Meiðyrðamál smálánarisa gegn Neytendasamtökunum fyrir dómstóla Munnlegur málflutningur í meiðyrðamáli smálánafyrirtækisins eCommerce gegn Breka Karlssyni og Neytendasamtökunum fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þau ummæli sem deilt er um voru sett fram í tölvupóstsamskiptum og alls fjögur talsins. Viðskipti innlent 18. desember 2020 08:26
Fyrrverandi ritstjóri DV greiðir knattspyrnu- og lögreglumanni bætur Lilja Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi ritstjóri DV, var í dag dæmd í Héraðsdómi Reykjaness til að greiða fimm hundruð þúsund krónur í miskabætur og 1,7 milljónir króna í málskostnað. Það var vegna fréttar sem miðillinn birti um lögreglumann sem sakaður var um að hafa við embættisstörf slasað ungan mann í febrúar síðastliðnum. Innlent 17. desember 2020 21:00
Hafnaði því að hafa vísvitandi leynt góðkynja æxli og fær tíu milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í byrjun desember tryggingafélagið Líftryggingamiðstöðina, sem heyrir undir TM, til að greiða konu tíu milljónir króna úr sjúkdómatryggingu sem hún var með hjá félaginu. Innlent 16. desember 2020 11:27
Mildaðir nauðgunardómar séu afleiðing manneklu Það gerist reglulega að dómar í kynferðisbrotamálum eru mildaðir í Landsrétti vegna dráttar á málsmeðferð. Þingmaður Viðreisnar segir ástæðuna vera aukinn málafjölda og skort á starfsfólki hjá ákæruvaldinu. Innlent 15. desember 2020 19:45
Landsréttur staðfestir frávísun milljarðakröfu Jóns Ásgeirs og Ingibjargar Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa frá milljarðakröfu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Ingibjargar Stefaníu Pálmadóttur og 365 miðla hf. gegn Sýn hf., forstjóra þess Heiðari Guðjónssyni og öllum stjórnarmönnum. Viðskipti innlent 15. desember 2020 18:26
Dæmdur fyrir 200 þúsund barnaklámsmyndir eftir brot gegn fötluðum skjólstæðingi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í síðustu viku karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir vörslu á miklu magni barnaníðsefnis. Maðurinn var í júní á þessu ári dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn alvarlega fötluðum skjólstæðingi sínum. Innlent 15. desember 2020 16:09
Fær ekki bætur eftir að hann datt ofan í 1,7 metra djúpa gryfju Vátryggingafélag Íslands var í dag sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum manns sem hafði í október 2016 runnið ofan í 173 sentímetra djúpa viðgerðargryfju í húsnæði Frumherja, sem hann starfaði hjá, og hlotið af því talsverðan skaða. Innlent 14. desember 2020 21:58
Má greiða 6,7 milljóna skuld með 149 stólum Bitter ehf., rekstraraðila verslunarinnar Parka, er heimilt að greiða andvirði 6,7 milljóna króna skuldar, sem rekja má til stólakaupa Skelfiskmarkaðarins, með því að skila umræddum stólum til þrotabús veitingastaðarins. Viðskipti innlent 14. desember 2020 14:12
Ágúst og Einar neituðu sök og krefjast frávísunar Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir sem stýra trúfélaginu Zuism neituðu sök í máli héraðssaksóknara gegn þeim við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Ágúst Arnar og Einar sæta ákæru fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 14. desember 2020 10:42
Trúði ekki augum og eyrum við uppsögn eftir 38 ára starf Fyrrverandi sviðsstjóri veiðiráðgjafarsviðs hjá Hafrannsóknarstofnun segir forstjóra stofnunarinnar hafa framið mannorðsmorð á sér í uppsögnum hjá Hafró í nóvember í fyrra. Hann átti erfitt með að meðtaka uppsögn og framkvæmd hennar eftir tæplega fjörutíu ára starf. Innlent 12. desember 2020 20:01
Dómari á launaskrá hjá málsaðila Synjun Hæstaréttar um áfrýjunarbeiðni Kristins Sigurjónssonar fyrrverandi lektors við Háskólann í Reykjavík hefur verið felld úr gildi. Það var gert vegna þess að einn dómaranna sem afgreiddi synjuninna er einnig kennari við HR. Innlent 12. desember 2020 18:18
Notfærði sér fákunnáttu aldraðrar frænku til að ná út 30 milljónum í reiðufé Landsréttur hefur staðfest dóm yfir konu sem var í héraði fundin sek um að hafa notfært sér einfeldni og fákunnáttu aldraðrar frænku sinnar til að verða sér úti um tugi milljóna króna. Konan hlaut í Héraðsdómi Norðurlands eystra fjögurra mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm í fyrra sem Landsréttur hefur nú staðfest. Innlent 12. desember 2020 13:08
Nauðgunardómur mildaður úr tveimur árum í átján mánuði Landsréttur mildaði í dag dóm yfir manni sem sakfelldur hafði verið í Héraðsdómi Reykjaness í mars 2019 fyrir nauðgun, hótanir og annað ofbeldi. Maðurinn hafði verið dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar en mildaði Landsréttur dóminn í átján mánuði. Innlent 11. desember 2020 17:26
Landsréttur sneri við sjö ára dómi fyrir barnaníð Karlmaður á sextugsaldri sem dæmdur var í sjö ára fangelsi fyrir brot á syni sínum yfir margra ára tímabil hefur verið sýknaður í Landsrétti. Dómur var kveðinn upp í dag og taldi Landsréttur að ákæruvaldinu hefði ekki tekist að færa sönnur á sekt karlmannsins gegn eindreginni neitun hans. Innlent 11. desember 2020 16:47
Landsréttur staðfestir að símtal Lilju til Ágústu var nóg Landsréttur hefur staðfest sýknudóm yfir íslenska ríkinu varðandi skólameistara á Akranesi sem sagt var upp störfum. Ágústa Elín Ingþórsdóttir, skólastjóri Fjölbrautarskóla Vesturlands, taldi að skipunartími hennar hefði framlengst sjálfkrafa til fimm ára þar sem henni hefði ekki verið tilkynnt innan nauðsynlegs fyrirvara að starfið yrði auglýst. Innlent 11. desember 2020 16:26
ÍR áfrýjar máli Sigurðar til Landsréttar Körfuknattleiksdeild ÍR hefur áfrýjað úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu gegn Sigurði Gunnari Þorsteinssyni til Landsréttar. Körfubolti 11. desember 2020 15:03
Dómar styttir yfir mönnum sem nauðguðu unglingsstúlku Landsréttur hefur mildað dóm yfir tveimur Pólverjum á fertugsaldri sem sakfelldir voru fyrir að hafa nauðgað unglingsstúlku í Reykjavík í febrúar 2017. Lukasz Soliwoda og Tomasz Walkowski fengu tveggja ára fangelsisdóm en höfðu hlotið þriggja ára dóm í héraði. Innlent 11. desember 2020 15:02
Áslaug Thelma áfrýjar málinu gegn Orku náttúrunnar Áslaug Thelma Einarsdóttir hefur áfrýjað dómi héraðsdóms í máli hennar gegn Orku náttúrunnar en það var niðurstaða dómsins að sýkna ON af ásökunum Áslaugar um ólögmæta uppsögn og kynbundinn launamun. Innlent 11. desember 2020 14:46
Leynileg upptaka af ólögráða stelpum í Mosfellsbæ Einstaklingur búsettur í Mosfellsbæ hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlögum. Er honum gefið að sök að hafa að kvöldi föstudags í maí í fyrra á heimili sínu í Mosfellsbæ stillt farsíma sínum upp inni á baðherbergi. Innlent 11. desember 2020 07:01
Arnfríður þarf ekki að víkja sæti í málum Vilhjálms Arnfríður Einarsdóttir landsréttardómari þarf ekki að víkja sæti þegar Landsréttur tekur fyrir tvö meiðyrðamál vegna Hlíðamálsins svokallaða, þrátt fyrir að svo kunni að vera að eiginmaður hennar og mágur hafi lýst yfir neikvæðri afstöðu til Vilhjálms H. Vilhjálmsonar, lögmanns mannanna tveggja sem krefjast skaðabóta frá tveimur konum vegna ummæla þeirra í tengslum við Hlíðamálið. Innlent 10. desember 2020 10:42
Tveir eigendur og verkstjóri Plastgerðarinnar ákærðir vegna banaslyss Þrír menn sem starfa sem yfirmenn í Plastgerð Suðurnesja hafa verið ákærðir af héraðssaksóknara fyrir manndráp af gáleysi eða hlutdeild í manndrápi af gáleysi eftir að undirmaður þeirra lést í vinnuslysi í Plastgerðinni í júlí 2017. Innlent 9. desember 2020 17:10
Klemmdi annan ökumann á milli vörubíls og sendibíls eftir rifrildi Ökumaður vörubíls hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa klemmt ökumann sendibíls á milli bílanna tveggja eftir rifrildi ökumannanna á milli. Héraðsdómur telur að bílstjóra vörubílsins hafi þó stafað ógn af hinum ökumanninum. Innlent 9. desember 2020 15:03
Eigendur Finnsku búðarinnar þurfa að greiða þrotabúinu milljónir Eigendur Finnsku búðarinnar sem rekin var í Kringlunni voru í gær dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða þrotabúi búðarinnar um tíu milljónir króna. Um var að ræða greiðslur frá búðinni til eigendanna, sem þær skýrðu m.a. sem vangoldin laun. Viðskipti innlent 9. desember 2020 11:00
Áfrýjar dómi sem gæti kostað ríkið milljarða Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að áfrýja dómi í máli hjóna sem höfðu betur í dómsmáli gegn Íbúðarlánasjóði. Ríkið segir að þetta sé gert í ljósi þeirra verulegu hagsmuna sem undir séu. Viðskipti innlent 8. desember 2020 14:15
Bílstjórar kröfðust milljóna en þurfa í staðinn að borga 700 þúsund hvor Héraðsdómur Vestfjarða sýknaði í síðustu viku fyrirtæki á Vestfjörðum af kröfum tveggja fyrrverandi starfsmanna um vangoldin laun. Mennirnir kröfðust milljóna frá fyrirtækinu en sátu á endanum uppi með hundruð þúsunda í málskostnað. Innlent 7. desember 2020 23:23
Stjórnendur Zuism ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti Tveir bræður sem stýra trúfélaginu Zuism hafa verið ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Trúfélagið var á tímabili eitt það fjölmennasta á landinu og hefur þegið tugi milljóna króna úr ríkissjóði í formi sóknargjalda. Innlent 7. desember 2020 11:23
Vill að ríkissaksóknari bregðist við dómi MDE Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður vill að ríkissaksóknari taki til skoðunar dóma sem komu til kasta fjögurra dómara við Landsrétt í kjölfar niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu um að þeir hefðu verið ólöglega skipaðir. Hann gagnrýnir aðgerðarleysi stjórnvalda og þá afstöðu að niðurstaðan hafi ekki áhrif á mál sem þegar hafi fallið. Innlent 6. desember 2020 19:01
Svala stendur þétt við bak kærastans Svala Björgvinsdóttir söngkona segir kærasta sinn eina yndislegustu manneskju sem hún þekki. Þetta segir Svala á Instagram-síðu sinni þar sem hún bregst við fréttaflutningi af ákæru á hendur kærastanum Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni. Lífið 6. desember 2020 17:34
Ólögmætt uppgreiðslugjald Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt uppgreiðslugjald lánþega á lánum sem tekin voru hjá Íbúðalánasjóði (ÍLS) á árunum 2005-13 ólögleg. ÍLS var óheimilt að krefja lánþega um greiðslu uppgreiðslugjalda þegar þeir greiddu lán sín upp. Skoðun 6. desember 2020 10:01
Fögnuðu óvæntum sigri í máli sem gæti kostað ríkið milljarða Kona sem lagði Íbúðalánasjóð í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær segist ekki hafa átt von á niðurstöðunni, en dómurinn er sagður marka tímamót og gæti kostað ríkissjóð á annan tug milljarða. Dómurinn sé sigur fyrir lántakendur. Viðskipti innlent 5. desember 2020 12:42