Flestar krónur renna í vasa stjórnarflokkanna 9 af hverjum 10 krónum sem sjávarútvegsfyrirtæki styrkja stjórnmálaflokkana fer til stjórnarflokkanna tveggja. Viðskipti innlent 4. nóvember 2015 12:00
Hundrað þingmál ráðherra ekki komin fram og ekkert frá þremur ráðherrum Af þeim 127 þingmálum sem ráðherrar ætla sér að leggja fyrir haustþingið hafa aðeins 29 þeirra komið til þings. Ljóst má vera að ef öll þingmálin koma til þings verði nóg að gera í þinginu fram að jólafríi. Innlent 4. nóvember 2015 07:00
Vill endurskoða regluverk um neyðarmóttöku „Að sjálfsögðu á ekki að eyða sönnunargögnum á meðan fyrningarfrestur hefur ekki gengið í gildi,“ sagði Jóhanna María Sigmundsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, í umræðum um störf þingsins á Alþingi í gær. Innlent 4. nóvember 2015 05:00
Leggja fram tillögu um rannsókn á Kleppjárnsreykjum Fimmtán þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna vilja rannsaka hvort íslensk yfirvöld hafi framið mannréttindabrot á tímum hernámsins. Innlent 3. nóvember 2015 23:34
„Mig langar til að öskra á feðraveldið að hætta þessu djöfulsins rugli“ Heiða Kristín Helgadóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, gerði nýja rannsókn Guðbjargar Lindu Rafnsdóttur og Þorgerðar Einarsdóttur, að umtalsefni undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Innlent 3. nóvember 2015 14:46
Minntust Árna Steinars Árni Steinn Jóhannsson lést síðla sunnudags á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík. Hann var aðeins 62 ára að aldri, en hafði um nokkur misseri barist við krabbamein. Innlent 3. nóvember 2015 14:28
Framsókn vill innleiða ríkisstyrki við kaup á fyrstu íbúð að breskri fyrirmynd Vilja sjá tillögu frá ráðherra ekki seinna en í maí 2016. Innlent 3. nóvember 2015 13:58
Segir spítalalekann ótrúlegt óhæfuverk „Maður hefði haldið að enginn trúnaður væri eins mikilvægur og trúnaður á milli þeirra sem sækja þjónustu hjá Landspítalanum eða öðrum stofnunum sem halda utan um heilbrigði landsmanna og þessara stofnana,“ sagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, í óundirbúinni fyrirspurn til Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra á Alþingi í gær. Innlent 3. nóvember 2015 08:00
Spyr hvort Sigmundur ætli að biðjast afsökunar Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi, sem hún beinir til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, og spyr hvort hann hyggist biðjast afsökunar á ákvörðunum íslenskra stjórnvalda í aðdraganda Íraksstríðsins. Innlent 3. nóvember 2015 07:59
Ráðherra vill stytta bið eftir ADHD-greiningu Kristján Þór Júlíusson hefur ákveðið að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins fái auka fjármuni í verkefnið. Innlent 2. nóvember 2015 18:55
Mun meiri afgangur af ríkisrekstri Miðað við fjáraukafrumvarp er talið að ríkissjóður ætli að greiða niður skuldir um 141,6 milljarð króna, sem er 101,4 milljörðum meira en gert var ráð fyrir við afgreiðslu fjárlaga. Innlent 1. nóvember 2015 21:07
„Mjög margir sem gætu alls ekki hugsað sér að taka þátt í þessu“ Formaður Læknafélags Íslands segir að mjög skiptar skoðanir séu meðal heilbrigðisstarfsfólks um hvort heimila skuli líknardráp á Íslandi. Áður en slíkt er ákveðið þurfi að eiga sér stað víðtæk, margra ára löng umræða. Innlent 31. október 2015 21:50
Unga fólkið tekur völdin Ein hringdi í Þjóðarsálina þegar hún var tíu ára og annar segir að flokkapólitíkin sé vandamálið. Tíu ungir og efnilegir Íslendingar fara yfir málin. Innlent 31. október 2015 08:00
Norræn yfirlýsing á loftslagsráðstefnu Sex borgarfulltrúar í Reykjavík sækja loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París í desember. Sömuleiðis munu fulltrúar umhverfisnefndar Alþingis fara utan auk embættismanna á þessu sviði. Innlent 31. október 2015 07:00
Alþingi eitt getur tekið ákvörðun um nýja staðsetningu Landsspítalans Framsóknarmenn í Reykjavík vilja skoða aðra staðsetningu fyrir nýja Landsspítala Heilbrigðisráðherra segir staðsetninguna margsamþykkta á Alþingi. Innlent 30. október 2015 12:53
Menntamálaráðherra vill endurhugsa starfsemi RÚV Illugi Gunnarsson vill að hlutverk RÚV á auglýsingamarkaði verði sem minnst. Viðskipti innlent 30. október 2015 10:15
Segja RÚV ekki hafa sagt fjárlaganefnd sannleikann Bæði formaður og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis telja forystu Ríkisútvarpsins hafa vísvitandi blekkt fjárveitingavaldið með því að gefa þeim rangar upplýsingar um stöðu stofnunarinnar. Innlent 30. október 2015 07:00
Áætlanir RÚV gera ráð fyrir að ríkið hækki útvarpsgjaldið Verði gjaldið ekki hækkað og skuld fyrirtækisins við LSR ekki tekin yfir af ríkinu mun félagið tapa milljörðum á næstu árum. Viðskipti innlent 29. október 2015 13:01
Refsigleði landsmanna er römm Sextíu prósent þjóðarinnar er fylgjandi refsistefnu í fíkniefna- og vændismálum. Viðhorfsbreytingar gætir. Innlent 29. október 2015 11:18
Sigmundur og Cameron funduðu í þinghúsinu Þjóðarleiðtogarnir voru afar lágróma svo vart mátti greina hvað þeim fór í millum. Innlent 28. október 2015 17:49
Uppgjör föllnu bankanna tryggir ríkissjóði hundruð milljarða Fjármálaráðherra segir samninga við þrotabú föllnu bankanna lækka vaxtakostnað ríkissjóðs um tugi milljarða og geta fært ríkissjóði vel yfir 500 milljarða til lækkunar skulda. Innlent 28. október 2015 12:20
Skoða að stytta vinnuvikuna í 36 stundir Ráðherrar ætla að kanna með tilraunaverkefni hvort unnt sé að stytta vinnutíma án launaskerðingar og ná fram gagnkvæmum ávinningi starfsfólks og stofnana. Innlent 28. október 2015 11:54
Stöðugleikamat Seðlabankans verður kynnt á morgun Fer til umfjöllunar viðskipta-og efnahagsnefndar á morgun. Viðskipti innlent 27. október 2015 14:59
Gústaf Níelsson púaður úr pontu á Landsfundi Gústaf Níelsson og Jón Magnússon fengu óblíðar viðtökur á Landfundi Sjálfstæðismanna í gærkvöldi. Innlent 26. október 2015 10:19
Ungt fólk eins og flóðbylgja á fundinn Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var óvenju átakalítill. Meirihluti Evrópusambandssinna hefur yfirgefið flokkinn. Flokkurinn er klofinn á milli ungra frjálslyndra og eldri íhaldssamra félaga. Innlent 26. október 2015 07:00
Tóku skarpa vinstri beygju á Selfossi Landsfundi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs lauk í gær. Flokkurinn hafnar olíuvinnslu og hvalveiðum, vill sniðganga Ísrael og stofna samfélagsbanka. Innlent 26. október 2015 07:00
Bjarni hætti við að hjóla í bankana Nokkrar setningar birtast í ræðu formanns Sjálfstæðisflokksins á netinu sem hann sleppti við setningu landsfundar flokksins. Innlent 25. október 2015 15:38
Bjarni skoðar að gefa landsmönnum hlut til að tryggja sátt um eignarhald bankanna „Það þarf enginn að flýta sér neitt,“ segir fjármála- og efnahagsráðherra. Innlent 25. október 2015 13:37
„Staða vaxtaokurs og verðtryggingar er algjörlega óviðunandi“ Forsætisráðherra segir ekki eðlilegt að bankar rukki nokkurra prósenta vexti ofan á verðtryggingu. Innlent 25. október 2015 12:44
Heitar umræður á landsfundi: „Hver er þessi Ari Edwald?“ Landsfundur felldi tillögu um að afnema alla tolla á næstu fjórum árum. Innlent 25. október 2015 12:01