Keppni frestað vegna veðurs Illa gengur að klára heimsmótið í golfi sem frem fer á The Grove vellinum á Englandi, en þar hefur keppni nú verið frestað vegna eldingahættu. Sýn er með beinar útsendingar frá mótinu, þar sem úrslitin eru að heita má ráðin því Tiger Woods hefur mjög öruggt sjö högga forskot á landa sinn Jim Furyk og Ástralann Adam Scott þegar lokahringurinn var tæplega hálfnaður. Golf 1. október 2006 13:27
Woods enn í forystu Tiger Woods hefur enn örugga forystu á heimsmótinu í golfi sem fram fer á Englandi, en Bandaríkjamaðurinn ótrúlegi hefur nú sex högga forystu á næsta mann fyrir lokadag mótsins á morgun. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá lokadeginum eftir hádegi á morgun. Golf 30. september 2006 16:50
Woods í algjörum sérflokki Besti kylfingur heims, Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods, er í algjörum sérflokki á heimsmótinu í golfi sem fram fer á Englandi og hefur nú fimm högga forystu á þrjá næstu menn á mótinu eftir að leiknir hafa verið tveir hringir. Golf 29. september 2006 19:15
Frábær hringur hjá Heiðari Heiðar Davíð Bragason fór á kostum á öðrum hringnum á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golfi sem haldið er á Ítalíu. Heiðar spilaði á 7 höggum undir pari á lokadeginum í dag, samtals 65 höggum. Heiðar er á meðal efstu manna á mótinu og fær því tækifæri til að spila á öðru stigi úrtökumótsins. Golf 29. september 2006 16:45
Birgir Leifur úr leik í Kasakstan Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er úr leik á áskorendamótinu í golfi sem fram fer í Kasakstan eftir að hann lauk keppni á öðrum hringnum á samtals tveimur höggum yfir pari í dag. Birgir lék reyndar á pari í dag, en það nægði honum ekki til að komast í gegn um niðurskurðinn eftir slaka spilamennsku í gær. Golf 29. september 2006 16:00
Woods í stuði á heimsmótinu Bandaríski stjörnukylfingurinn Tiger Woods hristi heldur betur af sér vonbrigðin í Ryder keppninni í kvöld þegar hann lék fyrsta hringinn á heimsmótinu sem fram fer á Englandi á 63 höggum eða 8 undir pari. Woods hefur eins höggs forystu á Ian Poulter og Padraig Harrington. Woods hefur fjórum sinnum unnið sigur á mótinu. Golf 28. september 2006 22:49
Bandaríska liðið spilaði ömurlega Bandaríski kylfingurinn Jim Furyk hefur vísað þeim kenningum á bug að lið Bandaríkjanna hafi tapað í Ryder-bikarnum vegna þess að það skorti hungur. Furyk segir liðið einfaldlega hafa tapað fyrir því evrópska af því það hafi spilað ömurlegt golf alla keppnina. Golf 27. september 2006 20:00
Evrópuliðið vann þriðja árið í röð Lið Bandaríkjanna átti aldrei möguleika gegn því evrópska í Ryder-keppninni í golfi sem lauk á Írlandi í gær. Úrslitin urðu á sama veg og í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum, Evrópa hlaut átján og hálfan vinning en Bandaríkin níu og hálfan. Golf 25. september 2006 05:30
Evrópumenn sigra Ryder bikarinn Staðan í Ryder bikarnum er 15-8 fyrir Evrópu gegn Bandaríkjunum. Það þýðir að Evrópumenn hafa unnið. Paul Casey, sem hefur verið í fantaformi og farið holu í höggi í mótinu, lagði Jim Furyk að velli í dag. Það var hinsvegar Henrik Stenson sem setti niður gott pútt til að tryggja sigurinn. Golf 24. september 2006 14:41
Evrópa hefur góða forystu Lið Evrópu er að vinna Ryder -keppnina með tíu vinningum gegn sex hjá bandaríska liðinu fyrir lokadaginn á K-Klub sem er í dag. Illa gekk hjá bandaríska liðinu í gær og voru það þeir Tiger Woods og Jim Furyk sem lönduðu eina sigri þess í fjórmenningnum eftir hádegi þegar þeir unnu hina írsku Paidraig Harrington og Paul McGinley. Golf 24. september 2006 06:30
Tiger og Furyk rétta úr kútnum fyrir USA Tiger Woods og Jim Furyk sigruðu Padraig Harrington og Paul McGinley í síðasta leiknum á K-vellinum í dag. Með sigrinum löguðu þeir stöðu Bandaríkjamanna í baráttunni um Ryder bikarinn. Staðan fyrir lokadaginn á morgun er 10-6 fyrir Evrópumennina en þeir þurfa 14 sigra til að halda bikarnum. Draumahögg Paul Casey bar þó hæst á vellinum í dag. Golf 23. september 2006 18:00
Evrópumenn leiða 7.5 - 4.5 Evrópumenn leiða með þriggja vinninga mun gegn Bandaríkjamönnum í Ryder bikarnum í golfi. Staðan er Evrópa sjö og hálfur en Bandaríkin fjórir og hálfur. Það var lagleg vippa frá Darren Clarke sem tryggði honum og Lee Westwood sigur gegn Tiger Woods og Jim Furyk í morgun. Golf 23. september 2006 13:30
Evrópumenn í forystu Lið Evrópu hefur nauma forystu gegn liði Bandaríkjanna eftir fyrstu umferð í Ryder bikarnum sem fram fer á Írlandi. Evrópa hefur eins vinnings forskot eftir fjórleikinn og hefur 2,5 vinninga gegn 1,5 hjá Bandaríkjamönnum. Mótið vekur jafnan gríðarlega athygli og á meðal stuðningsmanna bandaríska liðsins á Írlandi eru George Bush eldri og körfuboltastjarnan Michael Jordan. Golf 22. september 2006 14:45
Ragnhildur úr leik Ragnhildur Sigurðardóttir, kylfingur úr GR, komst ekki í gegnum niðurskurðinn á úrtökumóti fyrir LPGA-mótaröðina í golfi en leikið var í Palm Springs í Kaliforníu. Golf 22. september 2006 06:00
Falsaðar nektarmyndir af konu Woods í umferð Ameríski kylfingurinn Tiger Woods á nú í erfiðleikum með að einbeita sér að keppni á Ryder Cup mótinu, eftir að bresk og írsk blöð birtu í dag falsaðar nektarmyndir af konu hans sem höfðu verið í umferð á netinu. Golf 20. september 2006 13:59
Högglengsti kylfingur Íslands Golfklúbbur Garðabæjar og Kópavogs mun um næstu helgi standa fyrir keppninni Högglengsti kylfingur Íslands á Vífilstaðavelli, en keppt verður í karla- og kvennaflokki og allir nota sömu tegund af bolta. Golf 19. september 2006 21:00
Góður sigur hjá Paul Casey Enski kylfingurinn Paul Casey vann í dag glæsilegan sigur á heimsmótinu í holukeppni sem fram fór á Wentworth vellinum í Lundúnum. Casey sigraði Bandaríkjamanninn Shaun Micheel 10-8 í úrslitum mótsins, en Casey er fyrsti nýliðinn sem vinnur mótið síðan Ernie Els afrekaði það árið 1994. Golf 17. september 2006 15:43
Woods úr leik á heimsmótinu í höggleik Stigahæsti kylfingur heims, Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods, féll óvænt úr leik í fyrstu umferð á heimsmótinu í höggleik sem nú stendur yfir á Englandi. Woods tapaði fyrir landa sínum Shaun Micheel 4-3 og er því úr leik líkt og Jim Furyk og Ernie Els, svo segja má að mikið sé um óvænt úrslit í fyrstu umferð mótsins. Golf 14. september 2006 15:51
Heiðar endaði í 9. - 12. sæti Heiðar Davíð Bragason, kylfingur úr Kili, hafnaði í 9.-12. sæti á Thermia mótinu í gær en það er hluti af sænsku mótaröðinni. Heiðar lék á höggi undir pari fyrsta keppnisdaginn en lék síðan illa á öðrum degi eða á fimm höggum yfir pari vallarsins. Hann náði hinsvegar að laga stöðu sína umtalsvert í gær þegar hann lék á tveimur höggum undir pari. Golf 10. september 2006 07:00
Tiger Woods kylfingur ársins hjá PGA Sigur Tiger Woods á Deutsche Bank mótinu um helgina tryggði það að hann vann sér nafnbótina kylfingur ársins á PGA enn eitt árið, en titilinn hlýtur sá kylfingur sem rakað hefur inn flestum stigum á mótum ársins. Þetta er í áttunda skipti á tíu árum Woods á mótaröðinni sem hann vinnur stigatitilinn, en aðeins þeir Mark O'Meara árið 1998 og Vijay Singh árið 2004 hafa náð að skáka snillingnum á þeim tíma. Golf 6. september 2006 14:11
Tiger Woods með fimmta sigurinn í röð Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods heldur áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni á golfvellinum, en í kvöld landaði hann sigri á Deutsche Bank mótinu á PGA mótaröðinni eftir ótrúlegan endasprett. Golf 4. september 2006 21:43
Ólafur og Ragnhildur stigameistarar Ólafur Már Sigurðsson og Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR tryggðu sér um helgina stigameistaratitil Golfsambands Íslands í karla- og kvennaflokki að loknu 6. mótinu á KB-banka mótaröðinni. Golf 4. september 2006 18:45
Birgir og Davíð úr leik Kylfingarnir Birgir Leifur Hafþórsson og Heiðar Davíð Bragason eru báðir úr leik eftir annan hringinn á áskorendamótinu í Vaxholm sem fram fer í Svíþjóð. Birgir Leifur lauk keppni í dag á höggi undir pari samtals, en komst ekki í gegn um niðurskurðinn frekar en Heiðar Davíð, sem lauk keppni á fjórum höggum yfir pari. Golf 1. september 2006 21:30
Bein útsending hafin frá PGA á Sýn Nú er hafin bein útsending á Sýn frá öðrum keppnisdegi á Bridgestone mótinu í Akron í Ohio sem er hluti af PGA mótaröðinni í golfi. Ástralski kylfingurinn Adam Scott er í forystu á mótinu á 7 höggum undir pari, en hinn ótrúlegi Tiger Woods var þá í fjórða sætinu. Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu alla helgina. Golf 25. ágúst 2006 20:52
Adam Scott með forystu Ástralski kylfingurinn Adam Scott er í forystu á Bridgestone mótinu í golfi sem fram fer í Akron í Ohio og er hluti af PGA mótaröðinni. Scott er á 7 höggum undir pari í fyrstu umferðinni, tveimur höggum á undan Bandaríkjamanninum Jason Gore. Tiger Woods er á meðal keppenda á mótinu og er á 3 höggum undir pari. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu um helgina. Golf 25. ágúst 2006 14:48
Birgir Leifur í stuði í Óðinsvéum Birgir Leifur Hafþórsson úr golfklúbbnum GKG er í fantaformi á áskorendamótinu í Óðinsvéum í Danmörku. Birgir lauk keppni á öðrum hring í morgun á fjórum höggum undir pari, líkt og á fyrsta hringnum í gær þegar hann lék á 66 höggum. Hann er því á meðal efstu manna á samtals átta höggum undir pari. Golf 25. ágúst 2006 13:37
Glæsilegur sigur hjá Tiger Woods Tiger Woods sýndi fádæma öryggi í dag þegar hann sigraði með yfirburðum á PGA risamótinu á Medinah vellinum í Illinois. Woods lék lokahringinn í dag á 68 höggum og lauk keppni á 18 höggum undir pari eða fimm höggum á undan Shaun Micheel sem hafnaði í öðru sæti á 13 höggum undir pari. Þetta er 12. risatitill Woods á ferlinum og aðeins Jack Nicklaus (18) hefur unnið fleiri í sögunni. Golf 20. ágúst 2006 22:48
Woods í forystu Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hefur forystu á PGA risamótinu í golfi sem nú stendur yfir á Medinah-vellinum í Illinois-fylki. Woods hefur náð þriggja högga forystu eftir fyrstu sex holurnar á lokahringnum, en næstur honum kemur David Weir. Sýn er með beina útsendingu frá mótinu. Golf 20. ágúst 2006 20:52
Luke Donald í forystu Luke Donald er sem stendur í efsta sæti á PGA mótinu í golfi sem stendur yfir í Illinois-fylki í Bandaríkjunum, en þetta er síðasta risamót sumarsins. Donald er á 12 höggum undir pari í þriðju umferð mótsins en þeir Shaun Micheel og Mike Weir koma fast á hæla hans á 11 undir pari. Tiger Woods er í góðri aðstöðu til að hefja atlögu að efstu mönnum eins og hans er von og vísa, en hann er tveimur höggum á eftir þeim á Medinah-vellinum. Sýn er með beinar útsendingar í gangi frá mótinu. Golf 19. ágúst 2006 20:17
Heiðar náði sér ekki á strik á lokahringnum Heiðar Davíð Bragason náði sér ekki á strik á lokadeginum á sænsku mótaröðinni í dag þegar hann lék á 77 höggum eða fimm höggum yfir pari. Hann lauk því keppni á fimm höggum yfir pari og hafnaði í 53. sæti á mótinu. Golf 19. ágúst 2006 17:04