Alguersuari stefnir á vera meðal tíu fremstu á heimavelli Spánverjinn Jamie Alguersuari er á heimavelli á Katalóníu Formúlu 1 brautinni á Spáni um helgina, rétt eins og landi hans Fernando Alonso, sem er ætíð hylltur af heimamönnum. Alguersuari ekur með Torro Rosso og fær trúlega ekki sömu athygli og Alonso sem er í toppslagnum ár frá ári, en Alguersuari hefur keppt frá árinu 2009 í Formúlu 1. Formúla 1 19. maí 2011 16:48
Ferrari framlengdi samning við Alonso til ársloka 2016 Ferrari liðið hefur framlengt samning sinn við Fernando Alonso til ársloka 2016, samkvæmt fréttatilkynningu frá Ferrari liðinu, en fyrri samningurinn var til 2012 samkvæmt frétt á autosport.com Formúla 1 19. maí 2011 15:33
Webber vill komast á efsta þrep verðlaunapallsins á Spáni á ný Mark Webber vann spænska kappaksturinn á Katalóníu brautinni á Spáni í fyrra og keppir á ný með Red Bull um helgina ásamt forystumanni stigamótsins, Sebastian Vettel. Webber var fremstur á ráslínu á brautinni fyrir kappaksturinn í fyrra og nýtti það vel, en síðustu 10 sigurvegarar mótins á Spáni hafa verið fremstir á ráslínu í upphafi kappakstur Formúla 1 19. maí 2011 14:43
Paul di Resta: Verðum að taka framfaraskref Formúlu 1 nýliðinn Paul di Resta hlakkar til mótsins á Spáni um helgina, sem fer fram á Katalóníu brautinni sem er í 35 km fjarlægð frá Barcelona, höfuðborg Katalóníu héraðsins. Di Resta og Adrian Sutil aka með Force India á braut sem var notuð til æfinga í vetur og hefur verið notuð frá árinu 1991. Formúla 1 19. maí 2011 14:07
Annasamur tími framundan hjá nýliðanum Belginn Jerome d'Ambrosio hjá Virgin Formúlu 1 liðinu telur að næstu næstu tvær vikur verði spennandi í augum áhorfenda, en keppt verður á Spáni um næstu helgi og í Mónakó helgina eftir. Hann hóf að keppa í Formúlu 1 á þessu keppnistímabili og ekur með Timo Glock í liði Virgin sem er að hluta til í eigu Marussia bílaframleiðandans í Rússlandi. Formúla 1 18. maí 2011 15:10
Heidfeld telur Renault geta keppt við toppliðin Formúlu 1 ökumaðurinn Nick Heidfeld hjá Renault telur að ef lið sitt nær betri árangri í tímatökum, þá geti það keppt við liðin sem eru ofar að stigum, en það eru Red Bull, McLaren og Ferrari. Heidfeld varð sjöundi í síðustu keppni, sem var í Tyrklandi. Hann er með 21 stig í stigakeppni ökumanna eins og liðsfélaginn Vitaly Petrov, en sex ökumenn eru með fleiri stig. Þeir Renault félagar keppa á Spáni um helgina. Formúla 1 18. maí 2011 13:45
Reglubreyting FIA gæti breytt gangi mála í Formúlu 1 FIA hefur ákveðið að breyta reglum um útbúnað Formúlu 1 bíla til að sporna við þróun sem bílasambandið telur ekki góða til eftirbreytni í Formúlu 1 mótum ársins. FIA hefur sent keppnisliðum skilaboð vegna málsins, en keppt verður á Katalóníu brautinni, sem er nærri Barcelona á Spáni um næstu helgi Formúla 1 17. maí 2011 19:26
Barrichello vongóður um framfaraskref Williams liðið hefur ekki riðið feitum hesti frá mótum ársins, en reynsluboltinn Rubens Barrichello sem ekur með liðinu ásamt nýliðanum Pastor Maldonado vonast eftir að Williams bíllinn verði betri á Katalóniu brautinni á Spáni um næstu helgi, en í fyrstu fjórum mótum ársins. Formúla 1 17. maí 2011 18:23
Sauber með endurbættan bíl á Spáni Sauber liðið frá Sviss mætir með verulega endurbættan bíl í Formúlu 1 mótið á Spáni um næstu helgi. Keppt verður á Katalóníu brautinni sem er nærri Barcleona. Sauber hefur náð í átta stig í fyrstu fjórum mótunum og Kamui Kobayashi náði þeim árangri að ná í stig í síðasta móti þó hann ræsti af stað úr síðsta sæti, eftir að bíll hans bilaði í tímatökunni. Formúla 1 17. maí 2011 16:26
Sutil á yfir höfði sér ákæru vegna líkamsárásar Formúlu 1 ökumaðurinn, Adrian Sutil á yfir höfði sér ákæru fyrir líkamsáras, sem er sögð hafa verið eftir kappaksturinn í Kína á dögunum. Atvikið varð á næturklúbbi í Sjanghæ, en engar opinberar skýringar hafa verið gefnar á atvikinu samkvæmt fréttum á autosport.com í dag. Sutil er meðal keppenda í Formúlu 1 mótinu á Spáni um næstu helgi. Formúla 1 16. maí 2011 21:13
Button: Lærðum að vinna sem lið í síðustu keppni Jenson Button telur að McLaren hafi lært sína lexíu varðandi gerð keppnisáætlanna í síðasta móti, en aðferðafræðin hefur breyst nokkuð útaf nýjum dekkjum sem notuð eru á þessu keppnistímabili. McLaren keppir á Spáni um næstu helgi. Formúla 1 16. maí 2011 15:28
Spennandi tímar framundan hjá Lotus að mati nýja tæknistjórans Mark Smith hefur verið ráðinn tæknistjóri hjá Lotus liðinu, sem keppir um næstu helgi á Spáni í fimmta Formúlu 1 móti ársins. Smith hefur m.a. unnið með Jordan, Renault, Red Bull og Force India og hefur verið í sigurliðum af þeim sökum. Ráðning hans er fengur fyrir liðið og ökumennina Heikki Kovalainen og Jarno Trulli. Formúla 1 16. maí 2011 14:40
Schumacher sigursælastur á Spáni Fimmta umferð Formúlu 1 meistaramótsins er um aðra helgi á Spáni og Mercedes liðið ætlar sér góðan árangur, eftir að liðinu óx nokkuð ásmeginn í síðustu keppni. Michale Schumacher hefur oftast unnið á brautinni, eða sex sinnum en hann ekur Mercedes. Formúla 1 13. maí 2011 16:10
Barrichello: Williams vantar leiðtoga Rubens Barrichello hjá Williams er reynslumesti ökumaðurinn í Formúlu 1 og hefur ekið í flestum mótum. Hann telur að lið sitt skorti leiðtoga sem tekur af skarið varðandi starfsemi innan liðsins. Hann vann m.a. í mörg ár með Ferrari á bestu árum Michael Schumachers. Williams hefur ekki unnið meistaratitla síðan 1997. Formúla 1 12. maí 2011 11:52
Webber mun berjast við Vettel í mótum Christian Horner, yfirmaður Red Bull segir að liðsmenn hans, Sebastian Vettel og Mark Webber muni takast á um sigra í mótum og tvö næstu mótssvæði hafi skilað Webber betri árangri en Vettel í fyrra. Keppt verður á Spáni um aðra helgi og Mónakó viku síðar. Vettel hefur unnið þrjú af fyrstu fjórum mótum ársins, en Lewis Hamilton eitt. Formúla 1 11. maí 2011 09:48
Mercedes styður Schumacher þrátt fyrir brösótt gengi Nobert Haug, yfirmaður Mercedes í akstursíþróttum segir að Mercedes styðji veru Michael Schumacher sem ökumanns liðsins í Formúlu 1 heilshugar, þó gengi hans hafi ekki verið sem best. Hann gerði þriggja ára samning við liðið í fyrra. Honum gekk heldur illa í mótinu í Tyrklandi á sunnudaginn. Formúla 1 10. maí 2011 22:01
Horner: Höfum ekki efni á að vera værukærir Yfirmaður Red Bull Formúlu 1 liðisins, Christian Horner segir að lið sitt sé ekki ósigrandi. Sebastian Vettel hefur unnið þrjú mót af fjórum á keppnistímabilinu og hann er efstur í stigamóti ökumanna og Red Bull í stigamóti bílasmiða. Formúla 1 9. maí 2011 14:04
Mistök Hamilton reyndust dýrkeypt Lewis Hamilton er enn í öðru sæti í stigamótinu ökumanna, þó honm hafi gengið brösótt í fjórða móti ársins á Istanbúl Park brautinni í Tyrklandi í dag. Hann var fjórði á ráslínu og lauk keppni í sama sæti, eftir eigin mistök og mistök McLaren í þjónustuhléi. Formúla 1 8. maí 2011 19:27
Vettel: Höfum tekið framfaraskref og lært okkar lexíu Sebastian Vettel er kominn með 34 stiga forskot á Lewis Hamilton í stigamóti Formúlu 1 ökumanna, eftir þriðja sigurinn í fjórum mótum ársins. Hann vann öruggan sigur á Istanbúl Park brautinni í Tyrklandi í dag á Red Bull. Formúla 1 8. maí 2011 15:40
Öruggur sigur og örugg forysta hjá Vettel Heimsmeistarinn í formúlu eitt í fyrra, Þjóðverjinn Sebastian Vettel hjá Red Bull, er hreinlega að stinga af í formúlunni en hann vann tyrkneska kappaksturinn örugglega í dag. Formúla 1 8. maí 2011 13:38
Rosberg vill skáka Webber í rásmarkinu Nico Rosberg hjá Mercedes er þriðji á ráslínu í Formúlu 1 mótinu á Istanbúl brautinni í Tyrklandi í dag, á eftir Red Bull ökumönnunum Sebastian Vettel og Mark Webber. Hann vill komast framúr Webber strax eftir ræsingu mótsins, en bein útsending frá keppninni hefst kl. 11.30 á Stöð 2 Sport í dag. Formúla 1 8. maí 2011 09:44
Vettel fannst skrítinn tilfinning að horfa á lokasprett tímatökunnar Sebastian Vettel hjá Red Bull er fremstur á ráslínu í fjórða skipti í fjórum mótum á þessu keppnistímabili. Hann náði besta tíma í tímatökum fyrir tyrkneska kappaksturinn sem er á morgun í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11.30. Formúla 1 7. maí 2011 15:11
Vettel fremstur á ráslínu fjórða skipti í röð Formúlu 1 ökumaðurinn Sebastian Vettel sá við öllum keppinautum sínum í tímatökum á Istanbúl Park brautinni í Tyrklandi í dag. Hann varð á undan Mark Webber liðsfélaga sínum hjá Red Bull, en Nico Rosberg á Mercedes varð þriðji. Formúla 1 7. maí 2011 12:55
Schumacher í hörkuslag við Vettel um besta tíma á lokaæfingunni Sebastian Vettel á Red Bull rétt marði að vera á udan Michael Schumacher á Mercedes á lokæfingu keppnisliða á Istanbúl Park brautinni í Tyrklandi fyrir tímatökuna sem er kl. 10.45 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í dag. Formúla 1 7. maí 2011 09:21
Button örlítið fljótari en Rosberg á æfingu - Vettel í vandræðum Jenson Button á McLaren náði besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Istanbúl Park brautinni í Tyrklandi í dag. Hann varð á undan Nico Rosberg á Mercedes, en Lewis Hamilton á McLaren var með þriðja besta tíma og Michael Schumacher á Mercedes fjórði. Formúla 1 6. maí 2011 12:47
Alonso fljótastur í Tyrklandi, en meistarin Vettel ók útaf brautinni Rigning var á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á Istanbúl Park brautinni í Tyrklandi í morgun, þegar undirbúningur keppenda fyrir fjórða Formúlu 1 mót ársins hófst fyrir alvöru. Fernando Alonso á Ferrari náði besta tíma við erfiðar aðstæður, en Nico Rosberg á Mercedes varð annar 1.402 sekúndu á eftir Vettel og liðsfélagi Rosbergs, Michael Schumacher þriðji 1.462 á eftir Vettel. Formúla 1 6. maí 2011 08:50
Vettel: Það er enginn ósigrandi Sebastian Vettel, heimsmeistarinn og forystumaður stigamótsins í Formúlu 1 í ár segir Red Bull verði að læra af mistökum sem voru gerð í síðustu keppni í Kína. Lewis Hamilton vann mótið í Sjanghæ í Kína á dögunum, en Vettel hafði verið fremstur á ráslínu. Formúla 1 5. maí 2011 17:28
Massa: Mikilvægt að taka framfaraskref Felipe Massa vonar að nýir fram og afturvængir sem Ferrari er mætt með á Formúlu 1 mótssvæðið í Tyrklandi muni bæta gengi liðsins, en Ferrari hefur ekki unnið mót á þessu ári. Mótið í Tyrklandi er það fjórða á keppnistímabilinu og er keppt á Istabúl Park brautinni, en Massa hefur þrívegis unnið mótið. Keppt hefur verið á brautinni í sex skipti. Formúla 1 5. maí 2011 15:23
Hamilton mætir varfærinn til keppni Lewis Hamilton hjá McLaren keppir í Formúlu 1 í Tyrklandi um helgina, en hann vann síðustu keppni sem var í Kína, auk þess sem hann vann mótið í Tyrklandi í fyrra. Hamilton er í öðru sæti á eftir Sebastian Vettel hjá Red Bull í stigamóti ökumanna. Formúla 1 5. maí 2011 14:38
Glock: Ein besta og erfiðasta brautin í Tyrklandi Virgin liðið í Bretlandi sem er að hluta til í eigu Marussia sportbílaframleiðandans í Rússlandi mætir með verulega endurbættan bíl hvað yfirbygginguna varðar fyrir Þjóðverjann Timo Glock í mótið í Tyrklandi um helgina. Belginn Jerome d'Ambrosio verður hinsvegar að bíða til mótsins á Spáni til að fá samskonar útfærslu af Virgin bílnum. Formúla 1 4. maí 2011 14:07