Húsfélag fær 36 milljónir vegna galla Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hefur verið dæmt til að greiða húsfélaginu Lundi 2-6 í Kópavogi 36 milljónir vegna galla í þakplötu á bílastæðahúsi sem fylgdi íbúðum í húsunum. Neytendur 20. desember 2021 11:10
Húsnæðisöryggi Í upphafi covid faraldursins lagði ASÍ áherslu á nokkra þætti sem nauðsynlegt viðbragð við kreppunni. Þeir voru að tryggja afkomu, heilbrigðismál, húsnæðismál, menntun og réttlát umskipti og jöfnuður. Skoðun 17. desember 2021 15:00
Hagur húsfélaga að framlengja átakið Allir vinna Sú staða blasir nú við mörgum húsfélögum sem farið hafa af stað í góðri trú með umfangsmiklar viðhaldsframkvæmdir í tengslum við átakið ALLIR VINNA að ekki næst að ljúka þeim fyrir áramót vegna tafa af völdum COVID-19. Skoðun 17. desember 2021 11:30
Aldrei fleiri íbúðir í fjölbýli selst yfir ásettu verði Tæplega 38 prósent þeirra íbúða í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu sem seldust í október, seldust yfir ásettu verði og hetur hlutfallið aldrei mælst jafn hátt áður. Þá var meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu í október tæplega 37 dagar og hefur sölutíminn aldrei mælst styttri. Viðskipti innlent 13. desember 2021 07:23
Verðbólga ríkisstjórnarinnar Skuldsetning ríkissjóðs er 200 milljörðum króna minni en við var búist, en skuldir heimilanna hafa aukist um 400 milljarða frá því að faraldurinn hófst. Þetta er ekki tilviljun. Skoðun 10. desember 2021 07:01
Ætla að stórefla Konukot: Heimilislausar konur fá glæný smáhýsi Stórefla á starfsemi Konukots og tvær heimilislausar konur flytja brátt í glæný smáhýsi á vegum borgarinnar. Innlent 9. desember 2021 19:01
Kostnaður vegna heimilislausra tvöfaldast frá 2019 Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna heimilislausra hefur tvöfaldast frá árinu 2019. Ákveðið hefur verið að bæta við styrkjum til Konukots þannig að heimilið þurfi ekki að reiða sig á sjálfboðaliða. Innlent 9. desember 2021 13:33
Fá ekki krónu þrátt fyrir mistök lögmanns Íslenska ríkið og fyrrverandi lögmaður hjóna hafa verið sýknuð af kröfu hjónanna um að ríkinu og lögmanninum bæri að greiða þeim 25,8 milljónir króna vegna mistaka lögmannsins og meintrar ólögmætrar nauðungarsölu sýslumanns á íbúð í þeirra eigu. Innlent 7. desember 2021 21:47
35 íbúðir afhentar á Selfossi í dag í hæsta húsnæði á Suðurlandi Það eru ánægðir íbúðaeigendur, sem taka á móti lyklum sínum í dag í 35 nýjum íbúðum á Selfossi en blokkin, sem fólkið er að flytja í er hæsta húsnæði á Suðurlandi upp á sex hæðir. Allar íbúðirnar í blokkinni seldust án auglýsinga. Byggingarverktakinn er byrjaður að byggja aðra blokk við hlið þeirra nýju. Innlent 4. desember 2021 13:03
Hart tekist á um fyrirhugaða landfyllingu í Skerjafirði Fulltrúar minnihlutans í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkurborgar eru mjög gagnrýnir á fyrirhugaða landfyllingu í tengslum við nýja byggð í Nýja-Skerjafirði. Innlent 3. desember 2021 13:56
Rætt um að ganga enn lengra en allir sammála um stýrivaxtahækkunina Allir fimm nefndarmenn í peningastefnunefnd Seðlabankans voru sammála tillögu Seðlabankastjóra um að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig í nóvember. Rætt var þó um að hækka þá enn meira. Viðskipti innlent 2. desember 2021 07:37
Skortur á því sem skiptir venjulegt fólk raunverulegu máli Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, segir fagnaðarefni að ekki sé farið í „blóðugan niðurskurð“ í nýju fjárlagafrumvarpi. Hún segist hafa óttast það enda sé það iðulega gert á krepputímum þessum. Að öðru leyti sé „lítið að frétta“ úr fjárlögunum. Innlent 30. nóvember 2021 19:47
Leigjendur fordæma stjórnarsáttmálann Í nýjum stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs er ekki að finna neina stefnubreytingu í húsnæðismálum. Skoðun 28. nóvember 2021 17:01
Íslandsbanki hækkar einnig vexti Íslandsbanki hefur tilkynnt um breytingar á vöxtum í kjölfar vaxtaákvörunar Seðlabanka Íslands þegar stýrivextir voru hækkaðir um 0,5 prósentustig. Stóru bankarnir þrír hafa því allir tilkynnt um vaxtahækkun. Neytendur 26. nóvember 2021 13:02
Gætu borgað fyrir lyftu og viðhald með nýrri hæð Húsfélög lyftulausra fjölbýlishúsa gætu niðurgreitt uppsetningu á lyftu með því að bæta nýrri hæð ofan á hús sín, samkvæmt nýjum hugmyndum að hverfisskipulagi í Reykjavík. Markmiðið er að bæta aðgengi og gera eldra fólki kleift að búa lengur í íbúðum sínum. Innlent 25. nóvember 2021 21:01
Landsbankinn hækkar vexti Landsbankinn hækkar breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,35 prósentustig í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabankans. Neytendur 24. nóvember 2021 17:25
Keyptu eina dýrustu lúxusíbúð í Reykjavík Búið er að selja 337 fermetra lúxusþakíbúð við Austurhöfn við hlið Hörpu. Félagið K&F ehf. keypti eignina en félagið er í eigu hjónanna Kesara Margrét Jónsson, prófessors í grasa- og plöntuerfðafræði og Friðriks Ragnars Jónssonar, verkfræðings og forstjóra. Viðskipti innlent 23. nóvember 2021 22:23
Fasteignavelta dregst saman um þrettán prósent Fasteignavelta á landsvísu minnkaði um 12,8% í október samhliða fækkun kaupsamninga. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Þjóðskrár sem byggir á þinglýstum gögnum. Viðskipti innlent 23. nóvember 2021 17:58
Ásókn í breytilega vexti hefur ekki verið minni síðan í byrjun árs 2019 Í október voru 85 prósent nýrra íbúðalána til heimila með föstum vöxtum en einungis 15 prósent með breytilegum vöxtum. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Seðlabanka Íslands um útlán í bankakerfinu. Veiting íbúðalána með breytilegum vöxtum hefur ekki verið minni frá því í janúar 2019. Innherji 22. nóvember 2021 16:07
Stjórnvöld halda því opnu hvort kröfur neytenda á ÍL-sjóð fyrnist „Ég get ekki séð annað en að íslenska ríkið hafi dregið til baka skýra yfirlýsingu um að það muni ekki bera fyrir sig fyrningu gagnvart neytendum verði uppgreiðslugjald dæmt ólögmætt. Nú virðist ríkið ætla að halda því opnu hvort það beri fyrir sig fyrningu,“ segir Jónas Friðrik Jónsson hæstaréttarlögmaður, sem fer með mál sambúðarfólks gegn ÍL-sjóði, áður Íbúðarlánasjóði, sem varðar lögmæti uppgreiðslugjalds. Innherji 22. nóvember 2021 12:30
Fyrstu kaupendur hafa aldrei verið fleiri Tæplega 34 prósent allra kaupenda íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu á þriðja ársfjórðungi voru að kaupa sína fyrstu íbúð. Hlutfallið hefur aldrei verið hærra. Viðskipti innlent 22. nóvember 2021 11:08
10 kröfur leigjenda á Íslandi Stjórn Samtaka leigjenda á Íslandi vinnur að því að leggja fram frumvarp að kröfum leigjanda fyrir leigjendaþing sem haldið verður í febrúar eða mars á næsta ári. Tillögur stjórnar verða ræddar á félagsfundi Samtakanna, sem haldinn verður í Breiðfirðingabúð og á zoom kl. 14 næsta laugardag, 27. nóvember. Skoðun 22. nóvember 2021 08:00
Spá því að fólk snúi aftur í verðtryggð húsnæðislán Árshækkun húsnæðis hefur ekki mælst meiri frá því í október 2017 og er raunverð húsnæðis nú í sögulegum hæðum. Húsnæðisverð hefur því hækkað um 4,3% síðustu þrjá mánuði og um 17,1% undanfarna tólf mánuði, samkvæmt nýjum tölum Þjóðskrár. Viðskipti innlent 19. nóvember 2021 16:35
Ný hæð borgar fyrir lyftu og viðhald Í kynningu sem var að hefjast á hugmyndum og tillögum að hverfisskipulagi fyrir Háteigshverfi, Hlíðahverfi og Öskjuhlíðarhverfi eru sýndar hugmyndir um að heimila húsfélögum lyftulausra fjölbýlishúsa að bæta við íbúðarhæð samtímis því sem bætt er við lyftu. Skoðun 19. nóvember 2021 12:01
Fjölgar í foreldrahúsum Heimsfaraldurinn hefur haft mikil áhrif á þróun leigumarkaðsins hér á landi og sést það vel í aldurshópnum 18 til 24 ára. Árið 2020 bjuggu 16% fleiri á því aldursbili í foreldrahúsum en árið 2019. Á sama tíma minnkar hlutfallið eða stendur í stað í öðrum aldurshópum. Viðskipti innlent 18. nóvember 2021 09:58
Fátt bendi til að markaðurinn sé farinn að kólna Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,4% milli september og október sem er meiri hækkun en sást mánuðinn á undan. Íbúðaverð hækkaði um 1,2% milli ágúst og september en síðastliðna þrjá mánuði hefur verð hækkað um 4,3%. Viðskipti innlent 17. nóvember 2021 10:04
Íbúðamarkaðurinn okkar Fjármagn stýrir miklu. „Cash is king“ er stundum sagt á enskunni. Ein stærsta yfirsjónin í aðdraganda kreppunnar 2008 á heimsvísu var hve lítið hagfræðilíkön tóku mið af áhrifum fjármálakerfisins á hagkerfið. Nú er talað um fjármálasveiflu, ekki bara hagsveiflu. Umræðan 16. nóvember 2021 14:31
Halldór segir lánið frá Fossum tengjast ótengdu og ónefndu verkefni Halldór Kristmannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Alvogen og Alvotech, gagnrýnir fréttaflutning Vísis um fasteign hans og viðskipti við Fossa ehf. og segir umfjöllunina „í öllum aðalatriðum ranga“ og byggða á „órökstuddum vangaveltum.“ Viðskipti innlent 16. nóvember 2021 13:50
Dularfull fjármögnun dýrasta húss á Íslandi Halldór Kristmannsson hefur sett hús sitt við Sunnuflöt 48 í Garðabæ á sölu. Höll. Ef Halldór fær viðunandi tilboð má búast við því að þar fari dýrasta hús Íslandssögunnar. Enda um glæsilega lúxusvillu að ræða sem vart á sér hliðstæðu hér á landi. Viðskipti innlent 16. nóvember 2021 07:57
Segir hagstæðara að kaupa fyrstu eign í dag en eftir ár Hagstæðara er fyrir þá sem ætla sér að koma sér inn á fasteignamarkaðinn sem fyrstu kaupendur að gera það núna en það verður eftir um ár. Vaxtahækkunarferli sé nú hafið og útlit sé fyrir að það muni halda áfram og á sama tíma mun hægja á íbúðaverðshækkunum. Viðskipti innlent 15. nóvember 2021 14:29