Mynduðu hjarta fyrir ofan borgina Flugmenn Boeing 767 vélar Icelandair sem komu til landsins í dag með átján tonn af lækningavörum frá Kína lögðu lykkju á leið sína til Keflavíkur og flugu yfir höfuðborgarsvæðið á sérstakan hátt. Innlent 19. apríl 2020 18:53
Misvísandi að segja launakostnað flugmanna stóran þátt í rekstrarvanda Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur sent frá sér tilkynningu þar sem félagið segir misvísandi að ýja að því að launakostnaður flugmanna Icelandair sé stór þáttur í rekstrarvanda félagsins. Viðskipti innlent 18. apríl 2020 16:23
Fyrsta mannaða geimferðin frá Bandaríkjunum í áratug Bandaríska geimvísindastofnunin NASA tilkynnti í dag að fyrsta mannaða geimferðin í geimferju SpaceX verði farin í næsta mánuði. Það verður fyrsta mannaða geimferðin frá Bandaríkjunum frá því að geimskutluáætlunin leið undir lok fyrir tæpum tíu árum. Erlent 17. apríl 2020 23:05
Fleiri uppsagnir um mánaðamótin Forstjóri Icelandair segir óhjákvæmilegt að grípa til frekari uppsagna á næstu vikum. Ráðist verður í hlutafjárútboð á næstunni Viðskipti innlent 17. apríl 2020 19:57
Leggja Icelandair ekki til fé nema launamálin séu skýr Eðlilegt að fjárfestar setji ekki fé í Icelandair Group meðan launamálin eru í lausu lofti að sögn forstjórans. Viðskipti innlent 17. apríl 2020 11:38
Icelandair reynir að bjarga sér með hlutafjárútboði Icelandair Group segist hafa í hyggju að ráðast í hlutafjárútboð á næstunni, til að tryggja „samkeppnishæfni til lengri tíma litið.“ Viðskipti innlent 17. apríl 2020 09:15
Til greina komi að skera flotann niður um helming Icelandair hefur undanfarna daga rætt við stærstu hluthafa félagsins um að koma með eigið fé í reksturinn. Viðskipti innlent 17. apríl 2020 07:52
Samið um sextán ferðir til Boston, London og Stokkhólms Icelandair mun fljúga sextán ferðir til Boston, London og Stokkhólms samkvæmt samningi sem félagið hefur gert við samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið. Samningurinn á að tryggja lágmarksflugsamgöngur til og frá landinu í kórónuveirufaraldrinum. Innlent 15. apríl 2020 18:03
Ríkið semur við Air Iceland Connect um flug til Egilsstaða og Ísafjarðar Stjórnvöld segjast hafa samið við flugfélagið Air Iceland Connect um reglulegar flugsamgöngur til Egilsstaða og Ísafjarðar til og með 5. maí. Innlent 15. apríl 2020 17:01
Von á tillögum um hömlur á ferðalög til og frá landinu Starfshópur er nú að störfum að vinna tillögur að því hvernig og hvort setja eigi hömlur á ferðalög til og frá Íslandi. Sóttvarnarlæknir er á því að einhverjar hömlur þurfi að setja. Innlent 15. apríl 2020 14:51
Ómögulegt að segja til um hvenær ferðalög til og frá Íslandi komist í samt horf Dómsmálaráðherra segir að ómögulegt að segja til um hvenær ferðalög til og frá Íslandi muni komast aftur í samt horf. Ísland mun taka þátt í framlengingu á lokun ytri landamæra ESB til 15. maí. Innlent 14. apríl 2020 14:34
Finnair og Juneyao í samstarf eftir faraldurinn Finnska ríkisflugfélagið Finnair hefur undirritað viljayfirlýsingu með hinu kínverska Juneyao Air um fyrirhugaða stofnun samáhættufélags. Viðskipti erlent 14. apríl 2020 11:39
Gengi Norwegian féll um rúmlega helming á tíu mínútum Hrunið kom greinendum lítið á óvart. Viðskipti erlent 14. apríl 2020 09:09
Flugáætlun Icelandair næstu þrjár vikur Icelandair flýgur aðeins til þriggja áfangastaða næstu þrjár vikurnar. Um er að ræða tvær borgir í Evrópu og eina í Bandaríkjunum. Innlent 12. apríl 2020 08:22
Sautján tonn af lækningabúnaði komin til landsins frá Kína Vél Icelandair sem flutti sautján tonn af lækningabúnaði frá Sjanghæ lenti á Keflavíkurflugvelli um klukkan 18:30 í kvöld. Innlent 9. apríl 2020 20:20
Bjarni segir enga ákvörðun hafa verið tekna um stefnu sem varðar ferðatakmarkanir til og frá landinu Ummæli Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra og varaformanns Framsóknarflokksins, í hlaðvarpi ViðskiptaMoggans hafa vakið verulega athygli. Innlent 9. apríl 2020 16:07
Bandarískir ríkisborgarar hafa tvö tækifæri til að komast frá Íslandi Tvö farþegaflug eru áætluð frá Íslandi til Bandaríkjanna. Um er að ræða flug Icelandair til Boston 8. apríl annars vegar og 15. apríl hins vegar. Innlent 7. apríl 2020 23:29
Setja fjóra milljarða í framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli Ríkisstjórnin hyggst auka hlutafé Isavia um fjóra milljarða með því skilyrði að félagið ráðist í innviðaverkefni á Keflavíkurflugvelli strax á þessu ári. Innlent 7. apríl 2020 15:49
Icelandair sækir sautján tonn af lækningavörum til Kína Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa samið við Icelandair um að sækja pöntun af hlífðarbúnaði fyrir heilbrigðisstarfsmenn til Kína. Innlent 7. apríl 2020 15:27
Mikill samdráttur framundan hjá Icelandair Gengið hefur hratt á lausafé Icelandair á síðustu vikum og hefur félagið leitað til þriggja banka til að bæta þar úr. Forstjóri félagsins segir félagið þó standa sterkt þótt það þoli ekki algeran tekjubrest til langframa fremur en önnur félög. Viðskipti innlent 6. apríl 2020 19:20
Óvíst með möguleika á heimkomu eftir páska Íslendingar sem enn eru erlendis og hyggja á heimferð eru hvattir að nýta sér ferðir Icelandair frá London og Boston næstu daga auk flugferða frá Stokkhólmi á morgun, þriðjudag, og frá Alicante á Spáni á miðvikudag. Innlent 6. apríl 2020 17:22
Icelandair flýgur til Alicante og sækir fegna farþega Íslendingar á Spáni fagna því að komast heim. Innlent 6. apríl 2020 13:13
Ró af rangri stærð talin orsök brotlendingar þotu Icelandair Ró af rangri stærð í lendingarbúnaði er talin meginorsök brotlendingar Boeing 757-þotu Icelandair á Keflavíkurflugvelli þann 7. febrúar síðastliðinn, samkvæmt bráðabirgðaskýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Innlent 6. apríl 2020 10:39
Dregur af lausafé Icelandair með hruni alþjóðaflugs Dregið hefur á góða lausafjárstöðu Icelandair eftir að millilandaflug lagðist nánast af vegna kórónuveiru faraldursins. Félagið hefur fengið þrjár bankastofnanir til liðs við sig til að styrkja fjárhagsstöðu þess og mun einnig ræða við stjórnvöld um framhaldið. Innlent 6. apríl 2020 09:37
Flugu tilraunaþotu til Kína til að sækja andlitsgrímur Þota frá evrópsku Airbus-flugvélasamsteypunni lenti í Toulouse í Frakklandi í dag með fjórar milljónir andlitsgríma til að nota í baráttunni gegn Covid 19-faraldrinum. Erlent 5. apríl 2020 17:00
Um 70 hafa bókað ferð heim frá Alicante í næstu viku Icelandair vinnur nú að því að reyna að taka ákvarðanir um flugáætlun um það bil viku fram í tímann. Innlent 5. apríl 2020 12:18
Vita um ríflega hundrað manns sem eiga í miklum vandræðum með að komast heim Enn eru nokkur hundruð Íslendingar á skrá hjá utanríkisráðuneytinu sem stefna á að koma heim til Íslands á næstu dögum og margir þeirra enn í óvissu um hvort það takist. Innlent 4. apríl 2020 20:00
Ekki ákveðið hvort faxinn víki fyrir merki Icelandair Ákvörðun ráðamanna Icelandair Group um að samþætta rekstur Air Iceland Connect og Icelandair hefur vakið upp þá spurningu hvort hún þýði nafnbreytingu á innanlandsfluginu. Innlent 4. apríl 2020 08:16
Mannlaus flugvöllur skilar sér í færri fíkniefnamálum Í heilan mánuð hefur ekkert fíkniefnamál komið upp á Keflavíkurflugvelli en á þessum mánuði hefur farþegum um flugvöllinn fækkað margfalt á við það sem áður var. Yfirtollvörður segir það hafa sýnt sig að þegar ein flutningsleið á fíkniefnum til landsins lokast þá nýti menn aðrar leiðir. Innlent 3. apríl 2020 22:30
Flýta lokagreiðslu vegna Icelandair Hotels og lækka hana um helming Lokagreiðsla vegna sölu 75% hlutar í Icelandair Hotels og tengdum fasteignum til Berjaya Land Berhad verður greidd í dag Viðskipti innlent 3. apríl 2020 09:33