, kragalausa skyrtu.Vísir/Vilhelm

Snorri sonur Ástráðs hefur sömuleiðis vakið athygli fyrir flottan stíl og virðist hrifinn af skandinavískri tísku. Hann er búsettur í Kaupmannahöfn og var í haust valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ.

Snorri klæðist mikið svörtu og hvítu og stílhreinum flíkum í stíl við strigaskó. 

Feðgarnir virðast báðir hrifnir af kragalausum skyrtum.SAMSETT





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.