Spyr hvort hagsmunir launþega séu að sitja heima frekar en að vera í vinnunni Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir formann Alþýðusambands Íslands skorta framtíðarsýn þegar komi að umræðunni hvort fyrirtæki, sem leiti til ríkisins varðandi greiðslur til launþega á uppsagnafresti, láti starfsfólk sitt vinna út uppsagnafrestinn. Á fimmta þúsund manns misstu vinnuna í hópuppsagnahrinu í lok apríl. Viðskipti innlent 5. maí 2020 10:58
Ferðamenn ekki til Nýja-Sjálands í bráð en Íslendingar horfa á ágúst Nýsjálendingar sjá ekki fram á á að landamæri ríkisins verði opnuð fyrir ferðamönnum í nánustu framtíð. Erlent 5. maí 2020 06:15
Vara við baðferðum í „stórhættulegu“ affalli eftir sprengingu á samfélagsmiðlum HS Orka varar við því að stórhættulegt getur verið að baða sig í affalli Reykjanesvirkjunar á Reykjanesi. Endurteknar tilkynningar og birtingar á samfélagsmiðlum bendi til þess að það sé að færast í aukana að fólk sé að baða sig í affallinu. Innlent 4. maí 2020 19:09
Lúsmýið kemur í júní: „Ómögulegt að fara planleggja einhverjar ferðir til að forðast skordýrabit“ Útbreiðsla lúsmýs hér á landi hefur verið geysilega hröð undanfarin ár að sögn líffræðiprófessors og ekkert sem bendir til annars en sú þróun haldi áfram í ár. Hann segir vonlaust að ætla að skipuleggja ferðalög til að forðast lúsmý. Innlent 4. maí 2020 12:10
Tómatar í stað erlendra ferðamanna Framkvæmdir eru hafnar við Friðheima í Reykholti en þar er verið að stækka gróðurhúsið um fimm þúsund fermetra. Eigendur fyrirtækisins ætla að leggja aukna áherslu á tómatarækt til að bregðast við fækkun erlendra ferðamanna. Innlent 3. maí 2020 22:00
„Þetta verður djúp dýfa og líklega sú mesta í lýðveldissögunni“ Forsætisráðherra segir viðbúið að fjöldi fólks skipti um starfsvettvang á næstu misserum. Mikilvægt sé að auka fjölbreytni á íslenskum vinnumarkaði. Samtök atvinnulífsins sjá fram á mestu efnahagsdýfu í lýðveldissögunni. Viðskipti innlent 3. maí 2020 18:35
Tilvalið að ráðast í úrbætur nú þegar ferðamenn eru færri Ráðast ætti í umfangsmiklar úrbætur á vegum landsins nú þegar dregið hefur verulega úr umferð með fækkun ferðamanna. Þetta segir sveitarstjóri Bláskógabyggðar og að þegar sé hafin uppbyggingu á ferðamannastöðum í sveitarfélaginu. Innlent 3. maí 2020 10:57
Hafa sett mörg verkefni á ís Þjóðgarðurinn á Þingvöllum verður af yfir þrjú hundruð milljónum króna á árinu vegna hruns í ferðaþjónustunni. Þjóðgarðsvörður segir að fresta þurfi viðhaldsverkefnum vegna þessa. Innlent 2. maí 2020 19:05
Minnst fjórir metrar milli tjalda í sumar Margir bíða ef til vill óþreyjufullir eftir að geta byrjað að ferðast innanlands enda verður lítið um utanlandsferðir í ár. Leiðbeiningar um sóttvarnaráðstafanir vegna Covid-19 á tjaldsvæðum, hjólhýsasvæðum, skálum ferðafélaga og fleiri ferðamannastaða hafa verið gefnar út af landlæknisembættinu. Innlent 2. maí 2020 15:40
Stærsti hluti rekstrartaps vegna rýrnunar á viðskiptavild Rekstrartap Icelandair á fyrsta ársfjórðungi nemur ríflega þrjátíu milljörðum króna. Stærsti hluti tapisins er niðurfærsla viðskiptavildar. Gert er ráð fyrir að lausafjárstaða fari undir lágmark á næstu vikum. Þetta kemur fram í bráðabirgðauppgjöri félagsins fyrir 1. ársfjórðung sem birtist í gær Viðskipti innlent 2. maí 2020 13:55
Neytendasamtökin með á annað hundrað mála í vinnslu Málum hefur fjölgað um 70 prósent hjá Neytendasamtökunum á þessu ári og varða þau allt að 600 hundruð manns. Flestir leita þangað með endurgreiðslukröfur á fyrirtæki tengdum kórónuveirufaraldrinum. Innlent 2. maí 2020 11:15
Hótelnóttin lækki um allt að 50% í verði Stjórnendur þriggja stórra hótelkeðja á Íslandi gera ráð fyrir að gistinóttin muni lækka töluvert í verði í sumar, jafnvel um allt að helming. Viðbúið er þó að mörg hótel verði lokuð. Íslandshótel ætla að vera fyrsta hótelkeðjan á Íslandi að bjóða gæludýr velkomin. Viðskipti innlent 1. maí 2020 20:26
„Þarf að tryggja að vinnumarkaðurinn verði ekki eins auðsærður og nú“ Sögulegur baráttudagur verkalýðsins, eða 1. maí, er runninn upp, þar sem hvorki verða kröfugöngur né útifundir í dag vegna samkomubanns. Þetta er í fyrsta sinn í tæp hundrað ár sem það gerist á þessum degi. Forseti Alþýðusambands Íslands varar við að launafólk slái að kröfum sínum í skugga atvinnuleysis. Innlent 1. maí 2020 12:51
Ekki ýkja mörg hótelherbergi til skiptanna á landsbyggðinni Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur hjá Íslandsbanka, segir að það séu ekki svo mörg hótelherbergi til skiptanna úti á landi, til að mynda á Norðvesturlandi, Norðausturlandi, að Akureyri undanskildri, og á Austfjörðum. Viðskipti innlent 1. maí 2020 09:00
Vonast til að opna hótelið aftur í júní Vonir standa til að hótelin geti farið að taka aftur á móti gestum í júní en þeir sem á þeim starfa vona að Íslendingar verði tíðir gestir á hótelunum í sumar. Innlent 30. apríl 2020 23:15
Óvissan mikil en engar uppsagnir hjá Bláa Lóninu Bláa Lónið einn þekktasti ferðamannastaður landsins stendur frammi fyrir tvenns konar óvissu vegna samkomubanns og gagns mála í flugsamgöngum heimsins. Viðskipti innlent 30. apríl 2020 22:20
Vel yfir 90% hópuppsagna hjá fyrirtækjum í ferðaþjónustu Ríflega fjögur þúsund hafa misst vinnuna í 51 hópuppsögn sem Vinnumálastofnun hefur verið tilkynnt um í dag og í gær. Innlent 30. apríl 2020 20:30
Afslættir til skoðunar vegna ferðamannafátæktar í sumar Faraldur kórónuveirunnar hefur gert það að verkum að íslensk ferðaþjónustufyrirtæki sjá fram á erfiða tíma. Mörg þeirra róa lífróður og hafa þegar þurft að grípa til sársaukafullra aðgerða til að halda lífi. Þau undirbúa sig nú undir erfitt sumar og reyna í meiri mæli að ná inn íslenskum viðskiptavinum. Viðskipti innlent 30. apríl 2020 09:00
Hvorki rútur né erlenda ferðamenn að sjá: „Þetta er bara ömurlegt“ Hrun í ferðaþjónustu hefur bitnað illa á íbúum á Suðurlandi, ekki síst í Bláskógabyggð. Sveitarstjórinn segir mikla óvissu ríkja um hvað næstu mánuðir bera í skauti sér Innlent 29. apríl 2020 23:30
Flugmaður sem missti vinnuna hjá Icelandair: „Að fá uppsögn núna á þessum tíma er mjög erfitt“ Sara Hlín Sigurðardóttir hefur starfað hjá Icelandair síðan árið 2005. Hún er meðal þeirra 431 flugmanna sem missti stöðu sína hjá félaginu í gær en alls hafa 96% flugmanna misst vinnuna þar. Innlent 29. apríl 2020 21:00
Staðan eftir gos í Eyjafjallajökli líkust núverandi ástandi Aðstæður á Þingvöllum eru óvenjulegar og jafnvel súrrealískar að mati þjóðgarðsvarðar. Ástandið líkist einna helst stöðunni eftir gos Eyjafjallajökuls. Innlent 29. apríl 2020 19:34
Traustar flugsamgöngur einn helsti drifkraftur þjóðarbússins Í nýlegri skýrslu IATA sem byggir á gögnum frá Oxford kemur fram að flugsamgöngur við landið séu einn helsti drifkraftur íslensk efnahagslífs. Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á stjórnvöld að tryggja framtíð Icelandair. Viðskipti innlent 29. apríl 2020 19:00
Segja öllum upp og vonast eftir kraftaverki í sumar Öllum sextíu starfsmönnum Hótel Sögu í Vesturbænum í Reykjavík var sagt upp í dag. Eitt prósent nýting var á hótelinu í apríl. Hótelstjórinn vonast eftir kraftaverki í sumar. Viðskipti innlent 29. apríl 2020 16:12
Öllum 152 sagt upp hjá Arctic Adventures Öllum 152 starfsmönnum ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures og dótturfélaga verður sagt upp. Viðskipti innlent 29. apríl 2020 16:03
Gray Line segir upp 91 prósenti starfsfólks Eitt stærsta rútufyrirtæki landsins hyggst segja upp 107 starfsmönnum. Viðskipti innlent 29. apríl 2020 15:11
Telur ferðaþjónustuna ekki standa og falla með ákvörðunum íslenskra yfirvalda Sóttvarnalæknir segir að ákvarðanir stjórnvalda hér á landi um landamæralokanir og sóttkví ráði ekki einar framtíð ferðaþjónustunnar. Ákvarðanir annarra þjóða vegi þar jafnþungt. Innlent 29. apríl 2020 15:04
Andað léttara - en hvað með Icelandair Group? Tekjulítil og tekjulaus fyrirtæki í ferðaþjónustu anda léttara eftir að ríkisstjórnin kynnti björgunaraðgerðir sínar í gær. Skoðun 29. apríl 2020 14:35
„Furðulegt að ríkið skuli ekki gefa upp merki um að það ætli að styðja við Icelandair“ Þrír bankar vinna með Icelandair að væntanlegu hlutafjárútboði. Fagfjárfestar segja að engar ákvarðanir verði teknar um frekari fjárfestingar fyrr en allar upplýsingar liggja fyrir. Formaður FÍA gagnrýnir að stjórnvöld komi ekki beint að félaginu. Viðskipti innlent 29. apríl 2020 13:01
Meirihluta starfsmanna Iceland Travel sagt upp „Þar sem ekki er hægt að gera ráð fyrir því að starfsemin taki við sér á ákveðnum tíma verðum við að ganga ansi nærri fyrirtækinu með uppsagnir og sem varúðarráðstöfun segja upp meirihluta starfsmanna félagsins,“ segir framkvæmdastjóri Iceland Travel Viðskipti innlent 29. apríl 2020 11:46
Kynnisferðir segja upp 150 starfsmönnum Kynnisferðir hafa sagt upp 150 starfsmönnum, eða um 40 prósent starfsliðsins. Viðskipti innlent 29. apríl 2020 10:40