FIA samþykkti brautina í Suður Kóreu Alþjóðabílasambandið, FIA samþykkti í dag að Formúlu 1 mót fari fram um aðra helgi á nýtti braut í Suður Kóreu, en nokkur virtist á reiki hvort af því yrði. Tafir við frágang brautarinnar urðu til þess að umræða um að slá mótið af kom upp síðustu vikurnar. Formúla 1 12. október 2010 09:08
Árangur í tímatökum lykill að titlinum Stefano Domenicali, yfirmaður Formúlu 1 liðs Ferrari telur það að ná góðum árangri í tímatökum í Formúlu 1 í þeim þremur mótum sem eftir eru verði lykillinn að því að landa meistaratitlinum. Fimm ökumenn eiga möguleika á titli ökumanna. Formúla 1 11. október 2010 15:30
Titilmöguleikar McLaren fara minnkandi Möguleikar McLaren ökumanna í Formúlu 1 á því að vinna meistaratitilinn í minnkuðu talsvert þegar keppinautar þeirra röðuðu sér í þrjú efstu sætin í kappakstrinum í Japan á sunnudag. Formúla 1 11. október 2010 14:51
Webber og Vettel fá sama stuðning Christian Horner, yfirmaður Red Bull telur að það sé liðinu til framdráttar að vera með tvo ökumenn í titilslagnum, en Mark Webber og Sebastian Vettel eiga báðir möguleika á titlinum. Vettel vann japanska kappaksturinn á sunnudaginn, en Webber varð annar í mótinu. Formúla 1 11. október 2010 14:17
Webber jók forskotið í stigamótinu Mark Webber er kominn með 14 stiga forskot í stigamóti Formúlu 1 ökumanna eftir að hafa náð öðru sæti í mótinu í Singapúr í dag. Formúla 1 10. október 2010 12:50
Vettel: Stoltur af sigrinum Sebastian Vettel bætti stöðu sína í stigamóti ökumanna í Formúlu 1 í dag með sigri á Suzuka brautinni í Japan. Hann er með 206 stig, eins og Fernando Alonso, en Mark Webber er efstur með 220 stig. Formúla 1 10. október 2010 12:17
Tvöfaldur sigur Red Bull í Japan Þjóðverjinn Sebastian Vettel og Ástralinn Mark Webber á Red Bull náðu fyrsta og öðru sæti í japanska Formúlu 1 kappakstrinum í dag. Spánverjinn Fernando Alonso á Ferrari varð þriðji, en Webber jók stigaforskot sitt í stigakeppni ökmanna úr 11 stigum í 14 með árangri sínum. Formúla 1 10. október 2010 09:09
Vettel stefnir á sigur á Suzuka Sebastian Vettel er fremstur á ráslínu á Suzuka brautinni á Red Bull, en kappaksturinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 05.30 í dag og verður endursýndur í hádeginu. Vettel vann sama mót í fyrra. Formúla 1 10. október 2010 04:53
Vettel fremstur á ráslínu í Japan Sebastian Vettel á Red Bull verður fremstur á ráslínu í japanska kappakstrinum sem verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsending kl. 05.30. Formúla 1 10. október 2010 02:32
Hamilton fær refsingu í Japan Lewis Hamilton fær fimm sæta refsingu eftir tímatökuna á Suzuka brautinni sem verður í nótt, fimm tímum á undan kappakstrinum. Tímatökunni var frestað s.l. nótt vegna vatnselgs á brautinni, en hún verður sýnd kl. 00.45 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 00.45 eftir miðnætti. Formúla 1 9. október 2010 13:37
Vettel: Rétt að fresta tímatökunni Sebastian Vettel var sáttur við að tímatökunni sem átti að vera á Suzuka brautinni í Japan í nótt var frestað vegna veðurs, en mikill vatnselgur var á brautinni. Hann var fljótastur á tveimur æfingum á föstudag og vann mótið á Suzuka í fyrra. Formúla 1 9. október 2010 12:43
Formúlu 1 tímatöku frestað til aðfaranætur sunnudags Tímatökunni fyrir Formúlu 1 mótið í Suzuka í Japan hefur verið frestað til aðfaranætur sunnudags og verður hún 5 klukkutímum áður en kappaksturinn hefst. Tímatakan verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport rétt eins og kappaksturinn. Formúla 1 9. október 2010 06:49
Úrhelli stöðvaði æfingu á Suzuka Aðeins tveir ökumenn óku Suzuka brautina á æfingum keppnisliða í nótt í Japan vegna úrhellisrigningar og óljóst er hvort hægt verður að framkvæma tímatökuna. Spáð er enn verra veðri og keppnislið verða að bíða eftir ákvörðun mótshaldara hvað þetta varðar. Formúla 1 9. október 2010 03:40
Button: Pressa á Webber í næstu mótum Heimsmeistarinn Jenson Button hjá McLaren er meðal fimm ökumanna sem á möguleika á meistaratitilinum í Formúlu 1. Hann keppir á Suzuka brautinni í Japan um helgina, en hann á einmitt japanska kærustu, fyrisætu sem heitir Jessica Mishibata. Formúla 1 8. október 2010 10:58
Schumacher elskar Suzuka Michael Schumacher er sáttur eftir æfingar næturinnar á Suzuka brautinni í Japan, en hann hefur unnið mót á brautinni oftar en nokkur annar eða sex sinnum. Hann var meðal átta fremstu á báðum æfingunum í nótt og á undan liðsfélaga sínum Nico Rosberg. Formúla 1 8. október 2010 10:00
Hamilton ber sig vel eftir óhapp Lewis Hamilton á McLaren ók útaf á æfingum á Suzuka brautinni í Japan í nótt og missti af dágóðum æfingatíma fyrir vikið. Mitt í baráttunni um meistaratitilinn við fjóra aðra ökumenn. Formúla 1 8. október 2010 09:34
Vettel fljótastur á tveimur æfingum Sebastian Vettel á Red Bull var fljótastur á tveimur Formúlu 1 æfingum á Suzuka brautinni í Japan í nótt. Hann er meðal fimm ökumanna sem berjast um meistaratitilinn í Formúlu 1, en liðsfélagi Vettels, Mark Webber varð annar á báðum æfingum. Formúla 1 8. október 2010 08:50
Briatore vill stuðning Red Bull við Webber í titilslagnum Flavio Briatore, fyrrum framkvæmdarstjóri Renault Formúlu 1 liðsins segist ekki skilja afhverju Red Bull liðið styðji ekki Mark Webber umfram Sebastian Vettel í titilslagnum í Formúlu1. Fimm ökumenn eiga möguleika á titlinum og Webber er efstur að stigum, ellefu stigum á undan Fernando Alonso hjá Ferrari. Formúla 1 7. október 2010 16:41
Alonso ætlar að pressa á Red Bull Spánverjinn Fernando Alonso sem hefur unnið tvö síðustu Formúlu 1 mót á Ferrari er staðráðinn í að pressa hressilega á Red Bull ökumennina Mark Webber og Sebastian Vettel, sem þykja líklegir til afreka á Suzuka brautinni í Japan um helgina. Formúla 1 7. október 2010 15:47
Formúlu 1 lið Lotus samdi við Red Bull Formúlu 1 lið Lotus hefur samið við Red Bull um tæknibúnað árið 2011 og fastlega er gert ráð fyrir að Lotus verði með Renault vélar á næsta ári. Formúla 1 6. október 2010 16:31
McLaren leggur allt í sölurnar fyrir lokasprettinn Jonathan Neale, framkvæmdarstjóri McLaren Formúlu 1 liðsins segir að liðið muni leggja allt í sölurnar hvað tæknilegu hliðina varðar fyrir síðustu mótin á þessu ári. Formúla 1 6. október 2010 14:19
Raikkönen ósáttur við Renault umræðu Finninn Kimi Raikkönen segist ekki ætla að ganga til liðs við Formúlu 1 lið Renault, en hann hefur verið orðaður við liðið síðustu vikur. Raikkönen hafði að sögn autosport.com samband við Renault eftir belgíska kappaksturinn og Eric Boullier framkvæmdarstjóri talaði frjálslega um málið að mati Raikkönen. Formúla 1 6. október 2010 13:56
Button: Allt galopið í titilslagnum Breski meistarinn Jenson Button hjá McLaren er meðal fimm ökumanna sem á möguleika á meistaratitlinum í Formúlu 1, en keppt verður á Suzuka brautinni í Japan um helgina. Brautin er í uppáhaldi meðal margra ökumanna og er eina áttulagaða brautin á keppnistímabilinu. Formúla 1 5. október 2010 17:16
20 ára Mexíkani ráðinn til Sauber Sergio Perez frá Mexíkó hefur verið ráðinn ökumaður Sauber liðsins og ekur með Kamui Kobayashi frá Japan á næsta ári með liðinu. Formúla 1 4. október 2010 15:02
Alonso mætir óttalaus í lokaslaginn Spánverjinn Fernando Alonso hjá Ferrari hefur unnið tvö síðustu Formúlu 1 mót og er í öðru sæti í stigamóti ökumanna á eftir Mark Webber. Hann segir vandasamt verk framundan, en fjögur mót eru eftir í lokaslag fimm ökumanna um titilinn. Formúla 1 4. október 2010 13:24
Schumacher spenntur fyrir Suzuka Michael Schumacher er sexfaldur sigurvegari á Suzuka brautinni í Japan, sem verður notuð um næstu helgi. Mótið er eitt af fjórum mótum í lokaslagnum um Formúlu 1 meistaratitilinn, þar sem fimm ökumenn keppa um titilinn. Formúla 1 4. október 2010 12:59
Ferrari vill að Massa hjálpi Alonso Luca di Montezemolo forseti Ferrari vill að Felipe Massa liðsinni Fernando Alonso og Ferrari í sókninni að meistaratitilinum. Alonso er í öðru sæti í stigamótinu, á meðan Massa er út úr myndinni hvað titil varðar. Formúla 1 1. október 2010 12:07
Brawn: Sjáum réttan Schumacher 2011 Ross Brawn, yfirmaður Mercedes liðsins segir að Michael Shcumacher verði meðal keppenda í Formúlu 1 árið 2011, þrátt fyrir mikla fjölmiðlaumræðu um slakan árangur hans á þessu ári. Formúla 1 30. september 2010 16:24
Hamilton enn með titilvon í brjósti Bretinn Lewis Hamilton hjá McLaren er ekki búinn að gefa upp vonina um Formúlu 1 meistaratitil á þessu ári, þó hann hafi verið svekktur að falla úr leik í öðru mótinu í röð á sunnudaginn í Singapúr. Formúla 1 29. september 2010 15:34
Renault vill viðræður við Raikkönen Eric Boullier, yfirmaður Renault liðsins í Formúlu 1 vill hitta Kimi Raikkönen að máli til að kanna hve áhugasamur hann er um endurkomu í kappakstur. Raikkönen var sagt upp hjá Ferrari, til að liðið kæmi Fernando Alonso að, þegar eitt ár var eftir af samningi hans. Hann hefur keppt í rallakstri á þessu ári með Citroen. Formúla 1 28. september 2010 10:26