Tveir mánuðir í Aron Elís Töluvert er í að Aron Elís Þrándarson stígi inn á völlinn með Víkingum og ljóst að hann missir af upphafi Íslandsmótsins. Þó fór betur en áhorfðist. Íslenski boltinn 15. mars 2024 14:01
Hákon þarf að eiga við Aston Villa Hákon Arnar Haraldsson og félagar í franska liðinu Lille drógust í dag gegn enska liðinu Aston Villa í átta liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta. Fótbolti 15. mars 2024 13:17
„Þetta er hneisa hjá KSÍ“ Hlaðvarp íþróttadeildar, Besta sætið, rennir yfir fréttir vikunnar venju samkvæmt og voru málefni Gylfa Sig, Pavels Ermolinskij og íslenska landsliðsins í brennidepli. Fótbolti 15. mars 2024 13:00
„Kunnum að reikna á Hlíðarenda og þetta er vel innan allra marka“ Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, fagnar komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til félagsins. Hann segir hafa verið snúið að ganga frá samningum en þó ekki að fjármagna samninginn sem sé innan velsæmismarka. Íslenski boltinn 15. mars 2024 12:31
Liverpool fer til Ítalíu Dregið var í átta liða úrslit og undanúrslit Evrópudeildar UEFA í fótbolta í dag. Á meðal liða í keppninni er Liverpool sem mætir Atalanta frá Ítalíu í undanúrslitunum. Fótbolti 15. mars 2024 12:13
Man. City mætir Real og Arsenal mætir Bayern Dregið var í átta liða úrslit og undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í hádeginu í dag. Ríkjandi Evrópumeistarar Manchester City mæta sigursælasta liði keppninnar, Real Madrid. Fótbolti 15. mars 2024 11:20
Sex dagar í EM-umspil: Aftur íslensk þjóðhátíð í München? Hvað ef að íslenska karlalandsliðið í fótbolta næði að vinna EM-umspilið og tryggja sér farmiðann til Þýskalands í sumar? Dagskráin liggur fyrir. Fótbolti 15. mars 2024 11:00
Fagnar komu Gylfa: „Auðvitað reyndum við að fá hann“ Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, staðfestir að hans menn hafi reynt sitt ítrasta að fá Gylfa Þór Sigurðsson til félagsins en þurftu að játa sig sigraða í baráttunni við Val. Hann fagnar komu Gylfa í Bestu deildina, þó það sé til mótherja. Íslenski boltinn 15. mars 2024 10:42
Vilja vinna alla titla fyrir fráfarandi Klopp Liverpool er komið í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar í knattspyrnu eftir stórsigur á Sparta Prag á Anfield í gær. Hægri bakvörðurinn Conor Bradley segir leikmenn liðsins vilja „vinna alla titla sem í boði eru,“ fyrir fráfarandi þjálfara félagsins, Jürgen Klopp. Enski boltinn 15. mars 2024 09:31
Kröfurnar um titil minnki klárlega ekki með innkomu Gylfa Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, er þakklátur fólkinu í knattspyrnudeild félagsins fyrir að hafa landað Gylfa Þór Sigurðssyni sem skrifaði undir tveggja ára samning í gær. Gylfi sé á ákveðinni persónulegri vegferð, vilji á sama tíma vinna titla með Val og segir Arnar að kröfurnar um að hann fari að skila inn titlum sem þjálfari liðsins minnki klárlega ekki með innkomu Gylfa Þórs. Íslenski boltinn 15. mars 2024 09:16
Stefnir í að enska úrvalsdeildin fái fimm Meistaradeildarsæti Það stefnir allt í það að fimm lið úr ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu fái þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Verður það fyrsta tímabil þessarar bestu deildar Evrópu með nýju sniði. Enski boltinn 15. mars 2024 09:00
Lék lengi á Englandi en er nú framkvæmdastjóri landsliðs sem hefur aldrei spilað Aðdáendur enskrar knattspyrnu muna ef til vill eftir Dave Kitson. Hann stóð upp úr þar sem um er að ræða einkar hávaxinn framherja með eldrautt hár ásamt því að hann spilaði með Íslendingaliðum. Kitson er nú tekinn við sem framkvæmdastjóri hjá smáríki í Eyjaálfu sem hefur aldrei spilað landsleik. Fótbolti 15. mars 2024 08:30
Sjötti fyrrum Íþróttamaður ársins sem kemur í Val Valsmenn búa ekki bara til Íþróttamenn ársins því þeir fá þá einnig til að ganga til liðs við félagið. Sport 15. mars 2024 07:01
Fótboltamaður bað unnustans inn á fótboltavelli Ástralski knattspyrnumaðurinn Joshua Cavallo vakti heimsathygli á sínum tíma þegar hann kom út úr skápnum á meðan hann var enn að spila. Fótbolti 14. mars 2024 23:30
Gylfi segir það gríðarleg vonbrigði að vera ekki valinn í landsliðið Gylfi Þór Sigurðsson er mjög svekktur með ákvörðun landsliðsþjálfarans Age Hareide um að velja hann ekki í hópinn fyrir umspilsleikinn á móti Ísrael en landsliðshópurinn verður tilkynntur á morgun. Fótbolti 14. mars 2024 23:04
„Það sem maður er spenntastur fyrir en á sama tíma óttast hvað mest“ Félagsskipti Gylfa Þórs Sigurðssonar eru klárlega stærstu félagsskiptin í sögu íslenska boltans að mati Baldurs Sigurðssonar, sérfræðings Stöðvar 2 Sport um Bestu deildina. Lyftistöng fyrir félagið og íslenska boltann í heild sinni. Hvaða Gylfa Þór erum við að fara sjá inn á vellinum? Og hversu mikið fáum við að sjá til hans? Íslenski boltinn 14. mars 2024 23:01
Náðist loksins þegar hann fór í æfingaferð til Dúbaí Æfingaferð með rússneska félaginu Spartak Moskvu reyndist hollenska fótboltamanninum Quincy Promes dýrkeypt. Fótbolti 14. mars 2024 22:30
Leverkusen komst áfram eftir tvö mörk í uppbótartíma Aftur lentu lærisveinar Xabi Alonso í Bayer Leverkusen 2-0 undir á móti Qarabag í Evrópudeildinni en nú náði þýska toppliðið að snúa leiknum við í uppbótartíma og tryggja sér 3-2 sigur. Fótbolti 14. mars 2024 22:08
Hákon lagði upp mark þegar Lille fór áfram en Kristian og Ajax eru úr leik Hákon Arnar Haraldsson og félagar í franska liðinu Lille komust í kvöld í átta liða úrslit Sambandsdeildarinnar en Íslendingaliðið Ajax steinlá á sama tíma á móti Aston Villa. Fótbolti 14. mars 2024 21:55
Stórskotahríð Liverpool og ellefu mörk í tveimur leikjum Liverpool átti ekki í miklum vandræðum með að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar eftir 6-1 sigur á Slavia Prag í seinni leik liðanna á Anfield í kvöld. Fótbolti 14. mars 2024 21:47
Guðrún Elísabet með tvö mörk í sigri á Blikum Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir skoraði tvö mörk þegar Valur vann 3-2 sigur á Breiðabliki i Lengjubikar kvenna í kvöld en með sigrinum tryggðu Valskonur sér sigur í riðlinum. Fótbolti 14. mars 2024 21:22
Fimm marka kvöld hjá West Ham West Ham, AC Milan, Marseille og Benfica eru öll komin áfram í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir seinni leik sína í sextán liða úrslitum í kvöld. Fótbolti 14. mars 2024 19:49
„Sjaldan liðið eins vel eftir tapleik“ Breiðablik er komið í úrslitaleik Lengjubikarsins eftir eins marks sigur á Þór í Boganum á Akureyri í dag. Sigurmarkið kom ekki fyrr en á sjöundu mínútu uppbótartíma og var þar Aron Bjarnason að verki. Fótbolti 14. mars 2024 19:27
Umfjöllun og viðtöl: Aron skaut Blikum í úrslitaleikinn Breiðablik tryggði sér sæti í úrslitum Lengjubikarsins eftir 1-0 sigur á Þór í Boganum á Akureyri í dag. Íslenski boltinn 14. mars 2024 18:30
Íslendingafélag í Noregi samþykkti að sniðganga HM í Sádi-Arabíu Norska fótboltafélagið Fredrikstad vill berjast fyrir því að Norðmenn sniðgangi heimsmeistaramótið í fótbolta sem verður haldið eftir tíu ár. Fótbolti 14. mars 2024 17:30
Neitar að spila fyrir enska landsliðið Gareth Southgate vildi velja Ben White í enska landsliðshópinn en Arsenal maðurinn vill ekki spila með landsliðinu. Enski boltinn 14. mars 2024 16:45
Ársmiðarnir rjúka út: „Það er allt brjálað“ Árskort á heimaleiki hjá Val í sumar rjúka út í ljósi nýjustu tíðinda. Gylfi Þór Sigurðsson samdi við félagið í morgun. Íslenski boltinn 14. mars 2024 16:16
Arnar segir Gylfa á allt öðrum stað: „Það þarf að beisla hann niður“ Eins og vel hefur verið fjallað um í dag er Gylfi Þór Sigurðsson orðinn leikmaður Vals. Eftir meiðslahrjáðar vikur er hann að komast á fullt aftur í boltanum. Arnar Grétarsson, þjálfari Vals segir Gylfa líta vel út. Það þurfi þó að beisla hann niður og um leið halda vel utan um hann. Íslenski boltinn 14. mars 2024 15:32
Belgar verða í Tinnatreyjum á EM Það styttist í Evrópumót karla í fótbolta í sumar og knattspyrnusambönd farin að kynna búninga sína fyrir komandi mót. Belgar munu heiðra eina frægustu sögupersónu í sögu lands og þjóðar. Fótbolti 14. mars 2024 15:01
Sun og Mail ljúga því að Gylfi hafi verið rekinn Fréttir af því að Gylfi Þór Sigurðsson sé mættur í íslenska boltann hafa víða ratað í erlenda fjölmiðla en þeir fara misvel með sannleikann. Íslenski boltinn 14. mars 2024 14:20