Steinunn Hlíf samdi um starfslok Steinunn Hlíf Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri upplifunar viðskiptavina hjá Arion banka, hefur komist að samkomulagi við bankann um starfslok eftir að hafa gegnt starfinu og átt sæti í framkvæmdastjórn bankans frá árinu 2021. Viðskipti innlent 30. janúar 2024 15:35
Sótti yfir tvo milljarða frá fjárfestum og greiddi upp skuldir við Landsbankann Árni Oddur Þórðarson, fyrrverandi forstjóri Marel til tíu ára, hefur klárað fjármögnun upp á vel yfir tvo milljarða króna frá hópi einkafjárfesta og um leið gert upp skuldir sínar við Landsbankann. Hann verður með minnihluta í nýju fjárfestingafélagi sem heldur utan um stóran hlut í Eyri Invest. Innherji 30. janúar 2024 14:38
Sagan sýnir að annað eins bætist við kjarasamninga í formi launaskriðs Aðalhagfræðingur Kviku bendir á að þótt samið yrði um almenna krónutöluhækkun launa í yfirstandi kjarasamningum, sem gæti virst hófstillt, sýnir sagan að ofan á hana leggist síðan annað eins í formi launaskriðs. Hann telur jafnframt að jafnvel þótt kjarasamningar verði hófstilltir gæti Seðlabankinn viljað sjá skýr merki um hjöðnun verðbólgunnar áður en stóru skrefin verða stigin til að minnka vaxtaaðhaldið. Innherji 30. janúar 2024 11:52
Tengifarþegar geta nú sjálfir bókað ferð með stuttri viðdvöl á Íslandi Flugfélagið Play býður nú tengifarþegum sínum að bóka sjálfir dvöl á Íslandi án aukakostnaðar þegar þeir fljúga á milli Norður Ameríku og Evrópu. Með nýju viðmóti á vef flugfélagsins geta farþegarnir sjálfir klárað slíka bókun og þar með dvalið á Íslandi í allt að tíu daga áður en þeir halda för sinni áfram yfir Atlantshafið. Viðskipti innlent 30. janúar 2024 10:41
Hagnaður Össurar nam um átta milljörðum króna á síðasta ári Tekjur Össurar á fjórða ársfjórðungi 2023 námu 210 milljónum Bandaríkjadala, eða 29,2 milljörðum íslenskra króna, sem samsvarar níu prósenta innri vexti. Tekjur á nýliðnu áru námu því 786 milljónum Bandaríkjadala, eða 109,1 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti innlent 30. janúar 2024 07:44
Snýr aftur eftir stutt stopp hjá Laufinu Íslandsbanki hefur ráðið Brynjólf Bjarnason í stöðu forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar bankans. Brynjólfur, sem hefur áratugareynslu af störfum í fjármálageiranum, kemur nú aftur til liðs við Íslandsbanka eftir að hafa sinnt starfi framkvæmdastjóra hjá Laufinu frá því í fyrra. Viðskipti innlent 29. janúar 2024 17:42
Hlutabréfamarkaðurinn er í meira jafnvægi og „ekki allt á kostakjörum“ Hlutabréfamarkaðurinn er í meira jafnvægi en í lok október þegar hann var „nærri lágmarki“ en frá þeim tíma hefur hann hækkað nær linnulaust. „Það er ekki allt á kostakjörum á markaðnum lengur líkt og var fyrir um þremur mánuðum síðan,“ að mati hlutabréfagreinenda, en fyrirtæki á markaði voru þá vanmetin um tæp 37 prósent en nú er hlutfallið um 16 prósent. Innherji 29. janúar 2024 15:09
Mælir nú með kaupum í Alvotech og hækkar verðmatið um 70 prósent Alþjóðlegi fjárfestingabankinn Barclays mælir með því að fjárfestar bæti við sig í Alvotech, áður ráðlagði hann þeim að halda stöðu sinni, og hækkar verulega verðmatsgengi sitt á íslenska líftæknilyfjafélagið eftir að ljóst varð að það á von á því að fá samþykkt markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf. Fjárfestar eru nú með meiri vissu um að sá fjöldi lyfja sem eru í þróun hjá Alvotech fari að skila tekjum, að sögn Barclays, sem telur félagið verða með sterka samkeppnisstöðu á markaði vestanhafs með hliðstæðu við gigtarlyfið Humira. Innherji 29. janúar 2024 12:30
Fjármagn flæddi í hlutabréfasjóði á síðasta mánuði ársins Eftir nánast samfellt útflæði úr hlutabréfasjóðum um langt skeið varð viðsnúningur á síðasta mánuði ársins 2023 þegar fjárfestar settu talsvert fjármagn í slíka sjóði samhliða því að hlutabréfamarkaðurinn fór á mikið flug. Á sama tíma var hins vegar ekkert lát á áframhaldandi sölu fjárfesta í blönduðum sjóðum og skuldabréfasjóðum. Innherji 29. janúar 2024 10:37
IFS verðmetur Alvotech 47 prósentum hærra en markaðurinn IFS greining verðmetur gengi Alvotech 47 prósentum yfir markaðsverði. Fái fyrirtækið markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir hliðstæðu af líftæknilyfinu Humira, sem er gigtarlyf, í febrúar hækkar verðmatið þannig að það verður næstum tvöfalt hærra en markaðsvirðið er um þessar mundir. „Líftæknilyfjamarkaðurinn hefur farið ört vaxandi, í raun allt frá upphafi, sem gerir markað fyrir hliðstæðulyf einnig mjög spennandi og eftirsóknarverðan.“ Innherji 26. janúar 2024 13:44
Sigga Lund og Vala Eiríks kveðja Bylgjuna fullar þakklætis Útvarpskonurnar Valdís Eiríksdóttir og Sigga Lund voru á meðal þeirra ellefu sem fengu uppsögn hjá Sýn í gær. Þær greina frá þessu í færslum á samfélagsmiðlum og taka uppsögninni af miklu æðruleysi. Lífið 26. janúar 2024 13:23
Funheitar og fágaðar flugkonur Flugmannastarfið var lengi álitið karlastarf hér á landi eða til ársins 1984 þegar fyrsta konan, Sigríður Einarsdóttir, hóf atvinnuflugmannsferil sinn hjá Flugleiðum. Mikil fjölgun hefur orðið af kvenkyns flugmönnum hér á landi síðastliðin ár og er hlutfall kvenna í stéttinni með því hæsta í heiminum. Lífið 26. janúar 2024 10:12
Ellefu sagt upp hjá Sýn í dag Ellefu starfsmönnum var sagt upp hjá Sýn í dag. Uppsagnirnar eru þvert á allt fyrirtækið og segir nýr forstjóri erfitt rekstrarumhverfi að baki uppsögnunum. Viðskipti innlent 25. janúar 2024 15:44
Von á nokkrum nýskráningum í ár ef það verður áfram stemning á markaði Framkvæmdastjóri hjá Kauphöllinni á von á því að nokkur ný félög muni bætast við hlutabréfamaraðinn í ár en veigamikil atriði í umhverfinu sem skipta máli hvað það varðar hafa verið að þróast til betri vegar. „Við höfum orðið vör við talsverðan áhuga á skráningum. Þetta gæti orðið nokkuð spennandi ár ef verðlagning helst hagstæð og það verður áfram góð stemning á markaðnum.“ Innherji 25. janúar 2024 11:31
Telja brotið á mannréttindum flugfólks ADHD samtökin telja ljóst að brotið sé með margvíslegum hætti á ýmsum grundvallarréttindum fólks sem starfar við flug á Íslandi með innleiðingu skimana flugáhafna vegna notkunar geðvirkra efna á borð við lyfja við ADHD. Samtökin kalla eftir skýringum frá Samgöngustofu, Isavia, íslensku flugfélögunum og fleirum. Innlent 25. janúar 2024 10:50
Félag Róberts seldi breytanleg bréf á Alvotech fyrir um milljarð Fjárfestingafélag í aðaleigu Róbers Wessman, stofnanda og forstjóra Alvotech, seldi í síðustu viku, daginn áður en Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna lauk úttekt sinni á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins, breytanleg skuldabréf á líftæknilyfjafélagið fyrir tæplega einn milljarð króna. Bréfin voru seld með tugprósenta hagnaði frá því að þau voru keypt í lok júlí í fyrra. Innherji 24. janúar 2024 20:17
Tugmilljarða verðmæti í húfi og halda í vonina um loðnuvertíð Ráðamenn sjávarútvegsfyrirtækja halda enn í vonina um loðnuvertíð í vetur þrátt fyrir að Hafrannsóknastofnun hafi tilkynnt í dag að enginn loðnukvóti verði gefinn út eftir nýafstaðna loðnuleit. Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi fyrir þjóðarbúið. Viðskipti innlent 24. janúar 2024 19:48
Rask á flugi í fyrramálið vegna veðurs Flugi Play til Frankfurt í fyrramálið hefur verið aflýst vegna óveðurs en gul viðvörun tekur gildi í nótt. Þá hefur bæði brottförum til Evrópu og komum frá Bandaríkjunum verið seinkað. Innlent 24. janúar 2024 17:57
Við sjáum fyrir endann á sveiflunum Í upphafi síðasta árs horfðum við björtum augum á verðbréfamarkaðina. Við vonuðum að vaxtahækkanir væri langt komnar og að eftir þungt ár á verðbréfamörkuðum biðu okkar betri tímar. Næstu mánuðir buðu aftur á móti upp á áframhaldandi þyngsli. Skoðun 24. janúar 2024 12:31
„Mitt hlutverk að gera fyrirtækin mannréttindasinnaðri“ Róbert Spanó, lögmaður og fyrrverandi forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, segir ábyrgð fyrirtækja á einkamarkaði hafa breyst mikið síðastliðin ár. Kröfur neytenda séu meiri og háværari um til dæmis sjálfbærni. Hugtakið um sjálfbærni hafi svo einnig víkkað og taki nú einnig til mannréttinda. Viðskipti innlent 24. janúar 2024 07:41
Sameining við Samkaup gæti „hrist upp“ í smásölumarkaðnum Mögulegur samruni Orkunnar og Heimkaupa við Samkaup, sem er sagður vera rökréttur, gæti „hrist nokkuð upp í smásölumarkaðnum“ og ljóst að sameinað félag yrði nægjanlega stórt til að eiga erindi á Aðalmarkað í Kauphöllinni, að mati greinenda. Á meðan risarnir á markaði, Hagar og Festi, eru að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða sem eru ekki ýkja virkir í stjórnun félaganna eru hluthafar Skel fjárfestingafélags, sem á Orkuna og Heimkaup, líklega „meira öskrandi á hliðarlínunni.“ Innherji 23. janúar 2024 13:59
Leigja tvær nýjar Airbus-þotur Icelandair og CDB Aviation hafa undirritað samninga um langtímaleigu á tveimur nýjum Airbus A321LR-þotum til afhendingar á seinni hluta árs 2025. Viðskipti innlent 22. janúar 2024 17:49
Samruni Marels og JBT er skynsamlegur en áhætta felst í samþættingu Samruni Marels og John Bean Technologies (JBT) er skynsamlegur og getur skapað verulegt virði fyrir hluthafa til langs tíma. Samþætting fyrirtækjanna er þó áhættuþáttur, einkum í ljósi rekstrarvanda sem Marel hefur glímt við að undanförnu, segir í greiningu bandaríska fjármálafyrirtækisins Baird. Innherji 22. janúar 2024 14:32
Alvotech lyftir upp öllum markaðnum nú þegar samþykki FDA er nánast í höfn Markaðsvirði Alvotech, ásamt nær öllum félögum í Kauphöllinni, hefur rokið upp um nærri hundrað milljarða króna á markaði sem af er degi eftir að ljóst varð að íslenska líftæknilyfjafélagið ætti von á því að fá samþykkt markaðsleyfi fyrir sín stærstu lyf í Bandaríkjunum. Útlit er fyrir að Alvotech verði í talsverðan tíma einir á markaði vestanhafs með hliðstæðu við gigtarlyfið Humira, eitt mesta selda lyf í heimi, sem hefur þá eiginleika sem söluaðilar þar í landi horfa einkum til. Innherji 22. janúar 2024 12:15
Alvotech leiðir hækkanir í Kauphöllinni Gengi allra félaga í Kauphöllinni hafa hækkað það sem af er morgni og hefur gengi bréfa í Alvotech hækkað mest, eða um tæplega 17 prósent, í um 2,6 milljarða króna viðskiptum. Viðskipti innlent 22. janúar 2024 11:18
Gætum þurft að bíða „töluvert lengur“ eftir fyrstu vaxtalækkun Seðlabankans Aukin óvissa um niðurstöðu kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og hætta á þensluhvetjandi áhrifum vegna aðgerða stjórnvalda til að koma til móts við Grindvíkinga veldur því að talsverð bið gæti verið í að peningastefnunefnd Seðlabankans byrjar að lækka vexti, að mati skuldabréfamiðlara. Málefni Grindavíkur munu að líkindum vera í forgangi hjá ríkisstjórninni fremur en myndarleg aðkoma þeirra að kjarasamningum eins og verkalýðshreyfingin hefur gert kröfu um. Innherji 22. janúar 2024 09:54
Viðræður hafnar um samruna Samkaupa við Heimkaup og Orkuna Fjárfestingafélagið Skel og Samkaup hafa undirritað yfirlýsingu um að hefja könnunarviðræður vegna mögulegs samruna Samkaupa við Orkuna og Heimkaup. Þetta kemur fram í tilkynningu Skeljar til Kauphallar. Viðskipti innlent 19. janúar 2024 17:39
ING telur að samningur JBT um yfirtöku á Marel sé í höfn Greinendur hollenska bankans ING telja að líkur á samruna Marels við John Bean Technologies (JBT) hafi aukist verulega með nýju tilboði og að samningur sé í höfn. Fjárfestingabankinn JP Morgan bendir hins vega á að 90 prósent hluthafa Marels þurfi að samþykkja tilboðið og það gæti gert samruna vandasamri. Innherji 19. janúar 2024 15:49
Ölgerðin breytir slagorðinu fyrir Kristal Ölgerðin hefur breytt slagorði sínu fyrir sódavatnsdrykkinn Kristal. Breytingin er hluti af sýnilegum breytingum út á við í framhaldi af vottun Samtakanna 78 á Ölgerðinni sem hinseginvænum vinnustað, fyrst íslenskra fyrirtækja. Breytingin er lítil en táknræn. Upphafið að mun lengri og betri vegferð okkar allra segir forstjórinn. Viðskipti innlent 19. janúar 2024 14:41
Hækka enn tilboð sitt í Marel og reikna með um 20 milljarða kostnaðarsamlegð Stjórn Marel hefur fallist á að hefja formlegar viðræður um samruna við John Bean Technologies, sem það telur „góð rök“ fyrir, eftir að bandaríska félagið kom með uppfært og hærra verðtilboð. Greinandi Citi telur líklegt að viðskiptin gangi eftir og hlutabréfaverð Marel, ásamt öðrum félögum á markaði, hefur rokið upp en stjórnendur JBT telja að sameining félaganna geti skilað sér í kostnaðarsamlegð upp á meira en 125 milljónir Bandaríkjdala. Innherji 19. janúar 2024 10:41