Verðbólga hækkar lítillega og mælist 9,4 prósent Verðbólga síðustu tólf mánaða hækkaði lítillega á milli mánaða. Mælist hún nú 9,4 prósent en stóð í 9,3 prósent í síðasta mánuði. Viðskipti innlent 27. október 2022 09:15
Fimm ný ríkisstörf á Akureyri Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hyggst flytja fimm opinber sérfræðistörf til Akureyrar. Nýtt teymi verður stofnað í bænum og 21 stöðugildi verða á skrifstofum stofnunarinnar á Akureyri. Ráðherra fagnar fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni. Innlent 25. október 2022 21:13
Réttur og úrræði leigusala þegar vanskil verða á leigugreiðslum Til Húseigendafélagsins leita leigusalar oftsinnis og óska eftir aðstoð þess, þegar leigjendur greiða húsaleigu ekki á tilsettum tíma, eða alls ekki. Hér er stiklað á stóru um framgang slíkra mála. Skoðun 25. október 2022 10:30
Óvænt hækkun íbúðaverðs í síðasta mánuði Vísitala íbúðaververðs hækkaði á milli ágúst og september. Greiningardeild Landsbankans telur þessa hækkun vera nokkuð óvænta. Skýringin virðist eiga sér rætur að rekja til hækkunar á sérbýli. Viðskipti innlent 21. október 2022 11:26
Bein útsending: Bjarni ræðir stöðu og framtíð ÍL-sjóðs Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur boðað til blaðamannafundar um stöðu ÍL-sjóðs og næstu skref í tengslum við hann. Fundurinn verður í beinni útsendingu hér að neðan. Innlent 20. október 2022 15:01
Frekari merki kólnunar á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn heldur áfram að kólna en verulega hefur dregið úr hlutfalli íbúða sem seljast yfir ásettu verði. Meðal kaupverð á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að lækka. Viðskipti innlent 19. október 2022 07:35
Hefur áhyggjur af vinum sínum í þungri vímuefnaneyslu á meðan borgin gerir ekkert Heimilislausir karlmenn segja borgina ekki hafa veitt þeim nein svör eða brugðist við fyrirséðum vanda þeirra í vetur á nokkurn hátt. Þeir kalla eftir því að neyðarskýli verði opin á daginn og neituðu að fara úr einu slíku í morgun til að vekja athygli á málstað sínum. Innlent 18. október 2022 16:35
Íslandsbanki hækkar vexti Íslandsbanki mun hækka vexti um allt að 0,25 prósentustig á mánudaginn vegna ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að hækka stýrivexti. Viðskipti innlent 14. október 2022 22:05
Hjá einum af tíu fara meira en 75 prósent tekna í húsnæðiskostnað Fyrstu niðurstöður könnunar sem Félagsvísindastofnun vinnur að fyrir Öryrkjabandalag Íslands benda til þess að tíundi hver öryrki á Íslandi verji meira en 75 prósentum af ráðstöfunartekjum sínum í rekstur húsnæðis. Innlent 14. október 2022 07:07
Spáir snöggri lækkun á fasteignaverði Íslenskur hagfræðingur hjá London School of Economics í Bretlandi segir að fasteignaverð þar og hér á landi geti lækkað mjög snögglega vegna mikilla vaxtahækkana. Nái spár alþjóðlegra fjármálastofnana um samdrátt á næsta ári fram að ganga hefði það mjög fljótlega áhrif á íslenskan efnahag. Erlent 11. október 2022 19:46
Landsbankinn hækkar vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,25 prósentustig. Sama hækkun er herð á breytilegum vöxtum verðtryggðra íbúðalána. Fastir vextir nýrra óverðtryggðra íbúðalána verða óbreyttir en fastir vextir verðtryggðra íbúðalána hækka um 0,30 prósentustig. Viðskipti innlent 11. október 2022 16:52
Húsnæðisverð lækkar Þrátt fyrir að steypan sé uppáhalds fjárfesting Íslendinga getur íbúðaverð lækkað líkt og annað eignaverð og það er einmitt það sem er framundan. Umræðan 11. október 2022 09:31
Stefna á að fimm smáhús rísi í Laugardal í desember Framkvæmdir eru nú hafnar í Laugardal þar sem til stendur að reisa fimm smáhús að Engjavegi 40 fyrir heimilislausa. Einhverjir íbúar hafa gagnrýnt áformin en formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar segir að hlustað hafi verið á allar athugasemdir. Innlent 5. október 2022 13:59
Stöðvum okrið á leigjendum Leigjendur á Íslandi búa við mjög erfiða stöðu. Á síðustu árum hefur leiga farið hækkandi og var há fyrir. Þegar stærstur hluti heildarráðstöfunartekna þinna fer í húsnæðið, þá getur þú ekki leyft þér ýmislegt sem samfélagið hefur upp á að bjóða. Skoðun 5. október 2022 11:30
„Mögulega erum við búin að gera nóg“ Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir að 25 punkta hækkun stýrivaxta Seðlabankans nú sé vísbending um að Peningastefnunefnd sé ánægð með árangurinn sem náðst hefur með miklum hækkunum stýrivaxta síðustu misseri. Mögulegt sé að toppi stýrivaxtahækkana sé náð. Það ráðist þó af þróun hagkerfisins sem og niðurstöðu væntanlegrar kjarasamningalotu. Viðskipti innlent 5. október 2022 09:59
Íbúðum í byggingu fjölgar alls staðar nema í Reykjavík Fleiri íbúðir eru samanlagt í byggingu í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkurborgar en í borginni sjálfri. Þar fækkar íbúðum í byggingu milli ára á meðan hún eykst um tæp 90 prósent hjá hinum sveitarfélögunum samanlagt. Innlent 3. október 2022 21:00
Eignaskiptayfirlýsingar Húseigendafélaginu berast oft fyrirspurnir um gerð og efni eignaskiptayfirlýsinga í eldri húsum þar sem fyri hendi eru gamlir skiptasamamningar sem ekki eru alls kostar réttir né í fullu samræmi við gildandi reglur um eignaskiptayfirlýsingar. Er spurt hvort nauðsyn beri til og skylt að láta gera nýjar eignaskiptayfirlýsingar í slíkum tilvikum. Einnig er spurt um þörf á nýjum eða breyttum eignskiptayfirlýsingum vegna viðbygginga og breytinga á húsi eða einstökum eignarhlutum. Sömuleiðis þegar um er að ræða breytingar vegna yfirfæslu milli eigenda á húsrými, bílskúr, bílastæði eða lóðarhluta. Skoðun 3. október 2022 11:30
Ríkið kaupir Norðurhúsið við Austurbakka af Landsbankanum Íslenska ríkið og Landsbankinn hafa undirritað samning um kaup ríkisins á Norðurhúsi við Austurbakka af Landsbankanum. Um er að ræða tæplega sex þúsund fermetra byggingu sem er hluti af framkvæmdum Landsbankans við Austurhöfn. Kaupverðið er um sex milljarðar króna. Þá mun ríkið einnig kaupa gamla Landsbankahúsið við Austurstræti. Innlent 29. september 2022 15:30
Staðan í Evrópu helsta ógnin við íslenskan efnahag Íslensku efnahagslífi stafar helst ógn af mikilli óvissu í alþjóðamálum. Seðlabankastjóri telur að vaxtahækkanir og aðrar aðgerðir Seðlabankans séu farnar að skila árangri. Horft verði til þess við ákvörðun vaxta í næstu viku. Innlent 28. september 2022 19:22
Öfugmæli að aðgerðir Seðlabankans komi heimilunum illa Seðlabankastjóri segir að þeir sem gagnrýnt hafi aðgerðir Seðlabankans til að ná niður verðbólgu fari með öfugmælavísur. Verðbólga sé mesti óvinur þeirra verst settu í þjóðfélaginu og nú bendi margt til að aðgerðir til á ná henni niður séu farnar að virka. Innlent 28. september 2022 12:23
Merki um „hraðan viðsnúning íbúðaverðs“ að mati SA Nýjustu mælingar Þjóðskrár á íbúðaverði á höfuðborgarsvæðinu má að mati Samtaka atvinnulífsins túlka sem „hraðan viðsnúning íbúðaverðs“, einkum í ljósi þess að áhrif aðgerða Seðlabanka Íslands eru ekki komin fram nema að hluta til. Innherji 21. september 2022 14:26
Íbúðaverð lækkar á milli mánaða í fyrsta sinn í þrjú ár Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,4 prósent á milli mánaða í ágúst. Er það í fyrsta sinn síðan í nóvember 2019 sem vísitalan lækkar. Hagfræðideild Landsbankans telur að þetta sé skýrt merki um að fasteignamarkaðurinn sé farinn að kólna. Viðskipti innlent 21. september 2022 10:08
Öfganna á milli á húsnæðismarkaði Það er áhugavert að fylgjast með umræðu um húsnæðismarkað þessi misserin. Undanfarin tvö ár hefur hæst farið umræðan um að hér vanti 35 þúsund íbúðir inn á markaðinn á næstu 10 árum. Í sumar snérust svo umræðan skyndilega á hvolf og umræða um sölutregðu og yfirvofandi verðlækkanir varð ráðandi. Skoðun 21. september 2022 08:30
Gallar og afhendingardráttur á nýjum fasteignum Margir kaupendur nýrra húsa og íbúða hafa leitað til Húseigendafélagsins að undanförnu vegna margvíslegra galla á eignum sínum og vegna dráttar á afhendingu. Þeir eru mislukkulegir með viðkomandi fasteignasala, sumir hafi staðið sig með prýði en aðrir hafi brugðist og dregið leynt og ljóst taum seljenda. Seljendum bera þeir líka misjafna sögu. Sumir hafi ekkert viljað gera og gefið þeim og kröfum þeirra langt nef eða þá brugðist við með hangandi haus og hendi meðan aðrir hafi haft góð orð um að bæta úr og leysa málið. Skoðun 20. september 2022 12:31
Ríkisstjórnin bregst við mikilli þenslu með aðhaldi Áætlað er að heildarskuldir ríkissjóðs verði álíka miklar og öll útgjöld ríkisins á næsta ári. Fjármálaráðherra segir fjárlög næsta árs miða að því að verja viðkvæmustu hópa samfélagsins og vinna bug á verðbólgunni. Innlent 15. september 2022 19:31
Hlynnt leiguþaki og -bremsu sama hvaða stjórnmálaflokk það kýs Könnun á vegum Samtaka leigjenda sem framkvæmd var af Maskínu 2. til 12. september varpar ljósi á það hvert viðhorf tilviljunarúrtaks fólks úr þjóðskrá er til leigubremsu og leiguþaks. 1.249 manns svöruðu könnuninni. Innlent 14. september 2022 14:11
Leigusali í kröppum dansi við músina MAMMAAA, MAMMA, það er MÚS, það er MÚS í húsinu…Já, svona var ég dregin frá listilegum tilburðum mínum fyrir framan spegilinn, árla morguns fyrir nokkrum árum síðan. Upphófst þá mikill eltingarleikur við blessaða músina sem hafði náð að smygla sér inn í húsið líklega með ketti leigutakans. Skoðun 14. september 2022 09:01
Íbúðum sem seljast yfir ásettu verði fækkar Íbúðum sem seldust yfir ásettu verði fækkaði um tæp tíu prósent á höfuðborgarsvæðinu milli maí og júní. Þrátt fyrir það styttist meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu milli júní og júlí mánaða úr 42,3 dögum í 40,1 dag. Viðskipti innlent 14. september 2022 07:30
Fólki fjölgar í Skagafirði, lóðir rjúka út og tugir íbúða í smíðum Gróska er í húsbyggingum í Skagafirði og eru yfir fimmtíu íbúðir í smíðum um þessar mundir víðsvegar um sveitarfélagið. Hitaveita, ljósleiðari og leikskólapláss eru galdurinn, að sögn sveitarstjórans. Innlent 13. september 2022 23:13
Stefna á tuttugu þúsund íbúðir á næstu fimm árum Flýta þarf uppbyggingu íbúða eigi rammasamningur ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð húsnæðis á næstu árum að ganga eftir. Þetta kom fram á fyrsta fundi um framkvæmd samningsins í dag. Innlent 13. september 2022 16:19