Háloftafugl og fjölhæf stór stelpa til Keflavíkur - myndband Karla- og kvennalið Keflavíkur í Iceland Express deildunum hafa komist að samkomulagi við tvo erlenda leikmenn sem munu leika með þeim á komandi tímabili. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins en bæði liðin er nú stödd í æfingaferð í Danmörku. Körfubolti 10. september 2010 12:30
Hvar er Grindavíkurhjartað? Á heimasíðu Grindavíkur má finna áhugaverðan pistil eftir Ólaf Þór Jóhannesson sem er fyrrum stjórnarmaður hjá körfuknattleiksdeild Grindavíkur sem og fyrrum varaformaður KKÍ. Körfubolti 20. ágúst 2010 23:15
Kjarnaleikmenn Keflavíkurliðsins framlengdu sína samninga Körfuknattleiksdeild Keflavíkur samdi í gær við sex leikmenn kvennaliðsins og þar eru á ferðinni kjarnaleikmenn liðsins undanfarin tímabil. Keflavíkurkonur verða því eins og áður sterkar í kvennakörfunni á komandi tímabili. Þetta kemur fram á heimasíðu Keflavíkur. Körfubolti 3. júní 2010 17:45
Jóhannes Karl: Frábært að klára dæmið „Ég er mjög ánægður að hafa klárað þetta verðuga verkefni þó það hafi nú tekið sinn tíma þá hafðist það," sagði Jóhannes Karl Sigursteinsson eftir dýrmætan sigur Blika gegn KR-ingum í Frostaskjólinu í kvöld. Blikar voru með undirtökin nánast allan leikinn og áttu sannarlega skilið að ná inn marki. Íslenski boltinn 27. maí 2010 22:40
Sverrir Þór hættur að spila og tekinn við kvennaliði Njarðvíkur Sverrir Þór Sverrisson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna en hann spilaði stórt hlutverk hjá Keflavíkurliðinu í úrslitakeppninni þegar liðið fór alla leið í oddaleik um titilinn. Sverrir Þór hefur auk þess tekið við þjálfun kvennaliðs Njarðvíkur í Iceland Express deildinni en Unndór Sigurðsson hætti með liðið í vor. Körfubolti 12. maí 2010 14:30
Haukakonur halda áfram að styrkja sig fyrir næsta tímabil Bikarmeistarar Hauka eru að safna liði fyrir baráttuna á næsta tímabili en liðið hefur fengið til sín þrjá byrjunarliðsmenn úr öðrum liðum á síðustu vikum. Leikmennirnir eru Gunnhildur Gunnarsdóttir og Unnur Lára Ásgeirsdóttir úr Snæfelli og Þórunn Bjarnadóttir úr Val. Körfubolti 7. maí 2010 22:45
Hlynur og Signý voru valin best á Lokahófi KKÍ í kvöld Miðherjar Íslandsmeistaraliðanna, Hlynur Bæringsson í Snæfelli og Signý Hermannsdóttir í KR, voru í kvöld valin leikmenn ársins á Lokahófi Körfuknattleiksfólks á Broadway. Körfubolti 1. maí 2010 23:45
Unndór hættir með kvennalið Njarðvíkur Unndór Sigurðsson hefur ákveðið að hætta sem þjálfari meistaraflokks kvenna en hann hefur þjálfað liðið undanfarin þrjú tímabil eða síðan að meistaraflokkur kvenna var endurvakinn hjá félaginu. Körfubolti 27. apríl 2010 14:00
Sjötta kvennaliðið til þess að breyta silfri í gull Kvennalið KR varð í gær sjötta kvennaliðið sem nær því að breyta silfurverðlaunum frá árinu áður í gull árið eftir. KR-konur unnu þá 84-79 sigur á Hamar í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna. Körfubolti 7. apríl 2010 16:45
Metið hennar Olgu Færseth lifði af áhlaup Unnar Töru KR-ingurinn Unnur Tara Jónsdóttir átti frábær lokaúrslit þegar KR-konur tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í kvennakörfunni. Unnur Tara skoraði 20 af 27 stigum sínum í seinni hálfleik í oddaleiknum og var á endanum aðeins einu stigi frá því að jafna metið yfir flest stig skoruð í einu úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitil kvenna. Körfubolti 7. apríl 2010 15:30
Fögnuður KR-stúlkna - myndir KR varð Íslandsmeistari í Iceland Express-deild kvenna í gær eftir spennuþrunginn oddaleik í DHL-höllinni. Körfubolti 7. apríl 2010 10:25
Kristrún: Stolt í svona liði „Það er ekki hægt að segja neitt annað en maður er stoltur að vera í svona liði. Þetta voru flottir leikir og flottar viðureignir á móti Keflavík en við vorum bara óheppnar að þetta datt ekki með okkur í dag," sagði Kristrún Sigurjónsdóttir, leikmaður Hamars, eftir tap gegn KR í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Körfubolti 6. apríl 2010 22:55
Unnur Tara: Betra liðið tók þetta að lokum „Þetta er ólýsanlegt. Ég er mjög ánægð hvernig við komum til baka í þriðja leikhluta og æðislegt að klára þetta dæmi hér í kvöld," sagði Unnur Tara Jónsdóttir, leikmaður KR, eftir að KR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta kvenna. Körfubolti 6. apríl 2010 22:50
Umfjöllun: KR-stúlkur meistarar eftir sigur í oddaleik KR fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í körfubolta kvenna er liðið lagði Hamar í spennandi oddaleik, 84-79, í DHL-höllinni. Körfubolti 6. apríl 2010 20:58
Julia Demirer og Unnur Tara efstar eftir fyrstu fjóra leikina KR og Hamar leika í kvöld hreinan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í kvennakörfunni þegar oddaleikur liðanna í lokaúrslitum Iceland Express deildar kvenna fer fram. Leikurinn fer fram í DHL-höllinni í Frostaskjóli og hefst klukkan 19.15. Körfubolti 6. apríl 2010 13:44
Ágúst: Besti körfuboltaleikurinn í úrslitaeinvíginu Ágúst Björgvinsson, þjálfari Hamars, var ánægður eftir 81-75 sigur sinna stelpna í fjórða leik úrslitaeinvígisins á móti með KR í Hveragerði í gær en með honum tryggði Hamarsliðið sér oddaleik. Körfubolti 4. apríl 2010 10:00
Benedikt: Menn gleyma því oft hvað þetta Hamarslið er hrikalega gott Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, tókst ekki að gera kvennalið að Íslandsmeisturum í Hveragerði í gær en KR-liðið fær annan möguleika á því í oddaleik á þriðjudaginn sem fram fer í DHL-höllinni. Körfubolti 4. apríl 2010 09:00
Íris: Ekki alveg tilbúnar að fara í sumarfrí strax Íris Ásgeirsdóttir, fyrirliði Hamars, brosti út að eyrum eftir 81-75 sigur á KR í Hveragerði í dag en Hamar náði þar með að jafna úrslitaeinvígið í 2-2 og tryggja sér oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 3. apríl 2010 21:00
Umfjöllun: Tröllatvenna Juliu vó þungt er Hamar tryggði sér oddaleik Hamar vann 81-75 sigur á KR í fjórða leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna í frábærum leik í Hveragerði í dag. KR gat orðið Íslandsmeistari með sigri en nú fer Íslandsbikarinn örugglega á loft á þriðjudaginn þar sem liðin spila hreinan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 3. apríl 2010 20:16
Hamarskonur tryggðu sér oddaleik - myndasyrpa Það verður oddaleikur um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta eftir 81-75 sigur Hamar á KR í frábærum fjórða leik í Hveragerði í dag. Körfubolti 3. apríl 2010 19:30
Hildur: Villuvandræðin slógu okkur út af laginu KR-konum tókst ekki að verða Íslandsmeistarar í Hveragerði og liðsins bíður nú oddaleikur á heimavelli í þriðjudaginn. Hildur Sigurðardóttir lék vel í dag og var með 18 stig og 7 stoðsendingar. Körfubolti 3. apríl 2010 18:24
Julia Demirer: Vitum að við erum sterkari í jöfnu leikjunum „Ég er alveg dofinn í hnénu en ég finn hvort sem ekkert til þegar við vinnum," sagði Hamarskonan Julia Demirer, eftir 81-75 sigur Hamars á KR í fjórða leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í dag. Körfubolti 3. apríl 2010 18:11
Hamarskonur tryggðu sér oddaleik - unnu KR 81-75 Hamar tryggði sér oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna eftir 81-75 sigur í fjórða leiknum við KR sem fram fór í Hveragerði í dag. Oddaleikurinn verður í DHl-höllinni á þriðjudaginn. Körfubolti 3. apríl 2010 17:35
Unnur Tara aðeins einu stigi frá stigameti Íslendings KR-ingurinn Unnur Tara Jónsdóttir átti frábæran leik í 83-61 sigri KR á Hamar í DHL-höllinni í gær í þriðja leik um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna. Unnur Tara skoraði 33 stig í leiknum og hitti úr 13 af 19 skotum sínum sem er mögnuð skotnýting í svona mikilvægum leik. Körfubolti 1. apríl 2010 14:00
Ágúst: Við þekkjum þessa stöðu KR getur orðið Íslandsmeistari í körfubolta kvenna á laugardag. Liðið vann í kvöld Hamar örugglega og er komið í 2-1 forystu í einvíginu. Körfubolti 31. mars 2010 21:25
Benedikt: Bættum vörnina í seinni hálfleik Benedikt Guðmundsson, þjálfari kvennaliðs KR, er ekki byrjaður að fagna þó liðið sé komið í bílstjórasætið í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. KR vann Hamar örugglega í kvöld og er komið í 2-1 í einvíginu. Körfubolti 31. mars 2010 21:19
Umfjöllun: Kvennalið KR einum sigri frá titlinum KR vann í kvöld Hamar 83-61 í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta kvenna. Staðan í einvíginu er orðin 2-1 fyrir Vesturbæjarliðið. Körfubolti 31. mars 2010 20:46
Sagan segir að sigurvegarinn í DHL-höllinni í kvöld verði meistari KR og Hamar mætast í kvöld þriðja leik sínum í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna. Leikurinn fer fram í DHL-höll þeirra KR-inga og hefst klukkan 19.15. Staðan í einvíginu er 1-1 eftir að útiliðin hafa unnið tvo fyrstu leikina og skipts á því að rústa hvoru öðru í frákastabaráttunni. Körfubolti 31. mars 2010 14:45
Benedikt til í að spila fimmta leikinn í Hveragerði KR-konur hafa sýnt að þær kunna vel við sig í blómabænum þar sem þær eru ósigraðar í vetur og það breyttist ekki í kvöld. Liðið vann Hamar örugglega og jafnaði metin í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í 1-1. Körfubolti 29. mars 2010 21:23
Ágúst: Liðið sem vildi þetta meira vann í dag Kvennalið KR vann öruggan sigur í Hveragerði í kvöld og hefur því jafnað metin í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn 1-1. Körfubolti 29. mars 2010 21:12