Auður ráðin forstjóri Orkunnar Orkan IS ehf. hefur ráðið Auði Daníelsdóttur sem nýjan forstjóra. Auður kemur til Orkunnar frá Sjóvá þar sem hún hefur starfað síðan 2002. Viðskipti innlent 12. maí 2022 18:03
Kvika skilar 16 prósenta arðsemi og hækkar afkomuspá bankans Hagnaður Kviku banka á fyrstu þremur mánuðum ársins nam 1.740 milljónum króna, sem var í samræmi við áætlanir á fjórðungnum, og arðsemi af efnislegu eigin fé félagsins fyrir skatta var 16,1 prósent. Innherji 12. maí 2022 16:58
Akta seldi fyrir minnst milljarð í ÍSB, Gildi keypti fyrir nærri tvo Akta sjóðir hafa selt hlutabréf í Íslandsbanka fyrir minnst milljarð króna á síðustu dögum og á sama tíma hefur Gildi lífeyrissjóður bætt verulega við hlut sinn í bankanum. Innherji 12. maí 2022 13:00
Kvika fær sömu einkunn og stóru bankarnir í fyrsta lánshæfismatinu Forstjóri Kviku segir að ný lánshæfiseinkunn sem bankinn hefur fengið frá Moody´s muni gegna stóru hlutverki í að lækka fjármagnskostnað félagsins. Innherji 12. maí 2022 09:01
Spáir rekstrartapi hjá Icelandair í ár vegna mikillar hækkunar á eldsneytisverði Rekstrargrundvöllur Icelandair hefur tekið stakkaskiptum á milli ára samtímis aukinni eftirspurn eftir flugi en á móti eru ýmsir kostnaðarliðir, eins og meðal annars hækkandi eldsneytisverð, að þróast með óhagstæðum hætti, gengi krónunnar er sterkt og samkeppnin er mikil. Innherji 11. maí 2022 18:31
Aukinn hagnaður Sýnar milli ára Hagnaður Sýnar á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 207 milljónum krónum samanborið við 231 milljóna króna tap á sama tímabili í fyrra. Tekjur félagsins á ársfjórðungnum námu 5,7 milljörðum krónum og jukust um tæplega 700 milljónir á milli ára. Viðskipti innlent 11. maí 2022 17:47
Fjárfestar munu enn líta til áhættumeiri eigna eins og hlutabréfa, segir sjóðstjóri Það er fátt sem bendir til þess að stórir innlendir fjárfestar, eins og lífeyrissjóðir og hlutabréfasjóðir, séu að selja mikið af eignum sínum á hlutabréfamarkaði í þeim verðlækkunum sem hafa orðið að undanförnu. Það hefur reynst fjárfestum erfitt að ná sér í jákvæða raunávöxtun í umhverfi hárrar verðbólgu og hækkandi vaxta síðustu mánuði og því útlit fyrir að þeir muni áfram líta til áhættumeiri eigna eins og hlutabréfa. Innherji 11. maí 2022 13:36
Uggur og ótti á mörkuðum: Horfurnar betri á Íslandi en óvissan áfram ráðandi Ef seðlabankar iðnríkja sjá sig knúna til að hækka vexti hratt og mikið vegna ótta um að verðbólgan sé að fara úr böndunum gæti það leitt efnahagssamdráttar. Verði slík sviðsmynd að veruleika, sem er ekki útilokað, þá mun það setja áfram þrýsting á eignamarkaði eins og hlutabréf sem hafa nú þegar lækkað skarpt hér heima og erlendis. Innherji 10. maí 2022 16:19
Leggur til að Sigríður komi inn í stjórn Haga í stað Katrínar Olgu Tilnefningarnefnd Haga hefur lagt til að Sigríður Olgeirsdóttir, stjórnarmaður í Opnum kerfum og varamaður í bankaráði Landsbankans, verði kjörin ný inn í stjórn smásölurisans á aðalfundi félagsins sem fer fram 1. júní næstkomandi. Að öðru leyti mælir nefndin með því að stjórn Haga verði óbreytt. Klinkið 10. maí 2022 11:41
Fjárfestingafélagið Eyrir Invest með um 130 milljarða í eigið fé Fjárfestingafélagið Eyrir Invest, sem er meðal annars stærsti hluthafi Marels með tæplega fjórðungshlut, hagnaðist um rúmlega 162 milljónir evra, jafnvirði 23 milljarða íslenskra króna á gengi dagsins í dag, á árinu 2021. Jókst hagnaður félagsins um 71 milljón evra á milli ára. Innherji 9. maí 2022 12:37
Ölgerðin hagnaðist um 1,7 milljarða Ölgerð Egils Skallagrímssonar hagnaðist um 1,7 milljarða króna eftir skatta á seinasta fjárhagsári samanborið við 728 milljónir árið áður. Viðskipti innlent 6. maí 2022 17:31
Ölgerðin á markað í næsta mánuði og félagið verðmetið á um 25 milljarða Ölgerðin, stærsti drykkjarvöruframleiðandi landsins, áformar skráningu á Aðalmarkað Kauphallarinnar á fyrstu dögum júnímánaðar næstkomandi. Samhliða skráningunni verður 25 til um 30 prósenta hlutur í félaginu boðin til sölu, samkvæmt heimildum Innherja, en áskriftartímabil hlutafjárútboðsins mun fara fram í síðustu viku þessa mánaðar. Innherji 6. maí 2022 09:31
Íslandsbanki hagnaðist um 5,2 milljarða Íslandsbanki hagnaðist um 5,2 milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins, samanborið um 3,6 milljarða króna á sama tíma árið 2021. Arðsemi eigin fjár var 10,2% á ársgrundvelli en var 7,7% í fyrra. Viðskipti innlent 5. maí 2022 16:26
Arion banki skilaði 5,8 milljarða hagnaði á fyrsta ársfjórðungi Arion banki hagnaðist um 5.818 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2022, samanborið við 6.039 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Var arðsemi eiginfjár 12,7% á fyrstu þremur mánuðum þessa árs og námu heildareignir 1.341 milljörðum króna í lok mars, samanborið við 1.314 milljarða króna í árslok 2021. Viðskipti innlent 4. maí 2022 16:51
Segir sorglegt að lífeyrissjóðir standi með stórfyrirtækjum en ekki launafólki Formaður Starfsgreinasambandsins segir skökku skjóta við að lífeyrissjóðirnir, sem eigi stærstan hlut í öllum helstu matvöruverslunum landsins, skuli ekki mótmæla hækkandi matvöruverði. Hækkandi vöruverð komi helst niður á neytendum, launafólki sem eigi sjóðina. Neytendur 3. maí 2022 17:53
Greiða sér út rúma tvo milljarða í arð en vara við enn meiri verðhækkunum ASÍ segir það skjóta skökku við að matvöruverslanir hækki verð á vörum sínum á sama tíma og þær skili inn margra milljarða króna hagnaði. Eigendur Haga stefna að því að greiða sér út tvo milljarða í arð í ár. Viðskipti innlent 3. maí 2022 12:53
Akta sjóðir hagnast um 1.700 milljónir og eignir í stýringu tvöfaldast Hagnaður Akta sjóða, sem er að stærstum hluta í eigu sex starfsmanna, meira en tvöfaldaðist á síðasta ári og nam samtals 1.665 milljónum króna eftir skatta en félagið greiddi meira en 500 milljónir í skatta vegna afkomu ársins 2021. Umsýslu- og árangurstengdar þóknanir voru 2.554 milljónir og jukust um rúmlega 1.330 milljónir á milli ára. Innherji 30. apríl 2022 10:01
Félag Reynis komið í hóp stærstu hluthafa Kviku Fjárfestingafélag Reynis Grétarssonar, stofnanda Creditinfo, hefur bæst við hóp stærstu hluthafa Kviku banka. Samkvæmt lista bankans yfir hluthafa sem eiga meira en eins prósents hlut fer félagið með 50 milljónir hluta, um 1,04 prósent, sem eru metnir á 1,1 milljarð króna miðað við núverandi markaðsvirði Kviku. Innherji 29. apríl 2022 14:07
Hagar hafa mun meiri áhyggjur af verðhækkunum en vöruskorti Finnur Oddsson, forstjóri Haga, segist ekki hafa áhyggjur af því að skortur verði á ákveðnum vörutegundum hér á landi vegna hnökra í aðfangakeðjum. Helsta áhyggjuefni smásölufélagsins eru áhrif verðbólgu og vaxtahækkana á ráðstöfunartekjur heimila. Þetta kom fram í máli Finns á uppgjörskynningu Haga í morgun. Innherji 29. apríl 2022 11:37
Icelandair tapaði 7,4 milljörðum en tekjur jukust mjög Icelandair tapaði 7,4 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi ársins. Tekjur félagsins þrefölduðust samanborið við sama ársfjórðung á síðasta ári. Viðskipti innlent 28. apríl 2022 18:34
Marel ræðst í yfirtöku á bandaríska félaginu Wenger fyrir 70 milljarða Marel hefur undirritað samning um kaup á bandaríska fyrirtækinu Wenger Manufacturing, sem er leiðandi á heimsvísu í framleiðslu á hátæknilausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein, og fóður fyrir fiskeldi. Heildarkaupverðið, sem verður greitt með reiðufé og lánalínum, er 540 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 70 milljarða íslenskra króna. Innherji 27. apríl 2022 18:24
Breytingar hjá VÍS: Breytingar hjá framkvæmdastjórum og níu sagt upp Vátryggingafélag Íslands hefur sagt upp níu starfsmönnum vegna skipulagsbreytinga. Þá hafa Guðný Helga Herbertsdóttir og Birkir Jóhannsson tekið við sem framkvæmdastjórar nýrra sviða fyrirtækisins. Hafdís Hansdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu, hefur við þetta tilefni ákveðið að láta af störfum. Viðskipti innlent 27. apríl 2022 17:00
Seldu úr sjóðum fyrir um þrjá milljarða samtímis óróa á mörkuðum Innlausnir fjárfesta í innlendum hlutabréfasjóðum voru um 1.640 milljónum krónum meiri en sem nam fjárfestingum þeirra í slíkum sjóðum í mars en miklar sveiflur voru þá á mörkuðum, bæði hér heima og erlendis, vegna stríðsátakanna í Úkraínu og lækkaði Úrvalsítalan sem dæmi um sjö prósent á fyrstu átta dögum mánaðarins. Innherji 27. apríl 2022 15:04
Breytingar á framkvæmdastjórn Ölgerðarinnar Þrír einstaklingar koma nýir inn í framkvæmdastjórn Ölgerðarinnar samkvæmt nýju skipuriti. María Jóna Samúelsdóttir hefur tekið við framkvæmdastjórastöðu Danól, Guðmundur Pétur Ólafsson við stöðu framkvæmdastjóra sölusviðs óáfengra drykkja og Óli Rúnar Jónsson leiðir markaðssvið. Viðskipti innlent 27. apríl 2022 10:36
Loðnuvinnslan metin á ellefu milljarða í kaupum Lífsverks á sex prósenta hlut Lífeyrissjóðurinn Lífsverk bættist við hluthafahóp Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði á liðnu ári þegar sjóðurinn keypti samtals um 5,6 prósenta hlut í útgerðarfyrirtækinu. Innherji 27. apríl 2022 10:00
Þarf að selja allt sitt í Icelandair Pálmi Haraldsson, eigandi Ferðaskrifstofu Íslands, þarf að selja allan eignarhlut sinn í Icelandair innan tiltekins tíma, vegna kaupa Ferðaskrifstofu Íslands á Heimsferðum. Hluturinn er metinn á rétt rúmlega einn milljarð króna. Viðskipti innlent 26. apríl 2022 17:57
Icelandair boðar aftur tengiflug milli Akureyrar og Keflavíkur Icelandair stefnir að því hefja á ný flugferðir milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar og stórauka samtengingu innan- og utanlandsflugs. Viðskipti innlent 26. apríl 2022 15:59
SKEL seldi í Íslandsbanka, keypti í VÍS og fer með yfir sjö prósenta hlut Fjárfestingafélagið SKEL, sem áður hét Skeljungur, keypti í morgun um 2,5 prósenta hlut í VÍS fyrir tæplega 800 milljónir króna. Fyrir átti SKEL um 4,8 prósenta eignarhlut í VÍS, sem er í formi framvirka samninga, og er því eftir kaupin í dag fjórði stærsti hluthafi tryggingafélagsins með rúmlega 7,3 prósenta hlut. Innherji 26. apríl 2022 15:27
Össur hagnaðist um 1,2 milljarða króna Stoðtækjaframleiðandinn Össur hagnaðist um níu milljónir bandaríkjadala, jafnvirði 1,2 milljarða íslenskra króna, á fyrsta ársfjórðungi 2022. Sala nam alls 170 milljónum bandaríkjadala, eða 21,8 milljörðum króna. Söluvöxtur nam 10% í staðbundinni mynt og innri vöxtur var 6% á ársfjórðungnum. Viðskipti innlent 26. apríl 2022 08:30
„Krefjandi tímar framundan hjá Play“ þótt ferðaviljinn virðist mikill Með olíuverð í hæstu hæðum og gengi krónunnar gagnvart evru að nálgast það gildi sem það var í fyrir upphaf farsóttarinnar þá er „ljóst að það eru krefjandi tímar framundan hjá Play,“ að mati greinenda Jakobsson Capital. Innherji 25. apríl 2022 17:01