Skoðun

Hvar enda skatta­hækkanir?

Bessí Þóra Jónsdóttir skrifar

Í aðdraganda kosninga hafa margir stjórnmálaflokkar boðað skattahækkanir af því þeir ætla að leysa öll vandamál samfélagsins með auknum útgjöldum ríkissjóðs. Í mánuðinum lagði fráfarandi ríkisstjórn á tvo nýja skatta, þar af annan á almenning og hinn á ferðaþjónustuna. En hvar enda skattahækkanir, og hverjir bera raunverulegan kostnað þeirra?

Skattahækkanir eru oft kynntar sem úrræði sem aðeins bitnar á „þeim með breiðustu bökin“ eða stórfyrirtækjum. En í raunveruleikanum hafa slíkar hækkanir víðtæk áhrif á alla í samfélaginu. Hvort sem það er beint eða óbeint, þá lendir aukin skattheimta á almenningi.

Beinar skattahækkanir á almenning

Beinar skattahækkanir, eins og hækkun á virðisaukaskatti eða tekjuskatti, hafa augljós áhrif. Þær draga úr ráðstöfunartekjum einstaklinga, skerða kaupmátt og þrengja að fjölskyldum sem þegar eiga erfitt með að ná endum saman. Sérstaklega verður þetta áþreifanlegt í núverandi verðbólguástandi, þar sem hækkandi kostnaður í öllum grunnþörfum – matvöru, húsnæði og fleira – gerir lífið dýrara fyrir alla.

Óbeinar skattahækkanir – áhrif á fyrirtæki og neytendur

Þegar skattar eru hækkaðir á fyrirtæki, eins og hækkun á tekjuskatti eða sérstökum umhverfissköttum, þurfa þau að bregðast við því. Algengasta leiðin er að velta kostnaðinum yfir á neytendur í formi hærra vöruverðs. Þannig endar skatturinn hjá almenningi, jafnvel þó skatturinn sé ekki lagður beint á hann.

Ef fyrirtæki geta ekki velt kostnaðinum áfram, lenda þau í samdrætti. Þetta getur leitt til fækkunar starfa eða minni fjárfestinga, sem skerðir hagvöxt og minnkar tækifæri fyrir samfélagið í heild.

Skattahækkanir og áhrif þeirra á einkaframtak og verðmætasköpun

Þegar skattar eru hækkaðir um of, hefur það hamlandi áhrif á einkaframtak og verðmætasköpun í samfélaginu. Fyrirtæki og einstaklingar, sem myndu annars nýta fjármagn sitt til að skapa störf, fjárfesta í nýsköpun eða byggja upp ný fyrirtæki, neyðast til að draga saman seglin. Þetta minnkar svigrúm þeirra til að taka áhættu og þróa ný verkefni sem gætu leitt til aukinnar verðmætasköpunnar. Hærri skattar draga úr hvatanum til að stunda frumkvöðlastarfsemi og reka fyrirtæki sem leiðir til þess að tækifæri sem eru til staðar verða ekki gripinn.

Hver greiðir fyrir skattahækkanir?

Svarið er einfalt: það erum við öll. Hvort sem það er í gegnum hærra vöruverð, minni atvinnumöguleika eða skerðingu á kaupmætti. Almenningur er burðarás samfélagsins og endar ávallt með að bera kostnað skattahækkana, jafnvel þegar þær eru settar fram sem „réttlátar“.

Lausnin – ábyrg fjármálastjórn

Freistnivandi stjórnmálamanna er að lofa að gera allt fyrir alla og borga fyrir það með hærri sköttum. Frekar en að hækka skatta, ætti áherslan að vera á skynsamlega fjármálastjórn. Með því að draga úr sóun í opinberum rekstri, hætta við óskynsamleg verkefni og forgangsraða öðrum og skapa hagstæðara umhverfi fyrir atvinnulíf til að blómstra, má tryggja heilbrigðan ríkissjóð án þess að þyngja byrðar almennings.

Of háir skattar setja keðjuverkandi neikvæð áhrif af stað. Þeir veikja undirstöður einkaframtaksins, sem er forsenda verðmætasköpunar og öflugs samfélags. Til að skapa heilbrigt umhverfi þar sem einstaklingar og fyrirtæki þrífast, er nauðsynlegt að viðhalda hóflegri skattheimtu sem hvetur til vaxtar fremur en samdráttar.

Skattahækkanir virðast kannski einfaldar lausnir á yfirborðinu, en þegar grannt er skoðað lenda þær alltaf á sama stað – hjá venjulegu fólki. Það er kominn tími til að stjórnvöld endurskoði leiðir sínar og setji hagsmuni fólksins í forgang.

Miðflokkurinn ætlar að lækka skatta, ýta undir einkaframtakið og verðmætasköpun í landinu ásamt því að hætta kostnaðarsömum gæluverkefnum ríkisins sem engu skila fyrir samfélagið.

Höfundur er atferlishagfræðingur og frambjóðandi í 3. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×