Skoðun

Hverjir myrða konur?

Auður Önnu Magnúsdóttir skrifar

Femicide watch í Danmörku

308 konur hafa verið myrtar í Danmörku frá aldamótum vegna kyns síns, það er 308 kvennamorð (e. femicide) hafa verið framin í Danmörku á 21. öldinni. Kvennamorð er kynbundið ofbeldi þar sem konur eða stúlkur eru myrtar vegna kyns síns.

Af þessum 308 kvennamorðum í Danmörku 2000-2023 voru 203 eða tveir þriðju framin af maka eða fyrrverandi maka. Í yfirgnæfandi meirihluta morða í nánum samböndum eru það karlmenn sem myrða konur.

Kvennamorð á Íslandi

Á Íslandi eru sem betur fer fá morð framin þrátt fyrir ógnvænlega fjölgun undanfarið. Hluti þessara morða eru kvennamorð þar sem úreltar hugmyndir feðraveldisins eru orsakavaldurinn. Íslensk rannsókn á morðum á konum 1994-2014 sýndi að sex kvennamorð voru framin á tímabilinu.

Hefðirnar: konur sem eign

Samkvæmt hefðunum má karlmaður fara með eign sína eins og honum sýnist og konur voru og eru enn í sumum löndum eign karlmanna. Þannig miðuðu fyrstu lög um nauðganir við skaða sem feður/eiginmenn/bræður brotaþola urðu fyrir vegna brotsins, skaði brotaþolans skipti ekki máli. Í 43 löndum í heiminum er nauðgun innan hjónabands ekki lögbrot og í 20 löndum geta nauðgarar sloppið við refsingu ef þeir fallast á að giftast þolandanum. Af þessu hugarfari eimir enn á Norðurlöndunum og það lýsir sé í kynbundu ofbeldi, en tíðni morða í nánum samböndum er svipuð á öllum Norðurlöndunum og hefur lækkað sem betur fer á undanförnum árum þó nú séu blikur á lofti.

Ranghugmyndir sem milda viðhorf til kvennamorða

Karlmönnum sem myrða konurnar sínar hefur á stundum verið mætt með meiri samúð og skilningi heldur en öðrum morðingjum. Líklega spila þar að minnsta kosti tvær ranghugmyndir inn í. Sú fyrri er að kona sé eign maka síns, arfleið þess tíma þegar konur voru gefnar eiginmönnum sínum af feðrum. Við sjáum þetta enn í flestum brúðkaupum þegar faðir brúðarinnar leiðir hana að altarinu og afhendir hana tilvonandi eiginmanni. Þessi hugmynd um eignarhald karla á konum hefur einnig verið nefnd sem ástæða kvennamorða.

Síðari ranghugmyndin er að um stundarbrjálæði eða hjónarifrildi sé að ræða og sú hugmynd er svo lífseig að einungis áratugur er síðan að karlar sem myrtu kvenkyns maka sinn fengu vægara dóma en aðrir morðingjar í Danmörku. Jane Monckton Smith, prófessor í afbrotafræði við Háskólann í Gloucestershire hefur skipt hegðunarmynstri morðingja í nánum samböndum í átta stig, þar sem næst síðasta stigið er undirbúningur morðisins, en það síðasta er morðið sjálft. Rannsóknir hennar og fleiri fræðimanna sýna að morð í nánum samböndum eru alveg jafn undirbúin og óafsakanleg og önnur morð og er ekki „hjónarifrildi sem endaði illa“.

Ójöfn staða kynjanna er orsökin

Til að snúa við árþúsundagamalli kúgun þarf meiriháttar samhent átak. Engin getur gert allt en öll geta gert eitthvað. Til þess að stöðva kvennamorð þarf að binda enda á rót þess: ójafna stöðu kynjanna og valdastrúktúr feðraveldisins.

Höfundur er framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands.

Greinin er birt í tengslum við alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi.




Skoðun

Sjá meira


×