Gagnrýni

Gagnrýni

Gagnrýni á kvikmyndum, bókmenntum, tónlist, leikhúsverkum og fleiru.

Fréttamynd

Indí-krakkar á barnum

Þetta var víst besta sveitin sem ég missti af á Hróarskelduhátíðinni í ár, samkvæmt því fólki sem ég tek eitthvað mark á þegar kemur að tónlist.

Gagnrýni
Fréttamynd

Allt er vænt sem vel er grænt

Shrek 2 Þótt nýjabrumið sé vissulega farið af Shrek og félögum er ekki annað hægt en að skemmta sér konunglega á þessum öðrum kapítula þökk sé drepfyndnu handriti og glænýjum persónum.

Gagnrýni
Fréttamynd

Í landi fáránleikans

Það er varla hægt að tala um að myndin hafi söguþráð sem slíkan og framan af spyr maður sig hvað í ósköpunum maður sé að horfa á. Það fæst enginn botn í þennan stórundarlega og vægast sagt brotakennda söguþráð. Svo segir nánast engin neitt og það litla sem persónurnar láta frá sér fara er algerlega út í hött. Eða hvað?

Gagnrýni
Fréttamynd

Takið eftir !!!

Ég sá hljómsveitina !!! (sagt chk chk chk ef þið getið það) á Hróarskelduhátíðinni í ár. Rauk beint út í búð þegar ég kom til Köben og keypti mér eintak. Ég hafði heyrt mikið um þessa sveit, en aldrei í.

Gagnrýni
Fréttamynd

Siglt undir fölsku flaggi

Around the World in 80 Days Sjaldan eða aldrei hefur kvikmynd fengið jafn misvísandi titil og þessi nýja útgáfa af Around the World in 80 days.

Gagnrýni
Fréttamynd

Borgaralega rokkaðir hippar

Þrátt fyrir að ég hafi farið á Hárið, full fyrirheita um að dæma sýninguna á eigin verðleikum er voðalega erfitt að fara ekki út í samanburð á uppfærslu Baltasar frá því fyrir tíu árum.

Gagnrýni
Fréttamynd

Magnað maður, magnað!

Þó bíósumarið sé rétt hálfnað þori ég að fullyrða að Spider-Man 2 verði aðalsumarmyndin  í ár. Hún toppar allt sem á undan er gengið og það þarf eitthvað mikið að ganga á til þess að þær sumarmyndir sem enn hafa ekki skilað sér í hús skáki Spider-Man 2.

Gagnrýni
Fréttamynd

Dauðinn skekur undirheima

Frank Castle, betur þekktur sem The Punisher, sker sig heldur betur úr í persónugalleríi Marvel. Hann er fullkomlega mannlegur og býr ekki yfir neinum yfirnáttúrlegum eiginleikum á borð við Köngulóarmanninn, Daredevil og Wolverine.

Gagnrýni
Fréttamynd

Bestu tónleikar Íslandssögunnar!

Fallegri hópur af fólki er vandfundinn en sá sem lagði leið sína upp í Egilshöll á sunnudagskvöldið. Loksins, Metallica á Íslandi. Hver hefði trúað að því að þessi stund myndi renna upp hér, eftir 23ja ára tilvist hljómsveitarinnar?

Gagnrýni
Fréttamynd

Sama heygarðshornið

Ég kynntist Fear Factory fyrst á Ozzfest-hátíðinni á Bretlandi fyrir einhverjum árum síðan og hef, fyrir tilviljun, séð hana tvisvar síðan. Get seint talist til dyggra unnenda hljómsveitarinnar, hljómur hennar er full vélrænn fyrir minn smekk sem gerir tónlistina illflytjanlega á tónleikum, þó að þar séu Fear Factory-menn alveg ágætir.

Gagnrýni
Fréttamynd

Blóð, sviti og fár

Ef einhver hefði komið fyrir sprengju í Rússlandi, tónleikasal Klink og Bank, á þriðjudagskvöldið hefði íslensk listalíf verið nokkur ár að jafna sig. Þar söfnuðust nefnilega saman allar helstu listaspírur landsins til þess að bera Peaches augum.

Gagnrýni
Fréttamynd

Gruggug lækning

Jæja, þá eru jólin hjá mér. Ný plata frá uppáhalds sveitinni minni The Cure. En þá lendi ég í smá vandræðum. Hvernig á ég eiginlega að reyna sannfæra ykkur um að þetta sé góð plata þannig að þið takið eitthvað mark á mér?

Gagnrýni
Fréttamynd

Skrattakollurinn góði

Hellboy: Seed of Destruction Mike Mignola, John Byrne Þessi bók kynnir til sögunnar rauða tröllið með afsöguðu hornin sem kallar sig Hellboy. Nafnið er býsna viðeigandi þar sem allt bendir til þess að hann komi einmitt beint upp úr neðra.

Gagnrýni
Fréttamynd

Nútímastúlka á fornum slóðum

Inu Yasha: Vol. 1 Höfundur: Rumiko Takahashi Rumiko Takahashi er víst einn ástsælasti myndasöguhöfundur Japans og ástæðurnar fyrir vinsældum hennar eru vel skiljanlegar við lestur á ævintýrinu um púkann Inu Yasha sem er hálfur maður og hálfur hundur.

Gagnrýni
Fréttamynd

Töffari á villigötum

Þeir félagar David Twohy, leikstjóri, og Vin Diesel hafa greinilega látið ofmetnaðinn hlaupa með sig í gönur eftir velgegni geimhrollsins Pitch Black. Það var því að sjálfsögðu hlaupið til og gert framhald en þrátt fyrir mikinn íburð og helling af milljónum dollara er The Chronicles of Riddick hvorfki fugl né fiskur.

Gagnrýni
Fréttamynd

Sálarflækjur Metallica

Að horfa á þessa mynd er í rauninni eins og að horfa á raunveruleikasjónvarpsþátt um gerð plötunnar St. Anger.

Gagnrýni
Fréttamynd

Frægð en ekki frami

Söngleikurinn Fame var frumsýndur í Smáralindinni á fimmtudagskvöldið fyrir fullu húsi. Stemningin var nokkuð góð og mikil eftirvænting lá í loftinu áður en leikurinn hófst. Ætli það hafi nokkuð verið nema um helmingur gestanna sem hafði einhvern samanburð við bíómyndina eða sjónvarpsþættina, aðrir voru að sjá krakkana á Framabraut í fyrsta sinn.

Gagnrýni
Fréttamynd

Maðkur í genamysunni

Handritið er sköllótt og sagan illa ígrunduð þannig að engin raunveruleg spenna myndast nokkurn tíma enda er myndin með ólíkindum fyrirsjáanleg.

Gagnrýni
Fréttamynd

Mánar stálu kvöldinu

Það var á miðvikudagskvöldið sem ég rölti upp í Laugardalshöll til að berja sjálfa Deep Purple augum. Ian Gillan og félagar hafa lengi verið í uppáhaldi og þá sérstaklega plötur af áttunda áratugnum, eins og Burn, In Rock og Fireball.

Gagnrýni
Fréttamynd

Meeeeeeeee

Ég var helvíti lengi að tengja mig við þessa. Sveitin er bresk og það fyrsta sem hélt mig frá því að ná tengslum var hversu keimlík öðrum breskum sveitum hún er.

Gagnrýni
Fréttamynd

Tom Hanks í stuði

The Ladykillers heldur þó ekki dampi og mun seint flokkast með betri verkum þessara snjöllu bræðra.

Gagnrýni
Fréttamynd

Skemmtilegt júrótrass

Unglingamyndir þykja ekkert sérstaklega merkilegur pappír, líklega vegna þess að þær eru algerlega staðlaðar og innihaldslausar.

Gagnrýni
Fréttamynd

Lækning við ástarsorg?

Eternal Sunshine er hreinn gullmoli í bíóflórunni þessa dagana. Mynd sem gleymist seint og býður upp á endalausar vangaveltur fyrir þá sem á annað borð nenna að pæla í nokkrum sköpuðum hlut. Brilljant mynd.

Gagnrýni
Fréttamynd

Hefndin er sæt en refingin blóðug

Frank Castle, betur þekktur sem The Punisher, er stórskemmtileg teiknimyndasögupersóna ekki síst vegna þess að hann er gerólíkur hefðbundnu ofurhetjunum. Hann hefur enga yfirnáttúrulega hæfileika, notar skotvopna, líkamsstyrk sinn og herþjálfun í baráttuni við illþýðið.

Gagnrýni