Renault hyggst keppa til sigurs París var vettvangur formlegrar frumsýningar Renault Formúlu 1 liðsins í dag: Flavio Briatore kynnti nýju ökumenn sína til sögunnar, þá Fernando Alonso og Nelson Piquet. Formúla 1 31. janúar 2008 14:46
600 blaðamenn á frumsýningu Renault Renault frumsýnir formlega nýjan keppnisbíl sinn í París í dag, en í gær gafst kostendum og velunnurum liðsins færi á að sjá bílinn með eigin augum. Formúla 1 31. janúar 2008 09:56
Stöðugar framfarir markmið Honda Honda liðið frumsýndi keppnisbíl sinn í höfuðstöðvum liðsins í Bretlandi í hádeginu. Ross Brawn, nýr framkvæmdastjóri liðsins fór fyrir sínum mönnum, en ökumenn liðsins verða Jenson Button og Rubens Barrichello. Formúla 1 29. janúar 2008 12:41
McLaren ökumönnum ekki mismunað Þrátt fyrir mikla orrahríð í fyrra á milli Lewis Hamilton og Fernando Alonso, þá munu Hamilton og Heikki Kovalainen vera jafn réttháir innan McLaren liðsins á þessu ári. Formúla 1 28. janúar 2008 14:21
Hamilton baunar á Alonso Lewis Hamilton sendi fyrrum félaga sínum Fernando Alonso hjá McLaren litla pillu í viðtali í dag þegar hann var spurður út í samband sitt við Spánverjann. Formúla 1 24. janúar 2008 19:13
BMW í vanda Það hefur sýnt sig að BMW liðið hefur ekki verið á því flugi sem liðið ætlaði eftir að hafa frumsýnt bíla sína. Liðsmenn BMW voru ekki meðal fremstu manna á Valencia brautinni í dag, þar sem Finnarnir Kimi Raikkönen á Ferrari og Heikki Kovalainen á McLaren voru fljótastir og nýliðinn Kazuki Nakajima á Williams þriðji. Formúla 1 24. janúar 2008 18:10
Nýja Hondan frumsýnd í Valencia Keppnislið Honda mætti með nýjasta farkost sinn á æfingar í Valencia á Spáni í dag. Bíllinn verður formlega frumsýndur 29. janúar í Bretlandi. Formúla 1 23. janúar 2008 16:00
Renault og Williams frumsýndu á Spáni Bæði Renault og Williams nýttu sér Valencia brautina á Spáni til að frumsýna og frumkeyra ný ökutæki, sem notuð verða á næsta keppnistímabili. Formúla 1 21. janúar 2008 14:13
Hamilton framlengir við McLaren McLaren staðfesti í dag að Lewis Hamilton hefur framlengt samning sinn við McLaren um fimm ár. Hann verður hjá liðinu til 2012. Formúla 1 18. janúar 2008 14:43
Hamilton ánægður með nýjan farkost Bretinn Lewis Hamilton segir nýjan McLaren sem hann hefur prófað á Jerez brautinni síðustu daga vænan farkost. Hamilton sló hressilega í gegn á síðasta ári, þegar hann keppti í fyrsta skipti í Formúlu 1. Minnstu munaði að hann hreppti meistaratitilinn, en hann varð einu stigi á eftir Kimi Raikkönen. Formúla 1 17. janúar 2008 17:04
Frumsýning hjá Red Bull Red Bull frumsýndi í dag 2008 bíl sinn á Jerez brautinni á Spáni og kynnti Mark Webber og David Coulhard sem ökumenn sína. Coulthard er aldursforsetinn í Formúlu 1 og þrautseigur, 37 ára gamall ökuþór frá Skotlandi. Webber er frá Ástralíu. Formúla 1 16. janúar 2008 13:52
Alonso byrjaður með Renault Spænski heimsmeistarinn ók á sinni fyrstu æfingu með Renault í dag á Jerez brautinni á Spáni. Hann gerði sér lítið fyrir og náði besta tíma á æfingunni. Hann ók í fyrsta skipti keppnisbíl án spólvarnar og sló við nýjustu ökutækjum McLaren og Ferrari á 2007 Renault. Formúla 1 16. janúar 2008 09:50
Nýr BMW F1 08 frumsýndur BMW liðið frumsýndi í dag nýjan keppnisbíl og bíllinn er þriðja útgáfa Formúlu 1 bíls sem fyrirtækið smíðar, eftir að fyrirtækið keypti liðið af Peter Sauber. Nick Heidfeld og Robert Kubica verða ökumenn BMW, rétt eins og í fyrra. Formúla 1 14. janúar 2008 12:46
Baugur neitar orðrómi um kaup á Williams Forsvarsmenn Baugs hafa í samtali við Vísi vísað þeim fréttum á bug að félagið hafi keypt þriðjungshlut í keppnisliði Williams í Formúlunni. Formúla 1 11. janúar 2008 12:36
Baugur sagt hafa keypt þriðjung í keppnisliði Williams Á vefsíðu International Herald Tribune heldur Brad Spurgeon blaðamaður því fram á bloggi sínu að keppnislið Williams í Formúlunni hafi selt þriðjungshlut í liðinu til Baugs. Formúla 1 11. janúar 2008 12:12
Hamilton sáttur við nýja bílinn Lewis Hamilton segist nokkuð hrifinn af nýja keppnisbílnum úr smiðju McLaren liðsins í Formúlu 1 sem fengið hefur heitið MP4-23. Hamilton og nýr félagi hans Hekki Kovalainen hafa nú reynsluekið bílnum í fyrsta sinn. Formúla 1 10. janúar 2008 17:30
Meistarinn hefur trú á Toyota Heimsmeistarinn í GP 2 mótaröðinni, Þjóðverjinn Timo Glock kveðst hafa mikla trú á góður brautargengi liðsins í Formúlu 1 á þessu ári. Formúla 1 10. janúar 2008 14:02
Fisichella ráðinn til Force India Ítalinn Giancarlo Fisichella hefur verið ráðinn ökumaður Force India liðsins, sem er í eigu Indverjans Vijay Mallay. Formúla 1 10. janúar 2008 09:42
Ferrari skíðaveisla eftir frumsýningu Stefano Domenicali, nýr framkvæmdarstjóri keppnisliðs Ferrari var meðal liðsmanna þegar Ferrari hélt sína árlegu skíðaveislu á Ítalíu í dag. Þangað mæta helstu liðsmenn Ferrari og sægur fjölmiðlamanna. Formúla 1 9. janúar 2008 13:31
Hamilton og Kovalainen semur vel Það olli McLaren miklum vandræðum í fyrra hve illa Fernando Alonso og Lewis Hamilton samdi á lokasprettinum. Formúla 1 8. janúar 2008 11:17
McLaren stefnir á titilinn á nýjum bíl McLaren Mercedes Formúlu 1 liðið frumsýndi nýtt keppnistæki sitt í Stuttgart í dag að viðstöddu fjölmenni. Formúla 1 7. janúar 2008 15:50
Ferrari-menn tortryggnir Það kom mörgum á óvart hve fátæklegt myndefni barst frá frumsýningu Ferrari í dag. Bæði myndir og sjónvarpsefni var af skornum skammti. Formúla 1 6. janúar 2008 20:36
Ferrari frumsýndi nýja bílinn í dag Ferrari frumsýndi í dag nýjan keppnisfák sinn í Formúlu 1, sem hannaður er af Ítalanum Aldo Costa. Kimi Raikkönen og Felipe Massa munu aka bílnum í þeim 18 Formúlu 1 mótum sem eru á dagskrá í ar, en mótin verða öll í beinni útsendingu á Sýn. Formúla 1 6. janúar 2008 14:29
Gunnlaugur verður með Formúluna á Sýn Sjónvarpsstöðin Sýn hefur senn beinar útsendingar frá Formúlu 1 kappakstrinum. Gunnlaugur Rögnvaldsson hefur verið ráðinn umsjónarmaður útsendinganna en hann hefur sinnt Formúlu 1 umfjöllun á Íslandi á þriðja áratug, ýmist fyrir dagblöð, tímarit eða sjónvarp. Formúla 1 3. janúar 2008 22:24
Raikkönen sniðgenginn í Finnlandi Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen varð í ár fyrsti Finninn til að verða heimsmeistari í Formúlu 1 síðan árið 1999. Þessi frábæri árangur skilaði honum þó aðeins í þriðja sæti í kjörinu á íþróttamanni ársins í Finnlandi. Formúla 1 19. desember 2007 16:27
Njósnamálinu í Formúlu 1 lokið Njósnamálinu ljóta í Formúlu 1 lauk formlega í dag þegar yfirmenn Alþjóða Akstursíþróttasambandsins tóku afsökunarbeiðnir og fögur loforð McLaren góð og gild. McLaren fær því að keppa á næsta móti og óvissu í kring um það er lokið. Formúla 1 18. desember 2007 14:36
Hamilton tekinn fyrir hraðakstur Breski formúluökuþórinn Lewis Hamilton var tekinn fyrir hraðakstur í Frakklandi á sunnudaginn þar sem hann ók Benz bifreið sinni tæplega 200 kílómetra hraða á klukkustund. Leyfilegur hámarkshraði á hraðbrautinni var 130 kílómetrar, en Hamilton missir prófið í einn mánuð og þarf að greiða sekt. Formúla 1 18. desember 2007 14:21
Kovalainen genginn í raðir McLaren Finnski ökuþórinn Heikki Kovalainen gerði í dag langtímasamning við lið McLaren í Formúlu 1 eftir að hafa slegið í gegn með liði Renault á síðasta tímabili. Kovalainen verður aðalökumaður liðsins ásamt Lewis Hamilton. Formúla 1 14. desember 2007 16:54
McLaren biðst afsökunar Forráðamenn McLaren liðsins í Formúlu 1 hafa nú viðurkennt að stolin gögn þess frá Ferrari liðinu hafi verið áhrifameiri í þróunarvinnu þess en upphaflega var áætlað. McLaren hefur beiðst afsökunar á þessu í bréfi til alþjóða akstursíþróttasambandsins. Formúla 1 13. desember 2007 19:55
Alonso aftur til Renault Fernando Alonso greindi frá því í dag að hann muni ganga til liðs við Renault á nýjan leik. Formúla 1 10. desember 2007 15:26