Lífið

Myndir: Þungt yfir stjörnunum við jarðar­för Payne

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Harry Styles við kirkjuna í morgun.
Harry Styles við kirkjuna í morgun. Andrew Matthews/PA via AP

Það var eðli málsins samkvæmt þungt yfir viðstöddum í bænum Amersham í Englandi í dag þar sem jarðarför bresku stórstjörnunnar og söngvarans Liam Payne fór fram. Payne lést fyrir um mánuði síðan eftir fall af svölum á hóteli sínu í Buenos Aires í Argentínu.

Meðal þeirra sem voru viðstaddir jarðarförina voru félagar Payne í strákahljómsveitinni One Direction þeir Harry Styles, Niall Horan, Louis Tomlinson og Zayn Malik. Þar voru líka meðal annarra sjónvarpsmaðurinn James Corden, fyrirsætan Damian Hurley auk tónlistarkvennanna Kimberley Walsh og Nicola Roberts úr Girls Aloud.

Þá voru þar einnig Kate Cassidy kærasta tónlistarmannsins og lærifaðir hans sjónvarpsmaðurinn Simon Cowell. Myndir frá Englandi má skoða hér fyrir neðan. Þar sést hvernig kista Payne var dregin af tveimur hvítum hestum og voru tár á hvarmi viðstaddra.

Payne lést þar sem hann var staddur á hóteli á Buenos aires. Krufning hefur leitt í ljós að söngvarinn var mjög dópaður þegar hann lést og fundust þó nokkur efni í blóði hans. Payne lætur eftir sig sjö ára gamlan son, Bear Grey Payne sem hann eignaðist með söngkonunni Cheryl Cole. 

Komið með kistuna að kirkjunni.Andrew Matthews/PA via AP

Kistunni fylgt í kirkjuna.Jonathan Brady/PA via AP

Damian Hurley til hægri, Kate Cassidy hennar við hlið. Andrew Matthews/PA via AP

Kimberley Walsh. Jonathan Brady/PA via AP

Damian Hurley.Jonathan Brady/PA via AP

Kista söngvarans í vagninum. Jonathan Brady/PA via AP

Nicola Roberts. Andrew Matthews/PA via AP

Louis Tomlinson. Jonathan Brady/PA via AP





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.