Lægsta verð ÓB á fjórum stöðvum Lægsta verð ÓB er á stöðvunum við Fjarðarkaup í Hafnarfirði, Arnarsmára og Bæjarlind í Kópavogi og Hlíðarbraut Akureyri. Samstarf 16. desember 2020 09:58
Kia Sorento fær 5 stjörnur hjá NCAP Nýr Kia Sorneto hlaut á dögunum hæstu einkunn hjá Euro NCAP fyrir framúrskarandi öryggi. Allar gerðir Sorento, Hybrid, Plug-in Hybrid og dísilútfærsla, hlutu toppeinkunn hjá evrópsku öryggisstofnuninni. Bílar 16. desember 2020 07:01
McLaren selur 15% hlut í Formúlu 1 liðinu McLaren Group hefur selt hluta af Formúlu 1 liði sínu. Kaupandinn er bandarískt íþróttafjárfestingafélag. Kaupin tryggja enn frekar framtíð McLaren liðsins og hjálpa liðinu að komast í fremstu röð. Bílar 14. desember 2020 07:01
Forsala hafin á MG EHS Plug-in Hybrid jeppling MG frumsýndi fyrr í vikunni nýjan framhjóladrifinn jeppling með tengiltvinntækni sem ber heitið EHS. Þessi rúmgóði bíll sem er í svokölluðum SUV-C-flokki kemur á markaði Evrópu í byrjun janúar og er forsala þegar hafin hjá BL við Sævarhöfða. Bílar 12. desember 2020 07:00
Bluebíll dembir í gjafaleik og gefur bláan Duster Bluebíll stendur fyrir gjafaleik undir yfirskriftinni Átt þú hann skilið, og gefur eitt stykki Dacia Duster. Kíktu inn á facebooksíðu Bluebill.is til að taka þátt í leiknum Samstarf 11. desember 2020 10:43
Land Rover Defender 110 með 5 stjörnur hjá Euro NCAP Nýr Land Rover Defender 110 hlaut á dögunum hæstu einkunn hjá Euro NCAP fyrir framúrskarandi öryggi. Bílar 11. desember 2020 07:01
Kia Sorento valinn Bíll ársins hjá Carbuyer Nýr Kia Sorento hefur verið valinn Bíll ársins 2021 hjá breska bílafjölmiðlinum Carbuyer. Sorento fékk tvöfalda viðurkenningu því hann vann einnig flokkinn Besti stóri fjölskyldubíllinn hjá Carbuyer segir í fréttatilkynningu frá Öskju. Bílar 9. desember 2020 07:01
Svona fer Tesla að því að framleiða 5000 bíla á viku Eitt allra vinsælasta farartæki heimsins í dag eru bílarnir frá fyrirtækinu Tesla en um er að ræða rafmagnsbíla sem ganga aðeins fyrir rafmagni. Lífið 8. desember 2020 15:30
Kia kynnir nýjan og háþróaðan undirvagn fyrir rafbíla Kia í samvinnu við Hyundai Motor Group kynnti í dag nýjan og háþróaðan E-GMP undirvagn (Electric-Global Modular Platform) sem er sérstaklega hannaður fyrir rafbíla. Þessi nýi undirvagn verður notaður í næstu kynslóðir rafbíla hjá samsteypunni. Bílar 7. desember 2020 07:00
Land Rover Defender Bíll ársins hjá Top Gear Land Rover Defender stóð uppi sem sigurvegari í vali Top Gear á bíl ársins. Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá BL. Bílar 5. desember 2020 07:01
EQV og eVito Tourer frumsýndir í sýndarsal Öskju Bílaumboðið Askja frumsýndi í gær tvo nýjustu rafbíla Mercedes-Benz, EQV og eVito Tourer. EQV og eVito eru 100% rafmagnaðir fjölnotabílar. Um er að ræða nýja valmöguleika í rafmögnuðum samgöngum en bílanir henta vel fyrir akstur með minni hópa eða allt að níu manns. Bílar 4. desember 2020 07:00
Flest nýskráð ökutæki af gerðinni Toyota Flestar nýskráningar ökutækja í nóvember voru á ökutækjum framleiddum af Toyota, eða 71 ökutæki. Næst flestar Mitsubishi eða 69 og KIA var í þriðja sæti með 57. Athygli vekur að Ezbike var í fjórða sæti með 53. Ezbike framleiðir rafhjól. Bílar 2. desember 2020 07:01
Jóladagatal Samgöngustofu hefst á morgun Jóladagatal Samgöngustofu hefur göngu sína á morgun, 1. desember. Að þessu sinni verður spurt úr þáttunum Úti í umferðinni þar sem Erlen umferðarsnillingur rifjar upp helstu umferðarreglurnar. Sérstök keppni er fyrir bekki grunnskóla. Bílar 30. nóvember 2020 07:00
Williams vinnur að raf-snekkju Hátækni verkfræðideild Williams vinnur að raf-drifkerfi fyrir 40 feta lúxus snekkju. Hátækni verkfræðideild Williams er afsprengi Williams Formúlu 1 liðsins. Bílar 28. nóvember 2020 07:00
Nagladekk spila langstærstan þátt í myndun svifryks Greining nýrrar rannsóknar bendir til þess að nagladekkjanotkun spili langstærstan þátt í myndun svifryks frá umferð á höfuðborgarsvæðinu en aðrir áhrifaþættir eru vegyfirborð, umferðarmagn, hraði og þjónusta; söltun og skolun. Ein af niðurstöðum rannsóknarinnar er að draga þurfi verulega úr nagladekkjanotkun. Innlent 27. nóvember 2020 15:01
Nýr Peugeot 3008 á leiðinni til landsins Glænýr Peugeot 3008 er nú á leiðinni til Íslands og mun Brimborg bjóða hann í bensín, dísil og í tengiltvinn rafútfærslu með ríkulegum staðalbúnaði, sjö ára víðtækri verksmiðjuábyrgð á bíl og átta ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Bílar 27. nóvember 2020 07:00
Rafbíllinn Mazda MX-30 með 5 stjörnur í öryggisprófun Euro NCAP Nýi rafbíllinn Mazda MX-30, fær 5 stjörnur í nýjasta árekstrarprófi Euro NCAP. Mazda MX-30, fyrsti 100% hreini rafbíllinn frá Mazda kom vel út í öryggisprófun hjá Euro NCAP öryggisstofnunni og fékk fimm stjörnur. EuroNCAP er í eigu bifreiðaeigandafélaga í Evrópu og sér um árekstrarpróf og mat öryggis nýrra bíla. Bílar 25. nóvember 2020 07:01
Segir íslensk tryggingafélög okra á bíleigendum því þau komist upp með það Félag íslenskra bifreiðaeigenda segir bílatryggingar hér á landi helmingi eða tvöfalt dýrari en á hinum Norðurlöndunum. Viðskipti innlent 24. nóvember 2020 10:17
Rafbílaframleiðandinn Arrival ætlar á markað Breski rafbilaframleiðandinn Arrival, sem framleiðir rafknúna sendibíla er á leiðinni á markað í Bandaríkjunum með verðmat upp á 5,4 milljarða dollara eða um735 milljarða íslenskra króna, eftir samruna við CIIG. Bílar 23. nóvember 2020 07:00
Myndband: Porsche Taycan keyrir utan í einn bíl og ofan á annan Myndband af ökumanni Porsche Taycan bifreiðar sem reynir að leggja í brattri innkeyrslu hefur vakið mikla athygli á internetinu. Ökumaðurinn virðist hafa ruglast á inngjöf og bremsu. Bílar 22. nóvember 2020 07:00
Nýorkubílar rúmlega helmingur nýskráðra bíla Ríflega helmingur allra nýskráðra bíla á þessu ári eru nýorkubílar. Borgarstjóri segir Reykjavík ætla að vera leiðandi í aðgengi almennings að hleðslu rafbíla þannig að það eigi ekki að hindra þróun bílaflotans yfir í græna orku. Innlent 20. nóvember 2020 19:31
Honda nær þriðja stigi í sjálfsaksturstækni Honda hefur fengið leyfi japanskra yfirvalda til að framleiða bíl með þriðja stigs sjálfsaksturstækni. Það er í fyrsta skipti sem bifreið með þeirri tækni er leyfð til aksturs í venjulegri umferð. Bílar 20. nóvember 2020 07:01
Svifryksmengun nærri tvöfalt yfir mörkum í borginni í gær Styrkur svifryks var nærri tvöfalt hærri en heilsuverndarmörk gera ráð fyrir á mælistöð við Grensásveg í gær. Mengun hefur áfram verið viðvarandi í frosti og stillu í borginni í dag þrátt fyrir að borgin hafi látið rykbinda götur. Nagladekk eru sögð vega þungt í svifryksmengun af þessu tagi. Innlent 19. nóvember 2020 16:33
Feðgarnir í Svartárkoti halda báðir tryggð við fyrsta bílinn Áhugi manna á gömlum bílum lýsir sér með ýmsum hætti. Hjá feðgum á bænum Svartárkoti í Bárðardal í Þingeyjarsveit birtist hann í því að hafa aldrei sleppt takinu á fyrsta bílnum sem þeir eignuðust. Þetta mátti sjá í þættinum Um land allt á Stöð 2. Lífið 19. nóvember 2020 12:40
Flýta banni við bensín- og dísilbílum um fimm ár Breska ríkisstjórnin kynnti áform um að flýta banni við nýjum bensín- og dísilbílum um fimm ár í dag. Bannið á nú að taka gildi árið 2030 og vera liður í gera Bretland kolefnishlutlaust fyrir árið 2050. Erlent 18. nóvember 2020 10:52
Nýir Peugeot bílar með sjö ára ábyrgð Brimborg býður nú alla nýja Peugeot bíla með víðtækri sjö ára ábyrgð auk átta ára ábyrgðar á drifrafhlöðu rafbíla, samkvæmt fréttatilkynningu frá Brimborg. Bílar 18. nóvember 2020 07:01
Mercedes-Benz fjárfestir í framleiðslu rafbíla Daimler, eigandi Mercedes-Benz, hefur fjárfest fyrir alls 730 milljónir evra í verksmiðju sem mun einblína á framleiðslu á rafbílum frá Mercedes-Benz, það samsvarar um 118 milljörðum króna. Bílar 16. nóvember 2020 07:01
Nissan LEAF áreiðanlegasti notaði rafbíllinn í Bretlandi Rafbíllinn Nissan LEAF var á dögunum útnefndur áreiðanlegasti notaði rafbíllinn á breska markaðnum af tryggingafélaginu Warrantywise í Bretlandi sem sérhæfir sig í sölu framhaldsábyrgða á bílum eftir að framleiðsluábyrgð þeirra lýkur. Bílar 14. nóvember 2020 07:00
Citroën með 7 ára ábyrgð Nýir Citroën bílar frá Brimborg eru nú með sjö ára ábyrgð og átta ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er víðtæk verksmiðjuábyrgð fyrir fólksbíla og sendibíla. Bílar 13. nóvember 2020 07:00
Hyundai i20 vann aftur Gullna stýrið Hin nýja kynslóð Hyundai 120 hlaut í liðinni viku Gullna stýrið hjá þýska dagblaðinu Bild am Sonntag sem birt er í nýjasta tölublaði Auto Bild. Bílar 11. nóvember 2020 07:00