Annað Ísland í útlöndum Fjöldi erlendra starfsmenn íslenskra fyrirtækja í útlöndum hefur rúmlega áttatíufaldast á rúmum áratug og eru þeir nú jafn margir ef ekki fleiri en allir starfandi einstaklingar hér á landi í fyrra. Viðskipti innlent 10. október 2007 00:01
Stærstu bankakaupin senn að veruleika Þrír bankar frá Belgíu og Spáni undir forystu Royal Bank of Scotland (RBS) hafa tryggt sér samþykki handhafa 86 prósenta hlutabréfa í ABN Amro, stærsta banka Hollands, fyrir yfirtöku á honum. Kaupverð nemur tæpum 72 milljörðum evra, rúmum 6.200 milljörðum íslenskra króna og allt útlit er fyrir að bankarnir taki þátt í einhverjum stærstu fyrirtækjakaupum í evrópskum fjármálaheimi til þessa. Viðskipti erlent 10. október 2007 00:01
Þrjár stoðir í FL Group eiga að skerpa áherslur í fjárfestingum 160 manns sóttu fjárfestadag FL Group í Lundúnum. Kynnt var nýtt skipurit og stefna. Starfsmönnum hefur fjölgað úr fimm í tæp 40 á einu ári. FL Group á auðseljanlegar eignir sem standa undir skuldbindingum félagsins til næstu 24 mánaða. Þetta er meðal þess sem fram kom í máli Hannesar Smárasonar, forstjóra FL Group, á Capital Markets Day fjárfestakynningu í Lundúnum fyrir helgi. Á fundinum var kynnt nýtt skipurit og skipulag félagsins, auk þess sem nánari grein var gerð fyrir fjárfestingastefnu þess. Viðskipti innlent 10. október 2007 00:01
Spá aukinni verðbólgu Greiningardeildir bankanna spá því að vísitala neysluverð hækki á bilinu 0,5 til 0,8 prósentustig á milli mánaða í október. Viðskipti innlent 10. október 2007 00:01
Útrás í anda stjórnarsáttmála Útrás Landsvirkjunar og Landsbankans í gegnum HydroKraft Invest er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í maí, að sögn Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjunar. Þar er talað um að tímabært sé „að leysa úr læðingi krafta einkaframtaksins svo að íslensk sérþekking og hugvit fái notið sín til fulls í útrás orkufyrirtækja“. Viðskipti innlent 10. október 2007 00:01
Strætóferð breytti lífinu Strætóferð Carlos Cardoza í heimalandi sínu, Kostaríku, fyrir um tíu árum átti eftir að gjörbreyta lífi hans. Þar hitti hann unga konu sem hann gaf sig á tal við. Viðskipti erlent 10. október 2007 00:01
Handan járntjaldsins Nokkur íslensk fyrirtæki námu land í Eystrasaltsríkjunum í kjölfar sjálfstæðis þeirra frá Rússlandi árið 1991 og hafa komið sér þar ágætlega fyrir. Viðskipti innlent 10. október 2007 00:01
Forstjórinn farinn Breskir fjölmiðlar segja marga farna frá Landsbankanum í Bretlandi. Bankastjórinn segir eðlilegar skýringar á málinu. Viðskipti erlent 10. október 2007 00:01
Umsvifamesti atvinnurekandinn Baugur Group trónir á toppnum yfir umsvifamesta íslenska fyrirtækið með langflesta erlenda starfsmenn á launaskrá á erlendri grund. Útrás fyrirtækisins hófst líkt og frægt er orðið með verslanarekstri í samstarfi við Arcadia og Debenhams á Norðurlöndunum um árið 2000 og hefur vaxið mikið síðan, ekki síst síðastliðin fimm ár með viðamiklum kaupum í Bretlandi og Danmörku. Viðskipti innlent 10. október 2007 00:01
Peningaskápurinn... Ekki gekk alveg áfallalaust að koma gestum með flugi frá Reykjavíkurflugvelli á fjárfestakynningu FL Group í Lundúnum í gær. Fara átti í loftið klukkan átta að morgni, en vegna þess hversu hægt gekk í öryggisskoðun var töfin orðin klukkustund þegar allir voru komnir um borð, sumir hverjir án tannkrems, rakspíra og hárgels sem er víst meðal stærstu ógna flugöryggis. Viðskipti innlent 5. október 2007 00:01
Bankahólfið: Forstjóraflétta Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis, hefur fundið sig vel í starfi stjórnarformanns Reykjavík Energy Invest. Það er ekki mikið mál fyrir reynslubolta úr viðskiptalífinu að hoppa á milli starfa sem eru ólík en eiga samt mikið sameiginlegt. Viðskipti innlent 3. október 2007 00:01
Peningaskápurinn ... FL Group sogar enn til sín starfsfólk. Síðast í gær var tilkynnt að Halldór Kristmannsson hefði verið ráðinn framkvæmdastjóri samskiptasviðs FL Group. Verður hann partur af framkvæmdastjórn félagsins og mun bera ábyrgð á öllu sem snýr að samskiptamálum. Viðskipti innlent 27. september 2007 00:01
Vonbrigði Nick Leeson hélt erindi á morgunverðarfundi á vegum Icebank og Háskólans í Reykjavík í gærmorgun. Leeson er þekktur fyrir það eitt að vera verðbréfamiðlarinn fyrrverandi sem setti Baringsbanka, viðskiptabanka Englandsdrottningar, á hausinn með harla vafasömum gjaldeyrisviðskiptum árið 1995. Leeson var eðlilega fullur eftirsjár enda gjaldþrotið eitt það stærsta í bankaheiminum. Viðskipti innlent 21. september 2007 09:01
Peningaskápurinn … Eins og segir hér annars staðar á síðunni hafði Lundúnaútibú Landsbankans milligöngu um kaup Úsbekans Alishers Usmanov á sex prósenta hlut í enska knattspyrnuliðinu Arsenal. Viðskipti innlent 20. september 2007 00:01
Peningaskápurinn ... Írland hefur verið nefnt „Keltneski tígurinn" vegna uppgangs og viðsnúnings í efnahagslífinu síðan á tíunda áratug síðustu aldar. Brendan Walsh, heiðursprófessor við University College Dublin, benti hins vegar á, í erindi sínu á málþingi Rannsóknaseturs um smáríki í gær, að þetta væri náttúrulega mikið misnefni. Viðskipti innlent 15. september 2007 00:01
Peningaskápurinn ... Viðskiptaráð, en svo nefnist félag viðskiptafræðinema við Háskólann í Reykjavík, stendur í hádeginu í dag fyrir forvitnilegu þingi. Þangað kemur að norðan til að halda erindi Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri fjárfestingabankans nýja, Saga Capital. Viðskipti innlent 13. september 2007 00:01
Bankahólfið: Skattaparadís Ingólfs Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fór á kostum á ráðstefnu Glitnis í New York um jarðvarmavirkjanir. Þar dró hann upp skemmtilega mynd af því hvernig Reykjavík væri eina höfuðborgin sem hlyti nafn af jarðvarma, þegar Ingólfur Arnarson nefndi staðinn eftir reyknum sem steig upp frá heitum laugunum. Viðskipti innlent 12. september 2007 00:01
Í svigi Ég er svo kátur þessa dagana að ég næ mér varla niður á jörðina. Fyrir menn eins og mig eru svona sveiflutímabil eins og svigbrekka fyrir góðan skíðamann. Viðskipti innlent 12. september 2007 00:01
Peningaskápurinn... Nokkuð hefur verið rætt upp á síðkastið um netþjónabú, sem bandarísku hugbúnaðar- og netfyrirtækin Microsoft, Yahoo, Google, ásamt öðrum, eru að skoða að reisa hér á landi. Á ráðstefnu Skýrslutæknifélags Íslands í vikunni um netþjónabúin komu upp vangaveltur um nafnið enda gætu bú sem þessi geymt mun meira en netþjóna eina. Viðskipti innlent 8. september 2007 00:01
Peningaskápurinn ... Margir hafa reynt að komast yfir TM en engum tekist það fyrr en nú að FL Group, Sund og Glitnir náðu þar undirtökunum. Jón Ásgeir Jóhannesson, sem reyndi að komast til valda í TM fyrir nokkrum árum án árangurs, er því kominn með pálmann í hendurnar. Viðskipti innlent 7. september 2007 00:01
Peningaskápurinn ... Indverska samstæðan United Breweries, sem meðal annars á eitt af stærstu brugghúsum heims og er þekktast fyrir Kingfisher-bjórinn, hefur keypt skoska vískíframleiðandann Whyte & Mackay. Kaupverð nemur 595 milljónum punda, jafnvirði 77 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 6. september 2007 00:01
Lesið í garnir markaðar Maður væri nú sennilega ekki að fást við það sem maður fæst við, ef ekki væri vegna þess að maður er vel læs á atburði líðandi stunda og auk þess spámannlega vaxinn. Viðskipti innlent 5. september 2007 00:01
Ríkasti hundurinn? Og aftur að „mini-görkunum“. Yngstu börnin á topp tíu listanum eru þriggja ára tvíburar vodkakóngsins og fagurkerans Rustam Tariko. Blessuð börnin gætu reyndar þurft að skipta arfinum með hundi sem föður þeirra er afar annt um enda klæðir hann ferfætlinginn í dýrasta skart. Viðskipti innlent 5. september 2007 00:01
Litlir milljónerar Rússneska dagblaðið Finans hefur tekið saman lista um þau börn rússneskra nýríkra auðkýfinga sem erfa muni mestan auð að foreldrum sínum látnum. Þau börn ein eru gjaldgeng á listann sem munu erfa jafnvirði eins milljarðs Bandaríkjadala, rúma 64 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 5. september 2007 00:01
Guðlast í Símanum? Í gær birti fréttavefurinn mbl.is frétt þess efnis að biskupi Íslands, Karli Sigurbjörnssyni, þætti nýjar auglýsingar fyrirtækisins ósmekklegar. Auglýsingarnar sýna Jesú og lærisveina hans við síðustu kvöldmáltíðina. Hann uppgötvar að Júdas er ekki við matarborðið en er ekki lengi að hafa uppi á honum með splunkunýjum 3G-símanum sínum. Viðskipti innlent 5. september 2007 00:01
Peningaskápurinn ... Breski tónlistarfrömuðurinn Peter Gabriel hefur með fleirum fjárfest fyrir sem svarar til 340 milljóna íslenskra króna í netfyrirtækinu The Filter. Fyrirtækið heldur úti leitarvél á netinu sem finnur tónlist auk þess að mæla með tónlist af svipuðum toga. Viðskipti erlent 31. ágúst 2007 00:01
Peningaskápurinn Það er ekki öldungis rétt sem fram hefur komið í fjölmiðlum að SPRON sé fyrsti sparisjóðurinn sem verður hlutafélag. Tveir aðrir sparisjóðir eru nefnilega hlutafélög, nb.is-sparisjóður hf. (Netbankinn) og Sparisjóður Kaupþings hf. Þeir „sluppu" nefnilega í gegn áður en núgildandi lögum um sparisjóði var breytt árið 2004 sem margir vilja meina að hafi verið sett til höfuðs Kaupþingi og SPRON. Viðskipti innlent 30. ágúst 2007 00:01
Að ganga á vatni Viðskipti eru öðrum þræði list. Þetta var niðurstaða mín þar sem ég stóð úti í miðri laxveiðiánni sem loksins er byrjuð að gefa eftir þurrkasumarið mikla. Viðskipti innlent 29. ágúst 2007 05:00
Hagnaður í smákökum Og enn um litlu fjárfestana því ekki þarf nema örlitla þekkingu á hlutabréfaviðskiptum til að sjá að stórhættulegt er að eyða hugsanlegum framtíðarhagnaði af hlutabréfadílum langt fram í tímann. Litlu fjárfestarnir sem komu ferskir inn á hlutabréfamarkað í niðursveiflunni geta hins vegar huggað sig við að bregði til beggja vona í hagnaðartökunni þá eigi þeir víst sæti á hluthafafundum. Viðskipti innlent 29. ágúst 2007 05:00
Litlu fjárfestarnir Líkamsræktarstöð World Class í Laugum í Reykjavík hefur löngum þótt helsti viðkomustaður flotta fólksins. Búningsklefinn í Laugum sem veitir aðgang að baðstofunni þykir flottastur. Viðskipti innlent 29. ágúst 2007 04:30