Birgir Leifur hafnaði í 62.-65. sæti Birgir Leifur Hafþórsson náði sér ekki á strik á lokadeginum á móti í Austurríki sem var hluti af Áskorendamótaröðinni í golfi. Enski boltinn 5. júní 2011 21:22
Tiger Woods í 13. sæti heimslistans - Donald er efstur Aðeins 15 kylfingar hafa náð þeim áfanga að komast í efsta sæti heimlistans á þeim 24 árum sem listinn hefur verið notaður. Luke Donald frá Englandi er sá 15. í röðinni. Tiger Woods, frá Bandaríkjunum, hefur setið lengst allra í efsta sæti heimslistans eða 623 vikur samtals eða í rétt tæplega 12 ár. Woods hefur fallið eins steinn niður heimslistann að undanförnu og er hann í 13. sæti. Golf 30. maí 2011 13:00
Luke Donald tryggði sér sigur og efsta sætið á heimslistanum Enski kylfingurinn Luke Donald tyllti sér í efsta sæti heimslistans í golfi í fyrsta sinn á ferlinum með því að sigra á BMW meistaramótinu á Evrópumótaröðinni í gær. Donald sigraði Lee Westwood frá Englandi í bráðabana um sigurinn en Westwood var í efsta sæti heimslistans. Golf 30. maí 2011 10:45
Axel sigraði með yfirburðum í karlaflokki á fyrsta stigamótinu Axel Bóasson úr Keili sigraði með yfirburðum á fyrsta stigamóti ársins á Eimskipsmótaröð GSÍ í golfi. Axel lék hringina tvo á Garðavelli á Akranesi á 7 höggum undir pari samtals og var hann sjö höggum betri en Arnar Snær Hákonarson úr GR sem lék á pari samtals. Stefán Már Stefánsson úr GR, sem var efstur eftir fyrri keppnisdaginn á -5 endaði á 2 höggum yfir pari og endað hann í þriðja sæti. Golf 29. maí 2011 19:59
Guðrún Brá sigraði á fyrsta stigamótinu á Eimskipsmótaröðinni Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili sigraði í kvennaflokki á fyrsta stigamóti ársins á Eimskipsmótaröðinni í golfi. Guðrún, sem er 17 ára gömul, lék hringina tvo á samtals fjórum höggum yfir pari, 75 höggum í dag og 73 höggum í gær. Golf 29. maí 2011 18:16
Birgir Leifur endaði í 25. til 31. sæti í Belgíu Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, varð í 25. til 31. sæti á Telenet Trophy mótinu í Belgíu sem lauk í dag eftir að hafa leikið lokahringinn á pari vallarins. Birgir Leifur var þarna að keppa á sínu öðru móti á evrópsku Áskorendamótaröðinni en hann lék hringina fjóra á 288 höggum eða á pari vallarins. Golf 29. maí 2011 16:36
Stefán Már á fimm höggum undir pari GR-ingurinn Stefán Már Stefánsson hefur eins högga forskot efrir fyrri dag á Örninn golfmótinu sem er fyrsta mótið á Eimskipsmótatöðinni í golfi. Mótið fer fram á Garðavelli á Akranesi um helgina og lýkur í dag. Golf 29. maí 2011 07:00
Vertíðin hefst á Garðavelli í dag Keppnistímabilið hjá afrekskylfingum landsins hefst með formlegum hætti í dag. Leiknar verða 36 holur eða tveir hringir á Eimskipsmótaröðinni og fer fyrsta mótið fram á Garðavelli á Akranesi og nefnist það Örninn golfmótið. Golf 28. maí 2011 06:00
Birgir Leifur bætti sig um sex högg í dag Birgir Leifur Hafþórsson lék á þremur höggum undir pari á móti í Belgíu en það er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu. Golf 27. maí 2011 22:11
Tiger: Þetta eru engin dómsdagsmeiðsli Læknar hafa tjáð Tiger Woods að meiðslin sem hann varð fyrir á Masters-mótinu eigi ekki að koma í veg fyrir að hann geti tekið þátt í US Open sem hefst um miðjan næsta mánuð. Golf 25. maí 2011 19:00
Gosið setti fyrsta unglingamótið úr skorðum Fyrsta mótið á unglingamótaröð Arionbanka og GSÍ fór fram á Strandavelli á Hellu um helgina en ekki tókst að ljúka keppni í öllum flokkum vegna atburða við Grímsvötn. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli mælti með því að mótinu yrði frestað vegna öskufoks á golfvellinum. Gríðarlegt rok var á Strandavelli báða keppnisdagana og hitastigið var ekki hátt en þrátt fyrir erfiðar aðstæður náðu margir kylfingar frábæru skori. Næsta mót á unglingamótaröðinni fer fram á Hólmsvelli í Leiru helgina 4.-5. júní. Golf 22. maí 2011 18:00
Tiger fellur út af topp tíu listanum Tiger Woods dettur út af topp tíu á heimslistanum í golfi eftir helgina þegar næsti listi verður gefinn út. Tiger er sem stendur í áttunda sæti. Golf 19. maí 2011 16:30
Tiger ætlar að ná US Open Tiger Woods varð að draga sig úr keppni á Players-meistaramótinu um síðustu helgi en hann segir útlitið betra en á horfðist. Honum tókst aðeins að leika 9 holur á mótinu. Golf 17. maí 2011 22:45
Ryderkeppnin fer fram í Frakklandi árið 2018 Ryderkeppnin í golfi árið 2018 mun fara fram á Le Golf National vellinum í Frakklandi en keppnin hefur aðeins einu sinni áður farið fram á meginlandi Evrópu. Fjölmargar þjóðir kepptust um að fá að halda keppnina þar sem að úrvalslið frá Evrópu og Bandaríkjunum eigast við. Spánn, Portúgal, Þýskaland og Holland sóttust einnig eftir keppninni. Golf 17. maí 2011 19:15
Choi hafði betur gegn Toms í bráðabana á Players Kóreumaðurinn K.J. Choi sigraði á Players meistaramótinu á bandarísku atvinnumótaröðinni í golfi í gær á TPC Sawgrass vellinum. Choi hafði betur í bráðabana gegn David Toms frá Bandaríkjunum. Þeir hófu leik í bráðabananum á einkennisholu vallarins, 17. braut, sem er par 3 hola og er vatn allt í kringum flötina. Toms þrípúttaði á 17. flöt og fékk skolla en Choi gerði engin mistök og fékk par. Golf 16. maí 2011 09:00
Birgir Leifur náði 3.-4. sæti Birgir Leifur Hafþórsson náði frábærum árangri á móti í Áskorendaröð Evrópu sem fór fram í Toskaníuhéraði á Ítalíu um helgina. Golf 15. maí 2011 13:21
Birgir Leifur höggi á eftir efsta manni Birgir Leifur Hafþórsson er í 2.-6. sæti eftir þrjá daga á móti í Áskorendamótaröð Evrópu sem fer nú fram á Ítalíu. Golf 14. maí 2011 19:33
Tiger dró sig úr keppni Tiger Woods dró sig úr keppni á Players-meistaramótinu í dag eftir aðeins níu holur. Tiger er meiddur og var greinilega ekki tilbúinn í slaginn. Golf 12. maí 2011 21:13
Birgir Leifur í öðru sæti Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, er í öðru sæti eftir fyrsta daginn á Mugello Tuscany Open mótinu á Ítalíu en mótið er hluti af evrópsku Áskorendamótaröðinni og er fyrsta mótið sem Birgir Leifur keppir í á þessu ári. Golf 12. maí 2011 18:15
Birgir Leifur keppir á Áskorendamótaröðinni á Ítalíu í dag Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, er kominn til Flórens á Ítalíu þar sem hann keppir á Mugello Tuscany Open mótinu í evrópsku Áskorendamótaröðinni. Birgir Leifur fékk óvænt boð á mótið þegar fjölmargir spænskir kylfingar boðuðu forföll vegna jarðafarar Seve Ballesteros sem lést um síðustu helgi. Golf 12. maí 2011 13:00
Woods og Mickelson: Ballesteros er goðsögn Seve Ballesteros lést síðastliðin laugardag úr krabbameini sem hann hafði barist við í langan tíma. Ballesteros var einn allra besti kylfingur síðari tíma og gríðarlega virtur innan golfheimsins. Golf 11. maí 2011 11:30
Golfgoðsögn látin Golfgoðsögnin Seve Ballesteros lést í nótt af völdum heilaæxlis. Hann var 54 ára gamall. Í yfirlýsingu sem birt var á vefsíðu Ballesteros í morgun kemur fram að hann hafi látist á heimili sínu í Padrena, umvafinn ástvinum sínum. Ballesteros var áhrifamikill frumkvöðull í golfíþróttinni á Spáni. Hann vann meðal annars fimm risamót á ferli sínum. Spænsku blöðin kalla hann jafnvel „upphafsmann spænska golfsins“. Golf 7. maí 2011 09:59
Tiger keppir á Players-mótinu Tiger Woods mun snúa aftur á golfvöllinn og keppa í Players Championship-mótinu sem hefst á fimmtudaginn næstkomandi. Golf 7. maí 2011 06:00
Tiger meiddur og kominn í frí Tiger Woods mun ekki taka þátt í Wells Fargo-meistaramótinu þar sem hann er meiddur á hné. Meiðslin hlaut hann í þriðja hring Masters á dögunum. Golf 27. apríl 2011 12:00
Westwood í efsta sæti heimslistans Englendingurinn Lee Westwood komst í dag í efsta sæti heimslistans í golfi en hann fagnaði sigri á móti í Indónesíu. Golf 24. apríl 2011 23:36
Manassero með stáltaugar en McIlroy brotnaði á ný Margir eru nú farnir að efast um að Rory McIlroy geti staðið undir því álagi sem fylgir því að vera í efsta sæti á lokadegi atvinnumóts í golfi. Norður-Írinn klúðraði lokadeginum á Mastersmótinu um s.l. helgi með eftirminnilegum hætti þar sem hann var með fjögurra högga forskot fyrir lokadaginn. Golf 17. apríl 2011 14:15
Rory McIlroy lætur verkin tala eftir skellinn á Masters Rory McIlroy hefur náð að hrista af sér hrollinn eftir ömurlegan lokahring á Mastersmótinu í golfi á dögunum en Norður-Írinn er efstur á Maybank meistaramótinu á Evrópumótaröðinni. Hinn 21 árs gamli McIlroy náði að leika 9 holur á öðrum keppnisdegi áður en keppni var frestað vegna myrkurs en gera þurfti hlé á keppninni vegna úrkomu í Malasíu. Golf 16. apríl 2011 15:00
Masters: Rory McIlroy ætlar að koma sterkari til baka Norður-Írinn Roy McIlroy hefur eflaust átt erfitt með svefn í nótt eftir að hann klúðraði niður fjögurra högga forskoti sínu á lokadegi Mastersmótsins í golfi í gær. McIlroy lék á 80 höggum eða +8 en hann var samtals á -12 eftir þriðja keppnisdaginn og hann var efstur á mótinu í samtals 63 holur af alls 72. McIlroy bar sig vel í gær þrátt fyrir áfallið og hann lofar því að koma sterkari til baka. Golf 11. apríl 2011 12:00
Masters: Tiger var svekktur að hafa ekki nýtt tækifærið Tiger Woods sýndi á lokakeppnisdeginum á Mastersmótinu í gær að hann er á réttri leið eftir erfiða 18 mánuði á atvinnumótaröðinni. Woods blandaði sér í baráttuna um sigurinn með því að leika á 67 höggum eða 5 höggum undir pari en bandaríski kylfingurinn var ósáttur við að hafa ekki nýtt tækifærið betur á síðari 9 holunum sem hann lék á pari eftir að hafa leikið fyrri 9 holurnar á 31 höggi. Golf 11. apríl 2011 11:15
Masters: Hver er Charl Schwartzel? Charl Schwartzel frá Suður-Afríku kom mörgum á óvart í gær þegar hann fagnaði sigri á Mastersmótinu í golfi en hinn 25 ára gamli kylfingur fékk fjóra fugla í röð á síðustu fjórum holunum og tryggði sér sigur á -14 samtals. Golf 11. apríl 2011 09:45