Thuram kleip Savic í punginn: „Fannst þetta skrýtið“ Stefan Savic hefur upplifað ýmislegt á löngum ferli en brá heldur betur í brún þegar hann var klipinn í punginn, í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld. Fótbolti 14. mars 2024 14:01
Gylfa hafi verið tilkynnt að hann sé ekki í landsliðshópnum Gylfi Þór Sigurðsson fékk að vita á dögunum að hann verði ekki í landsliðshópi Íslands sem tilkynntur verður á morgun ef marka má fyrirliða Fylkis. Gylfi æfði með Fylkismönnum á Spáni í síðustu viku. Íslenski boltinn 14. mars 2024 13:30
Á óvænt tengsl við Mourinho og segir fallega sögu Portúgalinn José Mourinho nýtur lífsins utan þjálfunar eftir að honum var sagt upp störfum hjá Roma fyrr á þessu ári og bíður nýs tækifæris. Hann hafði góð áhrif á ungan mann í Skotlandi sem þekkti Mourinho ekki þegar þeir mættust á ný í ensku úrvalsdeildinni 15 árum síðar. Enski boltinn 14. mars 2024 12:30
De Bruyne ekki í belgíska hópnum Kevin De Bruyne, miðjumaður meistaraliðs Manchester City, verður ekki með belgíska landsliðinu í komandi leikjum í þessum mánuði. Fótbolti 14. mars 2024 11:45
Sjö dagar í EM-umspil: Hverjir eiga að koma Íslandi til Þýskalands? Á morgun ræðst það hvaða leikmönnum Åge Hareide, þjálfari karlalandsliðs Íslands í fótbolta, ætlar að treysta til þess að koma Íslandi á EM í Þýskalandi í sumar. Fótbolti 14. mars 2024 11:01
„Hefur gífurlega mikla þýðingu fyrir Val og íslenskan fótbolta“ Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, segir komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til félagsins sé uppskera þeirra gríðarlegrar vinnnu sem farið hefur verið í hjá Val undanfarin ár. Valur væntir mikils af Gylfa Þór. Koma hans sé gríðarleg viðurkenning fyrir félagið. Íslenski boltinn 14. mars 2024 10:34
Mbappé brjálaður vegna kebabs og hótar lögsókn Kylian Mbappé hyggst lögsækja eiganda kebabstaðar í Marseille vegna lýsingar á samloku á staðnum sem vísar í nafn hans. Brauðinu í lokunni er sagt líkja til höfuðlags frönsku stjörnunnar. Fótbolti 14. mars 2024 10:30
Gylfi Þór orðinn leikmaður Vals Gylfi Þór Sigurðsson hefur samið við Val um að leika með félaginu í Bestu deild karla í fótbolta næsta sumar. Gylfi semur til tveggja ára en skrifað var undir í Montecastillo á Spáni nú í morgun. Íslenski boltinn 14. mars 2024 09:46
Sjáðu dramað á Spáni og Sancho slá PSV í rot Það stefnir í sannkallaða veislu í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta þar sem átta stórlið berjast. Tvö síðustu liðin komust áfram í gærkvöld og mörkin úr þeim leikjum má nú sjá á Vísi. Fótbolti 14. mars 2024 09:00
Kveðja Gylfa Þór sem er á leið í Val Danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby hefur gefið frá sér tilkynningu þar sem að greint er frá því að Gylfi Þór Sigurðsson muni ekki snúa aftur til félagsins er hann hefur jafnað sig á meiðslum. Gylfi Þór er við það að skrifa undir samning við Bestu deildar lið Vals. Íslenski boltinn 14. mars 2024 08:39
Sancho: Hér skapaði ég mitt nafn Jadon Sancho var ánægður eftir leik kvöldsins þar sem að hann skoraði mikilvægt mark þegar Borussia Dortmund tryggði sig áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. Fótbolti 13. mars 2024 23:03
Atlético Madrid sló Inter út í vítakeppni Atlético Madrid varð í kvöld áttunda og síðasta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fótbolta. Fótbolti 13. mars 2024 22:46
Mbappe fékk að byrja og skoraði í bikarsigri PSG Paris Saint Germain komst áfram í undanúrslit franska bikarsins eftir 3-1 sigur á Nice í lokaleik átta liða úrslitanna í kvöld. Fótbolti 13. mars 2024 22:12
Sancho á skotskónum þegar Dortmund fór áfram Jadon Sancho, leikmaður í láni frá Manchester United, var á skotskónum og í hetjuhlutverkinu í kvöld þegar Borussia Dortmund tryggði sæti meðal átta bestu liða Evrópu. Fótbolti 13. mars 2024 21:54
Draumahálfleikur Luton manna breyttist í martröð í seinni hálfleik „Við erum að fara halda okkur uppi“ sungu stuðningsmenn Luton í fyrri hálfleiknum en þeir fögnuðu of snemma. Enski boltinn 13. mars 2024 21:29
Stuðningsmenn Bayern settir í bann Bayern München fær engan stuðning úr stúkunni á seinni leik liðsins í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næsta mánuði. Fótbolti 13. mars 2024 19:11
Telja að sekt UEFA sé brot á tjáningarfrelsinu Norska knattspyrnufélagið Brann ætlar að ekki að taka fimm þúsund evra sekt Knattspyrnusambands Evrópu þegjandi og hljóðalaust. Fótbolti 13. mars 2024 18:01
Toppar Man. United ferðast á milli stóru klúbbanna í Evrópu Þetta verður mikilvægt sumar fyrir enska fótboltafélagið Manchester United á félagsskiptamarkaðnum og yfirmenn félagsins gera sér vel grein fyrir því. Enski boltinn 13. mars 2024 17:30
Stjörnuleikmaður Arsenal ófrísk Sænska landsliðskonan Amanda Ilestedt spilar ekki fótbolta á næstunni því hún á von á barni. Enski boltinn 13. mars 2024 17:03
Sex handteknir í sérstakri aðgerð lögreglunnar á Spáni Lögreglan á Spáni hefur handtekið sex manns í tengslum við innbrot á heimilum þekktra og auðugra einstaklinga í höfuðborginni Madríd. Fótbolti 13. mars 2024 16:31
Klopp skaut niður sögusagnir: „Hann er ekki heimskur“ Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool var spurður út í sögusagnir á blaðamannafundi í dag þess efnis að nýr framkvæmdastjóri knattspyrnumála hjá félaginu, Michael Edwards hafi beðið hann um að halda áfram sem knattspyrnustjóri Liverpool að loknu yfirstandandi tímabili. Þjóðverjinn, sem hefur gefið það út að yfirstandandi tímabil sé hans síðasta hjá Liverpool, var fljótur að skjóta þær sögusagnir niður. Enski boltinn 13. mars 2024 15:31
Þriðju deildarliðið sjokkerar menn í Þýskalandi Þriðju deildarlið Saarbrücken fer mikinn í þýsku bikarkeppninni og vann enn einn stórsigurinn í gær. Borussia Mönchengladbach er nýjasta fórnarlamb Saarbrücken sem er komið í undanúrslit bikarkeppninnar. Fótbolti 13. mars 2024 15:00
Borgarstrákur en spenntur fyrir ævintýri á Ísafirði Markvörðurinn William Eskelinen hafnaði tilboðum frá Skandinavíu og fleiri stöðum í Evrópu áður en þessi 27 ára Svíi ákvað að samþykkja tilboð frá Ísfirðingum og spila fyrir Vestra. Íslenski boltinn 13. mars 2024 14:31
Gylfi nálgast Val en blekið ekki komið á pappír Allt útlit er fyrir að Gylfi Þór Sigurðsson, markahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi, spili í Bestu deildinni í fótbolta á komandi leiktíð. Íslenski boltinn 13. mars 2024 14:08
Óljóst hvort Albert megi spila ef niðurfelling er kærð Þorvaldur Örlygsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, hefur staðfest að Åge Hareide, landsliðsþjálfara karla, sé frjálst að velja Albert Guðmundsson í hópinn fyrir komandi verkefni gegn Ísrael. Verði niðurstaða Héraðssaksóknara kærð vandast staðan. Fótbolti 13. mars 2024 13:25
Guðný orðin leikmaður Kristianstad Íslenska landsliðskonan í fótbolta, Guðný Árnadóttir hefur samið við sænska úrvalsdeildarfélagið Kristianstad og gengur hún til liðs við félagið frá ítalska liðinu AC Milan. Þetta staðfestir Kristianstad í fréttatilkynningu á miðlum sínum. Fótbolti 13. mars 2024 13:10
Henry lét sig hverfa fyrir hetjudáð Raya Athæfi Thierry Henry. Goðsagnar í sögu enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal á Emirates leikvanginum. Í þann mund sem David Raya markvörður liðsins drýgði hetjudáð, í vítaspyrnukeppni gegn Porto í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Fótbolti 13. mars 2024 13:01
Ertu til eða er þér alveg sama? Ég lagði leið mína á KR-völlinn síðastliðna helgi til að horfa á drenginn minn spila fótboltaleik, en hann er á ellefta ári og spilar því í fimmta flokki. Skoðun 13. mars 2024 13:01
Liðið sem getur ekki unnið vítaspyrnukeppni Arsenal komst í gærkvöld áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu á kostnað portúgalska liðsins Porto. Það er ekkert nýtt að Porto tapi í vítaspyrnukeppni. Fótbolti 13. mars 2024 12:30
Danir hægja á Ofurdeildinni Efsta deild karla í Danmörku, Danska ofurdeildin (d. Superligaen), hefur unnið mál gegn Evrópsku ofurdeildinni (e. The Super League), sem lögð hefur verið til. Sú evrópska þarf að líkindum að breyta um nafn, verði hún að veruleika. Fótbolti 13. mars 2024 11:30