Pólverjar fyrstir til að senda orrustuþotur til Úkraínu Andrzej Duda, forseti Póllands, tilkynnti í dag að minnst ellefu MiG-29 orrustuþotur frá tímum Sovétríkjanna yrðu sendar til Úkraínu og að fjórar þeirra yrðu sendar á næstu dögum. Pólland varð þar með fyrsta aðildarríki Atlantshafsbandalagsins til að senda Úkraínumönnum orrustuþotur. Erlent 16. mars 2023 16:19
Birtu myndband af þotunni lenda á drónanum Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur birt myndband sem sýnir þegar rússneskri herþotu var flogið á bandarískan dróna yfir Svartahafi. Myndbandið sýnir rússneska flugmenn reyna að varpa eldsneyti á drónann og í annarri tilrauninni lendir ein herþotan utan í drónanum svo hreyfill hans skemmist. Erlent 16. mars 2023 10:08
Rússar sagðir komnir á staðinn þar sem dróninn brotlenti Rússar eru mættir á staðinn þar sem flygyldi Bandaríkjamanna brotlenti á Svartahafi. Mark Milley, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segir drónann líklega á töluverðu dýpi og að erfitt verði að ná honum upp. Erlent 16. mars 2023 07:51
Tyrkir sagðir ætla að samþykkja umsókn Finna Útlit er fyrir að yfirvöld í Tyrklandi ætli að samþykkja aðildarumsókn Finna í Atlantshafsbandalagið á næstu vikum en forseti Finnlands mun fara til Tyrklands á morgun. Tyrkir ætla þó ekki að samþykkja umsókn Svía að svo stöddu. Erlent 15. mars 2023 16:48
Rússar ætla að sækja drónann í Svartahaf Rússar ætla að reyna að sækja brak bandaríska drónans sem brotlenti í Svartahafi í gær. Bandaríkjamenn segja drónann hafa lent í hafinu eftir að rússneskri herþotu hafi verið flogið utan í hann. Erlent 15. mars 2023 15:00
Sendiherra Rússa í Bandaríkjunum kallar uppákomuna „ögrun“ Anatoly Antonov, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum, sagði í samtali við ríkisfréttastofuna RIA í gær að atvik sem átti sér stað í gær þegar rússneskar herþotur höfðu afskipti af bandarískum dróna hefði falið í sér ögrun. Erlent 15. mars 2023 06:40
Lýsir innrásinni í Úkraínu sem „deilu um landsvæði“ Helsti áskorandi Donalds Trump um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins á næsta ári lýsir innrás Rússa í Úkraínu sem deilu um landsvæði. Hann telur það ekki brýna hagsmuni Bandaríkjanna að verja Úkraínu. Erlent 14. mars 2023 19:58
Zelensky þakkar Íslendingum fyrir stuðninginn allt frá upphafi innrásar Úkraínuforseti þakkaði Íslendingum fyrir stuðning þeirra við Úkraínu allt frá upphafi innrásar Rússa á sameiginlegum fundi með forsætis- og utanríkisráðherra ytra í dag. Forsætisráðherra segir mikilvægt að sjá afleiðingar stríðsins með eigin augum og undirbúa leiðtogafund í Reykjavík í maí um málefni Úkraínu. Innlent 14. mars 2023 19:10
Rússar þvinguðu bandarískan dróna til nauðlendingar Bandaríski flugherinn sakar Rússa um glannaskap þegar rússnesk herþota þvingaði bandarískan eftirlitsdróna til þess að nauðlenda í Svartahafi í dag. Atvikið er það fyrsta á milli ríkjanna tveggja frá því að stríðið í Úkraínu hófst. Erlent 14. mars 2023 17:33
Fundi Katrínar og Zelenskys lokið Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu áttu um klukkustundar fund í Kænugarði í dag. Þar ræddu þau meðal annars um væntanlegan leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík í maí þar sem Úkraína verður aðal dagskrárefnið. Innlent 14. mars 2023 15:23
Rússum boðið á mót í Asíu þrátt fyrir bönn UEFA og FIFA Rússneska karlalandsliðinu í fótbolta hefur verið boðið að taka þátt í nýju móti knattspyrnusambands Mið-Asíu sem fram fer í júní. Fótbolti 14. mars 2023 14:01
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Af hverju vilja Úkraínumenn halda Bakhmut? Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að framtíð Úkraínumanna muni ráðast á víglínunum í austurhluta landsins. Hann segir stöðuna þar vera mjög erfiða en það þurfi að gera út af við hernaðarmátt Rússa og það muni Úkraínumenn gera. Erlent 14. mars 2023 14:01
Katrín segir sláandi að sjá afleiðingar innrásar Rússa Forsætisráðherra segir sláandi að sjá ummerkin eftir innrás Rússa í Úkraínu og hitta íbúana sem urðu vitni af hryllingnum á fyrstu dögum innrásarinnar. Hún og utanríkisráðherra funda með forseta, forsætisráðherra Úkraínu og fleirum í Kænugarði í dag. Innlent 14. mars 2023 11:26
Katrín og Þórdís Kolbrún virða fyrir sér eyðilegginguna í Bucha Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra eru þessa stundina í bænum Bucha í Úkraínu til að kynna sér aðstæður. Rússneskar hersveitir frömdu fjöldamorð á óbreyttum borgurum í upphafi innrásarinnar í febrúar og mars í fyrra. Innlent 14. mars 2023 09:20
Katrín og Þórdís Kolbrún á leið til Bucha Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra eru komnar til Úkraínu eftir um sólarhrings ferðalag frá Íslandi. Þær og fylgdarlið þeirra komu með næturlest til ótilgreinda staðar snemma í morgun. Innlent 14. mars 2023 07:55
Sagðir ætla að höfða mál gegn Rússum fyrir stríðsglæpi Saksóknarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) ætla að höfða tvö mál gegn Rússum vegna ódæða þeirra í Úkraínu. Saksóknarar vilja leggja fram nokkrar handtökuskipanir vegna stríðsglæpa en rannsakendur dómstólsins hafa um mánaða skeið verið að störfum í Úkraínu. Erlent 13. mars 2023 15:23
Katrín og Þórdís Kolbrún á leið til Úkraínu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra eru á leið til Kænugarðs í Úkraína til fundar við Volodymyr Zelensky forseta landsins og aðra ráðamenn. Meðal annars verður rætt um þátttöku Úkraínu á leiðtogafundi Evrópuráðsríkja sem fram fer í Reykjavík í maí. Innlent 13. mars 2023 11:32
Segja Rússa viljandi láta Wagner blæða í Bakhmut Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War telur ósættið milli stjórnvalda í Rússlandi og Yevgeny Prigozhin, stofnanda Wagner málaliðahópsins, hafa náð hámarki. Erlent 13. mars 2023 07:13
Rússar halda uppi öflugum hryðjuverkaárásum á borgir í Úkraínu Forstjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar segir ekki hægt að líða stöðugar sprengjuárásir Rússa á Kjarnorkuverðið í Zaporizhhia sem varð án rafmagns í sjötta sinn í nótt. Að minnsta kosti fimm óbreyttir borgarar féllu í stórfelldum eldflaugaárásum Rússa á fjölda borga í Úkraínu í gærkvöldi og nótt. Erlent 9. mars 2023 19:41
Umfangsmiklar loftárásir víðsvegar um Úkraínu Allt að 40 prósent af íbúum Kænugarðs eru án hita eftir umfangsmiklar loftárásir Rússa á skotmörk víðsvegar í landinu. Árásirnar virðast meðal annars hafa beinst gegn orkuinnviðum og hafa valdið rafmagnsleysi í Kharkív, Odessa og víðar. Erlent 9. mars 2023 06:22
Segja rússneska björninn búinn á því Avril D. Haines, æðsti yfirmaður leyniþjónustusamfélags Bandaríkjanna, sagði bandarískum öldungadeildarþingmönnum í dag að rússneski herinn hefði líklega ekki burði til að leggja undir sig mikið meira landsvæði í Úkraínu á þessu ári. Þess í stað séu þeir líklegir til að byggja upp varnir og reyna að halda þeim svæðum sem þeir hafa náð. Erlent 8. mars 2023 19:44
Í „vægu áfalli“ vegna gleðifrétta um ríkisborgararétt Andrei Menshenin, rússneskur blaðamaður sem staðið hefur fyrir mótmælum fyrir utan rússneska sendiráðið í þágu Úkraínumanna, er á meðal þeirra 17 einstaklinga sem eru á lista frumvarps til laga um veitingu ríkisborgararéttar. Hann kveðst vera í vægu áfalli vegna gleðitíðindanna og enn að reyna að melta þá staðreynd að hann verði ekki sendur aftur til Rússlands líkt og hann óttaðist. Innlent 8. mars 2023 17:51
Síðasta orrusta Wagner? Serhiy Cherevaty, yfirmaður hersveita Úkraínu í austurhluta landsins, segir orrustuna um Bakhmut þá síðustu sem sveitir Wagner málaliðahópsins munu há. Hann segir þúsundir liðsmanna Wagner hafa fallið í átökunum. Erlent 8. mars 2023 10:29
Mynduðu aftöku óvopnaðs stríðsfanga Yfirvöld í Úkraínu rannsaka nú myndband sem birt var á samfélagsmiðlum í gær sem sýnir rússneska hermenn skjóta úkraínskan stríðsfanga til bana. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heitir því að hermennirnir muni finnast. Erlent 7. mars 2023 23:02
Gruna hóp tengdan Úkraínu um Nord Stream árásina Yfirvöld í Bandaríkjunum og Þýskalandi telja hóp manna sem tengjast Úkraínu bera ábyrgð á skemmdarverkum sem unnin voru á Nord Stream gasleiðslunum í Eystrasaltshafi. Leiðslurnar sem lágu frá Rússlandi til Þýskalandi eyðilögðust í sprengingu í fyrra. Erlent 7. mars 2023 20:01
Tuttugu ára tenniskona vann táknrænan sigur á Rússa í úrslitaleik Úkraínska tenniskonan Marta Kostjuk vann um helgina sitt fyrsta mót á WTA mótaröðinni þegar hún fagnaði sigri í Austin í Texas. Sport 7. mars 2023 11:01
Bakhjarlar Úkraínu leggja til undanhald frá Bakhmut Úkraínumenn segjast ætla að halda Bakhmut í Dónetskhéraði, þrátt fyrir erfitt ástand þar og að Rússum hafi vaxið ásmegin. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, fundaði með herforingjaráði Úkraínu þar sem talað var um að senda meiri liðsauka á svæðið. Erlent 6. mars 2023 23:35
„Verðum að sýna fólki að Úkraína lifir“ Hástökkvarinn Yaroslava Mahuchikh færði Úkraínu einu gullverðlaun þjóðarinnar á Evrópumótinu innanhúss í frjálsum íþróttum, í Istanbúl um helgina. Hún tjáði sig um stríðið heima fyrir og mögulega þátttöku Rússa á Ólympíuleikum í viðtali eftir keppni. Sport 6. mars 2023 15:30
Prigozhin segir menn sína óttast að verða gerðir að blórabögglum Stofnandi Wagner málaliðahópsins segir bardagamenn hópsins í Úkraínu ekki hafa fengið umsamin skotfæri frá Rússlandi og segir annað hvort um að ræða afleiðngar skrifræðis eða hrein og klár svik. Erlent 6. mars 2023 12:50
Segja Rússa dusta rykið af 60 ára gömlum skriðdrekum Breska varnarmálaráðuneytið segir hermálayfirvöld í Rússlandi hafa dregið fram um það bil 800 T-62 skriðdreka úr geymslum sínum, sem eiga að koma í stað þeirra sem tapast hafa í Úkraínu. Erlent 6. mars 2023 08:04