Skoðun

Hvað viltu að bíði þín heima?

Þórdís Dröfn Andrésdóttir skrifar

Mörgum Íslendingum erlendis vex í augum að kjósa utan kjörfundar, sérstaklega þegar kosningar bera að með jafn stuttum fyrirvara og nú. Eðlilega, það geta fylgt því miklar flækjur að finna út úr því hvar og hvað skuli kjósa, og koma atkvæði sínu til Íslands.

Þá getur líka reynst freistandi að sleppa því bara að kjósa, kúpla sig út úr brjálæðinu sem á sér stað á Íslandi og njóta þess að búa erlendis, stunda jafnvel nám og leyfa látunum að gerast í heimi utan við sig. Hefur það yfir höfuð mikil áhrif á okkur sem lærum erlendis hver er í ríkisstjórn á Íslandi?

Stjórnmál á Íslandi hafa heilmikið um kjör okkar að segja. Þó þú sért í námi erlendis er rödd þín í Alþingiskosningum á Íslandi samt sem áður mikilvæg! Kosningar eru þitt tækifæri til að móta framtíð Íslands í málefnum sem hafa áhrif á framtíð þína, fjölskyldu þína og heimaland þitt. Hvert atkvæði hefur áhrif á framtíð menntunar, loftslagmála, heilbrigðisþjónustu og fleira. Með því að kjósa átt þú þátt í því að tryggja að stjórnvöld mæti þörfum okkar allra og móti samfélagið að okkur.

Ég biðla til námsmanna erlendis að ganga að kjörborðinu, hafið uppi á næsta kjörræðismanni, heimsækið næsta sendiráð og komið atkvæði ykkar til skila. Samband íslenskra námsmanna erlendis hefur tekið saman upplýsingar um ferlið á sine.is í von um að einfalda námsmönnum erlendis að kjósa. Þar munu einnig birtast viðtöl við fulltrúa flokkanna sem sitja fyrir svörum um málefni sem varða námsmenn erlendis.

Hvað skiptir þig máli?

●Breyttar reglur í kringum skattlagningu námsstyrkja?

●Lengri framfærslutími námslána?

●Bætt styrkjakerfi hjá Menntasjóði námsmanna?

●Skiptir þig kannski miklu máli að greiða úr stjórnsýsluhindrunum sem blasa við fjölskyldum sem flytja aftur til Íslands?

●Eða eru það stjórnsýsluhindranirnar sem bregða fyrir þig fæti á meðan námi stendur?

●Breytt viðmiðunartímabil fyrir tekjutengingu fæðingarorlofs svo upphæðir miði ekki við þann tíma sem þú varst í námi?

●Eru sjúkratryggingar þér sérstaklega hugleiknar?

●Hærri skólagjaldalán frá Menntasjóði námsmanna? Svo þér sé fært að fara í draumaskólann?

Það er margt sem gerist í íslenskum stjórnmálum sem hefur bein áhrif á tækifæri og aðstæður Íslendinga sem velja að sækja sér menntun utan landsteinanna.

Samband íslenskra námsmanna erlendis starfar að víðtækri hagsmunagæslu fyrir íslenska námsmenn á erlendri grundu.

Höfundur er forseti Sambands íslenskra námsmanna erlendis.




Skoðun

Sjá meira


×