Segir að flugfreyjur og flugmenn þurfi að taka á sig allt að 60% launalækkun Flugfreyjur og flugmenn Icelandair verða að taka á sig 50 til 60% launalækkun til þess að forða flugfélaginu frá gjaldþroti. Viðskipti innlent 11. maí 2020 08:09
Flugmenn og Icelandair funda áfram á morgun Fundi samninganefnda Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Icelandair lauk skömmu fyrir klukkan tíu í kvöld. Formaður FÍA segist vongóður um að viðræðurnar séu á réttu spori. Fundað verður áfram á morgun. Innlent 10. maí 2020 22:47
Telur Icelandair stefna í gjaldþrot að óbreyttu Icelandair stefnir að óbreyttu í gjaldþrot að sögn fjármála- og efnahagsráðherra. Ekkert tilefni sé til þess að ríkið gerist hluthafi í félaginu nema í algjörri neyð. Innlent 10. maí 2020 20:09
Flugmenn bjóðast til að taka á sig fjórðungslækkun Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur gert samninganefnd Icelandair tilboð sem felur í sér kjaraskerðingu upp á 25 prósent. Samninganefndir þeirra sitja nú á fundi sem búist er við að standi fram á kvöld. Innlent 10. maí 2020 19:55
Flugvirkjar taka á sig skerðingu með samningi við Icelandair Icelandair ehf. og Flugvirkjafélag Íslands hafa undirritað nýjan kjarasamning á milli félaganna sem gildir til ársloka 2025. Formaður Flugvirkjafélagsins segir félagsmenn taka á sig kjaraskerðingu til að veita sveigjanleika vegna ástandsins. Innlent 10. maí 2020 18:05
Flugfreyjufélagið sættir sig ekki við launaskerðingu til langs tíma Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, starfandi formaður Flugfreyjufélags Íslands, segir félagsmönnum sínum brugðið yfir bréfi Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, þar sem hann segir starfsfólk félagsins helstu fyrirstöðu þess að hægt sé að bjarga félaginu frá falli. Innlent 10. maí 2020 17:09
Framtíð Icelandair á bláþræði og aðgerðir stjórnvalda í Víglínunni Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir hundruð milljaðra aðgerðir stjórnvalda þrengja að ríkissjóði í framtíðinni. Hann ræðir framtíð Icelandair og aðgerðapakka stjórnvalda í Víglínunni ásamt Helgu Völu Helgadóttur formanni velferðarnefndar sem einnig gagnrýnir frumvarp um útlendinga harðlega, Innlent 10. maí 2020 16:30
Fundi slitið hjá FFÍ og Icelandair án niðurstöðu Saminganefnd Icelandair gekk út af fundi með samninganefnd Flugfreyjufélags Íslands nú fyrir skömmu. Innlent 10. maí 2020 15:15
FFÍ meðvitað um erfiða stöðu Icelandair en segir tillögurnar fela í sér of mikla skerðingu Flugfreyjufélag Íslands segir þær tillögur sem Icelandair hefur sett á borðið færa flugfreyjur nær þeim kjörum sem þekkjast í vestrænum heimi. Innlent 10. maí 2020 13:34
Segir starfsfólk Icelandair vera lausnina, ekki vandamálið Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, virðist ekki vera kátur með þá upplifun forstjóra Icelandair að helsta fyrirstaðan fyrir björgun Icelandair sé starfsfólkið sem starfi hjá fyrirtækinu Viðskipti innlent 10. maí 2020 12:02
Ríkissáttasemjari boðar Flugfreyjufélag Íslands og Icelandair á fund Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair til fundar klukkan tvö í dag. Innlent 10. maí 2020 12:00
Segir að svo virðist sem sum fyrirtæki hafi nýtt sér hlutabótaleiðina til að bjarga árshlutauppgjörum Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, segir að það virðist sem svo að sum fyrirtæki, sem séu alls ekki í alvarlegum rekstrarvanda, hafi nýtt sér hlutabótaleiðina til að bjarga ársfjórðungsuppgjörum og með því ætlað sér að ganga í augum á fjárfestum. Hann segir þó að óvissan hafi verið mikil og því að einhverju leyti skiljanlegt að fyrirtækin hafi sótt í hlutabótaleiðina. Viðskipti innlent 10. maí 2020 11:32
Segir starfsfólkið helstu fyrirstöðu þess að Icelandair verði bjargað Starfsfólk Icelandair er helsta fyrirstaða þess að hægt sé að bjarga Icelandair frá falli, að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra flugfélagsins, í bréfi til starfsmanna. Hann segir að ljúka verði langtímasamningum við flugstéttir félagsins fyrir föstudaginn 22. maí. Viðskipti innlent 9. maí 2020 23:35
Bjarni segir eðlilegt að fyrirtæki skili stuðningi stjórnvalda þegar betur árar Fjármálaráðherra segir til greina komið að fyrirtæki sem nýti sér hlutabætur á uppsagnartíma greiði þær til baka á þremur til fimm árum þegar fyrirtækin fari að skila hagnaði. Innlent 8. maí 2020 19:20
Hagar endurgreiða og Festi hættir að þiggja Fyrirtækin Hagar og Festi hafa ákveðið að nýta sér ekki hlutabótaleið stjórnvalda. Þetta kemur fram í tilkynningum frá fyrirtækjunum á fimmta tímanum. Viðskipti innlent 8. maí 2020 16:53
Settu starfsmenn á hlutabætur, keyptu eigin bréf og greiddu arð Tvö félög sem skráð eru á aðallista Kauphallarinnar nýttu sér hlutabótaleið stjórnvalda samhliða því að kaupa eigin bréf. Viðskipti innlent 7. maí 2020 06:08
1700 farþegar flugu með Icelandair í apríl Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu þar sem segir að þessi fjöldi farþega endurspegli þá stöðu sem nú ríkir í alþjóðaflugi vegna kórónuveirufaraldursins og þeirra ferðatakmarkana sem eru í gildi núna um allan heim. Viðskipti innlent 6. maí 2020 16:52
Samningur ríkisins við Icelandair um flugferðir framlengdur Icelandair heldur áfram að bjóða upp á lágmarksflugferðir til þriggja áfangastaða samkvæmt endurnýjuðu samkomulagi við íslensk stjórnvöld. Alls mun félagið fljúga 22 tvær ferðir til og frá landinu til og með 16. maí. Innlent 6. maí 2020 16:05
Samkeppniseftirlitið rannsakar viðskipti með bréf Brims Samkeppnisyfirlitið hyggst rannsaka „hvort stofnast hafi til yfirráða Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og tengdra aðila í Brimi hf. vegna tiltekinna viðskipta Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og tengdra aðila á árinu 2019 með eignarhluti í Brimi hf.“ Viðskipti innlent 6. maí 2020 09:09
Starfslok Finns og Guðmundar kosta Haga vel yfir 300 milljónir Starfslok þeirra Finns Árnasonar, forstjóra Haga, og Guðmundar Marteinsson, framkvæmdastjóra Bónus, munu kosta Haga vel yfir 300 milljónir króna. Viðskipti innlent 6. maí 2020 08:59
Icelandair verði í skötulíki næsta árið Stjórnendur Icelandair Group áætla að starfsemi félagsins verði lítil sem engin næstu 12 mánuðina. Viðskipti innlent 6. maí 2020 07:18
Icelandair og flugfiskurinn verðmæti Til að tryggja sem hæst verð fyrir íslenskan fisk þurfa íslenskir fisksölumenn að hafa allar klær úti við að finna kaupendur og koma fisknum til þeirra. Skoðun 5. maí 2020 15:00
„Það er samfélagsleg nauðsyn að hér sé flugfélag“ Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir það markmið stjórnvalda og sína eindregnu skoðun að nauðsynlegt sé að hér sé flugfélag sem sé með höfuðstöðvar og að flugsamgöngum sé ekki haldið uppi með tilviljanakenndum hætti. Viðskipti innlent 5. maí 2020 10:39
Icelandair tapaði 30,9 milljörðum Lausafjárstaða Icelandair Group nam 40 milljörðum króna, 281 milljón dollara, í lok mars að því er fram kemur í fyrsta ársfjórðungsuppgjöri félagsins sem birt var í kvöld. Alls tapaði félagið 30,9 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi ársins. Viðskipti innlent 4. maí 2020 18:50
Lægsta gengi hlutabréfa Icelandair frá upphafi Gengi á hlutabréfum í Icelandair í Kauphöll Íslands hefur hrapað um tæp þrjátíu prósent síðan viðskipti hófust í morgun. Viðskipti innlent 4. maí 2020 10:45
Icelandair og staða efnahagsmála í Víglínunni Erfið staða blasir við Icelandair en fyrirtækið þurfti að segja upp rúmlega tvö þúsund starfsmönnum um mánaðamótin í stærstu hópuppsögn lýðveldissögunnar. Innlent 3. maí 2020 16:45
Stærsti hluti rekstrartaps vegna rýrnunar á viðskiptavild Rekstrartap Icelandair á fyrsta ársfjórðungi nemur ríflega þrjátíu milljörðum króna. Stærsti hluti tapisins er niðurfærsla viðskiptavildar. Gert er ráð fyrir að lausafjárstaða fari undir lágmark á næstu vikum. Þetta kemur fram í bráðabirgðauppgjöri félagsins fyrir 1. ársfjórðung sem birtist í gær Viðskipti innlent 2. maí 2020 13:55
Tekjur Icelandair drógust saman um 16% á fyrsta ársfjórðungi Mikill samdráttur í eftirspurn eftir flugferðum vegna kórónuveirufaraldursins leiddi til þess að tekjur Icelandair drógust saman um 16% á fyrsta ársfjórðungi þess árs. Viðskipti innlent 1. maí 2020 19:50
Mjög bjartsýnn á að það takist að safna þrjátíu milljörðum í nýtt hlutafé Forstjóri Icelandair Group er bjartsýnn á að það takist að safna hátt í þrjátíu milljörðum í aukið hlutafé. Fyrirtækið verði í lykilhlutverki þegar kemur að því að reisa við efnahag landsins. Stefnt er að hlutafjárútboði um miðjan júní fyrir almenning og fagfjárfesta. Innlent 1. maí 2020 18:39
Leggur til að ríkið láni fyrir hlutabréfum í nýju dótturfélagi Þingmaður Samfylkingarinnar segir eðlilegt að ríkið komi félaginu til hjálpar vegna þeirra þrenginga sem kórónuveirufaraldurinn hafði í för með sér en eigendur verði að takast á við fortíðarvanda félagsins. Innlent 1. maí 2020 13:27