Sjöland efstur - Birgir Leifur áfram Sænski kylfingurinn Patrik Sjöland er í efsta sæti á SA Airways mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku þegar tveimur fyrstu hringjunum er lokið. Sjöland er samtals á 12 höggum undir pari eftir að hann lék á 8 undir í dag. Birgir Leifur tryggði sér naumlega áframhaldandi keppni eftir góðan leik í dag. Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu sem halda áfram í fyrramálið. Golf 15. desember 2006 16:15
Birgir Leifur í góðri stöðu Birgir Leifur Hafþórsson er kominn með annan fótinn í gegn um niðurskurðinn á SA Airways mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku eftir að hann lauk öðrum hring í dag á þremur höggum undir pari og er því á höggi undir pari samanlagt. Hann er sem stendur í 58. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum þegar skammt er eftir af öðrum hring og komast 70 efstu menn áfram á mótinu. Golf 15. desember 2006 15:44
Birgir Leifur á tveimur yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson lauk fyrsta keppnisdeginum á SA Airways mótinu í golfi á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari í dag. Mótið fer fram í Suður-Afríku og er hluti af evrópsku mótaröðinni. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu næstu daga. Golf 14. desember 2006 15:32
Þjóðverjar sigruðu á heimsmótinu Þjóðverjar fögnuðu sigri á heimsmótinu í golfi sem lauk á Barbados eyjum í gærkvöldi eftir spennandi lokasprett gegn Skotum en bráðabana þurfti til að skera úr um úrslit. Golf 11. desember 2006 19:51
Quiros sigraði á Dunhill mótinu Spænski kylfingurinn Alvaro Quiros sigraði nokkuð óvænt á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku sem lauk í dag, en Birgir Leifur Hafþórsson var á meðal keppenda á mótinu en komst ekki í gegn um niðurskurðinn. Quiros lauk keppni á 13 höggum undir pari, einu höggi á undan heimamanninum Schwartzel sem hafði forystu allt fram á lokahringinn. Golf 10. desember 2006 14:59
Birgir Leifur úr leik Birgir Leifur Hafþórsson er úr leik á Alfred Dunhill mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku eftir að hann lauk keppni í dag á þremur höggum yfir pari eða 75 höggum. Birgir kemst því ekki í gegn um niðurskurðinn á mótinu og lýkur keppni á 8 höggum yfir pari. Sjónvarpsstöðin Sýn er með beinar útsendingar frá mótinu um helgina. Golf 8. desember 2006 17:13
Birgir á pari á fyrstu 9 holunum Birgir Leifur Hafþórsson hefur nú leikið fyrri 9 holurnar á öðrum hringnum á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku og er á pari vallar. Hann er því enn á fimm höggum yfir pari og þarf að leika fullkomlega á síðari 9 holunum til að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu. Sýn er með beina útsendingu frá mótinu. Golf 8. desember 2006 14:07
Birgir Leifur á fimm yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson náði sér ekki á strik á fyrsta keppnisdeginum á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku í dag en sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu alla fjóra keppnisdagana. Birgir lauk fyrsta hringnum á 77 höggum eða 5 yfir pari og er því á meðal neðstu manna á móginu. Birgir verður því að leika óaðfinnanlega á morgun ef hann á að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu þar sem 70 kylfingar halda áfram keppni. Golf 7. desember 2006 15:06
Birgir Leifur í beinni á Sýn í fyrramálið Birgir Leifur Hafþórsson tryggði sér fyrir skömmu keppnisrétt á evrópsku mótaröðinni í golfi og hann verður í eldlínunni innan um marga af bestu kylfingum heims á tveimur mótum sem haldin verða í Suður-Afríku fyrir jól. Fyrra mótið hefst í fyrramálið og verður sjónvarpsstöðin Sýn með beinar útsendingar frá mótinu alla fjóra keppnisdagana. Golf 6. desember 2006 15:14
Enn fellur Michelle Wie úr keppni Bandaríska undrabarnið Michelle Wie náði sér ekki á strik á Casino World Open mótinu í japan sem nú stendur yfir og komst ekki í gegn um niðurskurð á mótinu. Wie lék fyrstu tvo hringina á 17 höggum yfir pari og endaði í næst síðasta sæti. Hún hefur því fallið úr keppni á 11 af 12 karlamótum sem hún hefur tekið þátt í. Wie er aðeins 17 ára gömul en er staðráðin í að halda áfram að reyna sig með körlunum þrátt fyrir mótlætið. Golf 24. nóvember 2006 13:18
Enn einn sigurinn hjá Tiger Woods Tiger Woods vann í nótt sinn 7. sigur á Hawai mótinu í golfi þegar hann lauk keppni á átta höggum undir pari og sá við sínum helsta keppinaut Jim Furyk sem var þar tveimur höggum á eftir. Woods lék lokahringinn á sex undir pari en leiknar voru 36 holur. Golf 23. nóvember 2006 14:29
Harrington hafði betur í bráðabana Frábær endasprettur Írans Padraig Harrington tryggði honum frækinn sigur á Dunlop Pheonix mótinu sem lauk í Japan í morgun. Harrington sigraði Tiger Woods í bráðabana eftir að sá síðarnefndi hafði farið illa að ráði sínum á lokasprettinum. Golf 19. nóvember 2006 14:15
Þrautagöngu Birgis loksins lokið Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, varð í gær fyrstur íslenskra kylfinga í karlaflokki til að tryggja sér þátttökurétt á Evrópumótaröðinni í golfi. Golf 17. nóvember 2006 13:30
B&L og GR semja um BMW mótaröðina Bílaumboðið B&L og GR gerðu nýlega með sér samstarfssamning um að GR sjái um framkvæmd alþjóðlegu mótaraðarinnar BMW Golf Cup International hér á landi. Samningurinn er til þriggja ára og er jafnframt sá fyrsti sem samningsaðilar gera með sér. Golf 16. nóvember 2006 22:24
Birgir Leifur á Evrópumótaröðina Birgir Leifur Hafþórsson náði í dag langþráðum áfanga þegar hann varð fyrsti íslendingurinn í karlaflokki til að vinna sér sæti á Evrópumótaröð atvinnukylfinga á næsta ári. Birgir lauk keppni á þremur höggum undir pari á sjötta og síðasta hringnum á lokaúrtökumótinu á Spáni og verður því örugglega á meðal 30 efstu manna, sem tryggði sæti á Evrópumótaröðinni á næsta ári. Golf 16. nóvember 2006 15:32
Birgir Leifur náði sér ekki á strik Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG náði sér ekki á strik á 5. hringnum á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina sem fram fer á Spáni. Birgir lék hringinn á 3 höggum yfir pari í dag og er því samtals á 2 yfir pari á mótinu. Hann er því í 45.-63. sæti á mótinu, en 30 efstu kylfingarnir tryggja sig á Evrópumótaröðina eftir 6. hringinn. Golf 15. nóvember 2006 16:02
Birgir Leifur áfram Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lauk fjórða hringnum á lokaúrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina á einu höggi undir pari og er því í á meðal 30 efstu kylfinga á mótinu sem fram fer á Spáni. Tveir hringir eru óleiknir á mótinu og þar komast 30 af 70 efstu kylfingunum á Evrópumótaröðina á næsta tímabili og horfurnar því þokkalegar hjá Birgi. Golf 14. nóvember 2006 16:15
Birgir Leifur á pari á Spáni Birgr Leifur Hafþórsson úr GKG náði sér ekki á strik á þriðja keppnisdegi lokaúrtökumótsins fyrir evrópsku mótaröðina í dag þegar hann lauk keppni á þremur höggum yfir pari og er því samanlagt á pari vallar. Hann er sem stendur í kring um 30. sætið á mótinu og á góða möguleika á því að komast í gegn um frekari niðurskurð. Golf 13. nóvember 2006 15:25
Birgir Leifur í 11. sæti Birgir Leifur Hafþórsson er í mjög góðri stöðu eftir annan hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina sem fram fer á Spáni. Birgir lék á pari í dag og er því enn á þremur höggum undir pari sem skilar honum 11. sæti. Eftir frábæra byrjun í dag fataðist honum reyndar flugið og fékk hann tvo skolla á 16. og 17. braut. Golf 12. nóvember 2006 15:38
Birgir Leifur byrjar vel Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG byrjaði mjög vel á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópsku mótaröðina sem fram fer á Spáni, en hann lék fyrsta hringinn í dag á 69 höggum eða 3 undir pari og er á meðal efstu manna á mótinu. 30 efstu kylfingarnir á mótinu tryggja sér sæti á Evrópumótaröðinni. Golf 10. nóvember 2006 17:12
Ragnhildur úr leik á Ítalíu Ragnhildur Sigurðardóttir náði sér ekki á strik á þriðja degi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í dag þegar hún lék á 10 höggum yfir pari og er því úr leik á mótinu. Ragnhildur var á 17 höggum yfir pari samanlagt og endaði í 86.-90. sæti á mótinu en aðeins 65 keppendur náðu í gegn um niðurskurð inn á fjórða hring á morgun. Golf 10. nóvember 2006 15:30
Ragnhildur á sjö yfir pari á Ítalíu Ragnhildur Sigurðardóttir náði sér ekki á strik í dag á öðrum keppnisdegi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröð kvenna í golfi þegar hún lauk keppni á sex höggum yfir pari. Ragnhildur lék á höggi yfir pari vallarins í gær - 73 höggum. Ragnheiður var í 55.-64. sæti á mótinu en keppendum verður fækkað niður í 65 eftir keppni morgundagsins. Golf 9. nóvember 2006 19:28
Azinger verður fyrirliði Kylfingurinn Paul Azinger hefur verið útnefndur fyrirliði Bandaríkjanna í Ryder keppninni sem fram fer í heimalandi hans eftir tvö ár. Azinger tekur við af Tom Lehman, sem var fyrirliði bandaríska liðsins sem tapaði stórt fyrir liði Evrópu fyrir nokkrum vikum. Golf 6. nóvember 2006 19:36
Birgir Leifur í 7. sæti Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er í 7. sæti á 2. stigi úrtökumótsins fyrir evrópsku mótaröðina þegar leiknir hafa verið tveir hringir á Sherry vellinum á Spáni. Birgir lék á tveimur höggum undir pari í dag eins og í gær og er því í ágætri stöðu til að vinna sér sæti á lokaúrtökumótinu sem fram fer eftir viku. Golf 2. nóvember 2006 19:37
Singh sigraði óvænt Indverjinn Milkha Singh sigraði óvænt á Volvo Masters mótinu í golfi sem lauk í dag og lauk keppni á tveimur höggum undir pari. Sigur Singh féll þó nokkuð í skuggann af æsispennandi baráttu um efsta sæti peningalistans á tímabilinu, en það tryggði Írinn Padraig Harrington sér í dag með góðum endaspretti. Hann hafnaði í öðru sæti Volvo mótsins ásamt þeim Sergio Garcia og Luke Donald. Golf 29. október 2006 17:17
Henrik Stenson í forystu Sænski kylfingurinn Henrik Stenson hefur eins högg forskot þegar tveimur hringjum er lokið á Volvo Masters mótinu sem fram fer í Valderrama á Spáni. Stenson er á fjórum höggum undir pari eftir að hafa leikið á 68 höggum í dag og er höggi á undan Lee Westwood. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu á morgun og sunnudag. Golf 27. október 2006 18:13
Endaði í 60. sæti Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson hafnaði í 60. sæti á áskorendamóti sem fram fór í Toulouse í Frakklandi um helgina. Birgir Leifur lék á fimm höggum yfir pari á lokahringnum í gær, á alls 77 höggum, eftir að hafa byrjað mjög illa og lauk keppni á alls sex höggum yfir pari. Golf 9. október 2006 08:45
Birgir Leifur áfram Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er að leika á tveimur höggum undir pari þegar tveimur hringjum er lokið á áskorendamótinu í Toulouse í Frakklandi. Birgir lék annan hringinn á pari í dag og komst því í gegn um niðurskurðinn á þessu mikilvæga móti. Golf 6. október 2006 21:09
Birgir á tveimur undir pari í Frakklandi Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG spilaði ágætlega á fyrsta keppnisdeginum á áskorendamóti í Frakklandi í dag og lauk keppni á 70 höggum, eða 2 höggum undir pari. Birgir þarf nauðsynlega að ná góðum árangri á mótinu til að styrkja stöðu sína á styrkleikalistanum, svo hann eigi möguleika á að komast á annað stig mótaraðarinnar. Golf 5. október 2006 18:45
Auðvelt hjá Woods Tiger Woods vann í dag auðveldan sigur á heimsmótinu í golfi sem fram fór á Englandi, en sigurinn var í raun aðeins formsatriði fyrir þennan ógnarsterka kylfing sem farið hefur á kostum á árinu. Golf 1. október 2006 18:20