Kínverska hagkerfið verði það stærsta í heimi 2028 Hagkerfi Kína mun taka fram úr því bandaríska árið 2028 og verður þá það stærsta í heimi, samkvæmt spá CEBR, breskrar rannsóknarmiðstöðvar um hagfræði og viðskipti. Fyrra spálíkan hafði gert ráð fyrir að Kína ætti stærsta hagkerfi heims árið 2033, en faraldur kórónuveiru er sagður munu flýta því. Viðskipti erlent 26. desember 2020 17:31
Lögregla skoðar misbrest í upplýsingagjöf Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir það hafa verið mistök að tilgreina ráðherra í tilkynningu til fjölmiðla á aðfangadag um samkvæmi í Ásmundarsal sem lögregla stöðvaði. Innlent 26. desember 2020 17:12
Þóra segist ekki bera ábyrgð á fölskum TikTok-aðgangi „Jæja, nú les ég á hinum ýmsu miðlum að ég sé komin með reikning á Tik Tok. Ég geri ráð fyrir að þeir sem mig þekkja viti að það er ekki rétt,“ skrifar Þóra Margrét Baldvinsdóttir, eiginkona Bjarna Benedikssonar fjármála- og efnahagsráðherra í færslu á Facebook í dag. Innlent 26. desember 2020 16:40
Kári og Þórólfur munu funda saman með Pfizer Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segist eiga náið samstarf með Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni. Þeir séu ekki í neinu stríði og hann ætli sér að taka Þórólf með sér á næsta fund með lyfjaframleiðandanum Pfizer. Innlent 26. desember 2020 14:30
Nýja afbrigðið skotið upp kollinum á fleiri stöðum Fjögur tilfelli af nýju afbrigði kórónuveirunnar hafa fundist á Spáni, sama dag og það var tilkynnt að það hefði einnig verið greint í Frakklandi. Afbrigðið, sem er betur þekkt sem breska afbrigðið, er mun meira smitandi en önnur. Erlent 26. desember 2020 13:48
Breska afbrigðið greinst tvívegis á landamærunum Breska afbrigði kórónuveirunnar hefur nú greinst tvívegis á landamærum Íslands. Afbrigðið hefur þó ekki greinst innanlands. 24 hafa greinst með veiruna innanlands síðustu fjóra daga, 7 þeirra voru utan sóttkvíar. Innlent 26. desember 2020 13:02
Málið óheppilegt en mikilvægt að horfa á stóru myndina Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra segist vonsvikinn yfir því að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi virt sóttvarnarreglur að vettugi. Hins vegar sé bólusetning handan við hornið og því sé mikilvægt að halda í samstöðuna svo hægt sé að komast í gegnum heimsfaraldurinn. Innlent 26. desember 2020 12:46
Bóluefnið kom í lögreglufylgd til Danmerkur: „Til hamingju við öll“ Klukkan 05:58 í morgun komu fyrstu skammtarnir af bóluefni gegn covid-19 í hús til dönsku sóttvarnastofnunarinnar Statens Serum Institut (SSI) á Amager í Kaupmannahöfn. Eftir að hafa verið flutt yfir landamærin til Danmerkur í lögreglufylgd verður bóluefninu nú dreift milli landshluta. Stefnt er að því að bólusetning hefjist í fyrramálið klukkan níu. Erlent 26. desember 2020 11:37
Hertar aðgerðir taka gildi í Bretlandi Milljónir Breta búa nú við strangari sóttvarnaaðgerðir eftir að hertar aðgerðir tóku gildi í landinu á miðnætti. Greint var frá 570 dauðsföllum í landinu í gær, en smitum hefur farið fjölgandi undanfarnar vikur. Erlent 26. desember 2020 11:31
Tveir greindust með veiruna í gær Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Annar þeirra var í sóttkví. Enginn greindist með veiruna á landamærunum. Innlent 26. desember 2020 10:31
Dreifing á bóluefni Pfizer hafin innan Evrópusambandsins Bólusetningar í aðildarríkjum Evrópusambandsins hefjast á morgun þann 27. desember, en öll ríki sambandsins munu byrja sama dag til þess að sýna fram á samstöðu. Fyrstu skammtar eru komnir til sambandsríkjanna. Erlent 26. desember 2020 09:57
„Þið eruð ekki ein“ Elísabet Englandsdrottning nýtti tækifærið í jólaávarpi sínu í gær til að fullvissa þau sem hafa átt erfitt, fjarri vinum sínum og fjölskyldu á þessu ári, um að þau séu ekki ein. Hún sagði að það sem marga langi í um jólin sé „einfalt faðmlag eða þétt handtak,“ en að „jafnvel dimmustu um nætur fylgi von með nýjum degi.“ Erlent 26. desember 2020 09:49
Nýja afbrigðið greindist í Frakklandi Nýja afbrigði kórónuveirunnar sem hefur náð að dreifa sér víða á Bretlandseyjum hefur greinst í Frakklandi. Þetta staðfesti franska heilbrigðisráðuneytið, en sá sem greindist er franskur ríkisborgari sem hafði komið frá Lundúnaborg þann 19. desember. Erlent 26. desember 2020 08:33
Viðtöl ársins 2020: Skipsbrot, missir, unaðsbylting og COVID-19 eftirköst Í hundruðum viðtala sem birst hafa á Vísi á þessu ári hafa einstaklingar opnað sig um veikindi, áföll, kynlíf, fíkn, kynferðisofbeldi, starfslok, foreldrahlutverkið, gjaldþrot, missi, skilnað, ófrjósemi og svona mætti lengi telja. Lífið 26. desember 2020 07:02
Löðrungur framan í almenning „Mér finnst þetta aumt og finnst þetta í rauninni vera löðrungur framan í almenning sem er að færa daglega, í hverri viku og mánuði miklar fórnir,“ segir Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, um viðbrögð forsætisráðherra og fjármálaráðherra við sóttvarnahliðarspori þess síðarnefnda í Ásmundarsal á Þorláksmessu. Innlent 25. desember 2020 18:24
FIFA aflýsir HM yngri landsliða á næsta ári FIFA hefur aflýst HM U20 og U17 landsliða sem áttu að fara fram á árinu 2021. Fótbolti 25. desember 2020 18:01
Falsvon Á liðnu ári hafa margir átt um sárt að binda. Efnahagsþrengingar í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveirunnar komu illa við marga. Samkomutakmarkanir komu sömuleiðis illa við marga. Það er erfitt að geta ekki hitt sína nánustu í lengri tíma, en fólk lagði það á sig, enda var það til þess gert að vernda viðkomandi. Skoðun 25. desember 2020 18:01
„Ég myndi ekki halda að kirkjan sé hættulegur staður“ Jakob Rolland, kanslari biskupsdæmis kaþólsku kirkjunnar á Íslandi og upplýsingafulltrúi, segir mögulegt að presturinn sem messaði í kirkjunni á aðfangadagskvöld hafi ekki áttað sig nægilega vel á gildandi sóttvarnareglum. Um pólska messu var að ræða og taldi lögregla hátt í annað hundrað manns þegar hún mætti á svæðið. Innlent 25. desember 2020 16:11
Árið 2020 í myndum Ársins 2020 verður vafalítið minnst sem árs Covid-19 en þó gerðist margt annað markvert. Veður var oft vont, kjaradeilur harðar og mikið rætt um nýja stjórnarskrá. Jörð skalf á Reykjanesskaga og þá létu náttúruöflinn finna fyrir sér á Flateyri, Suðureyri og Seyðisfirði.Þegar eitthvað var að frétta voru ljósmyndarar og tökumenn Vísis og Stöðvar 2 á staðnum og fönguðu meðal annars þá stemningu sem myndaðist í samfélaginu þegar götur voru mannlausar, raðir langar og þjóðin á varðbergi gegn nýrri vá.Hér má sjá sýnishorn af myndunum sem prýddu umfjöllun okkar á árinu. Fréttaannáll Stöðvar 2 verður svo á dagskrá að loknum kvöldfréttum 30. desember, bæði á Stöð 2 og Vísi. Innlent 25. desember 2020 16:03
„Lít ekki svo á að þessi atburður kalli á afsögn af minni hálfu“ Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segist skilja vonbrigði fólks yfir að hafa ekki fylgt sóttvarnarreglum þegar hann mætti í samkvæmi í Ásmundarsal á Þorláksmessu. Hann segir hegðun sína ekki til eftirbreytni en að hún kalli þó ekki á afsögn. Innlent 25. desember 2020 15:50
„Þessar hugmyndir hafa verið viðraðar af sóttvarnalækni og Kára Stefánssyni“ „Við vorum bara fyrst og fremst að fara yfir stöðu mála,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um fund sem hún átti með Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, og yfirmanni bóluefnamála hjá bandaríska lyfjaframleiðandanum Pfizer. Innlent 25. desember 2020 15:21
Katrín gerir ekki kröfu um afsögn Bjarna Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir sóttvarnahliðarspor fjármálaráðherra skaða traustið á milli flokkanna sem skipa ríkisstjórn Íslands og gera samstarfið erfiðara. Hún telur hins vegar samstöðuna innan ríkisstjórnarinnar góða og að hún hafi náð miklum árangri. Innlent 25. desember 2020 14:26
Vonbrigði að heyra af sóttvarnabrotum dag eftir dag Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir það vonbrigði að heyra af sóttvarnabrotum dag eftir dag og óttast stóra bylgju eftir hátíðirnar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til skoðunar hugsanlegt brot á sóttvarnalögum í Landakotskirkju. Innlent 25. desember 2020 14:22
Píratar íhuga vantrauststillögu á hendur Bjarna Þingflokkur Pírata hefur til skoðunar að leggja fram vantrauststillögu á hendur Bjarna Benedikssyni, fjármála- og efnahagsráðherra. Þetta kom fram í hádegisfréttum Rúv í dag þar sem haft var eftir Jóni Þór Ólafssyni, þingmanni Pírata og formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, að vera Bjarna í of fjölmennu samkvæmi á Þorlásmessu sé til þess fallið að rýra traust í garð stjórnmálamanna. Innlent 25. desember 2020 13:27
Kunni að reynast Vinstri grænum erfiðara en Sjálfstæðisflokknum Sóttvarnahliðarspor fjármálaráðherra eykur erfiðleika í samstarfi flokkanna í ríkisstjórn Íslands, sem mátti einfaldlega ekki við miklu, að mati stjórnmálafræðiprófessors. Málið kunni að reynast Vinstri grænum erfiðara en Sjálfstæðisflokknum. Innlent 25. desember 2020 13:01
Gabriel Jesus og Kyle Walker með Covid Gabriel Jesus og Kyle Walker, leikmenn Manchester City, hafa greinst jákvæðir fyrir Kórónuveirunni og verða ekki með liðinu gegn Newcastle á morgun. Enski boltinn 25. desember 2020 13:00
Erlendir miðlar fjalla um veisluna í Ásmundarsal: „Harkaleg gagnrýni á íslenskan ráðherra“ „Það er ekki bara kuldinn sem hefur látið íslenska fjármála- og efnahagsráðherrann roðna um eyrun.“ Svo hefst frétt danska miðilsins B.T. þar sem fjallað er um veru Bjarna Benediktssonar í fjölmennu samkvæmi á Þorláksmessu sem lögregla leysti upp. „Harkaleg gagnrýni á íslenskan ráðherra: Var gripinn í stóru partýi af lögreglu,“ en svo hljóðar fyrirsögn fréttarinnar. Innlent 25. desember 2020 11:48
Höfðu afskipti af helgihaldi í Landakotskirkju Lögreglan hafði afskipti af helgihaldi í Landakotskirkju í gærkvöldi. Þetta staðfestir David B. Tencer, biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, í samtali við mbl.is. Innlent 25. desember 2020 11:43
Drottningin bregður út af vananum í ár Jóladagur verður með öðruvísi móti í ár hjá Elísabetu Bretlandsdrottningu sem mun eyða honum í Windsor-kastala ásamt eiginmanni sínum Filippusi. Yfirleitt hafa hjónin haldið upp á jóladag í Sandringham sveitasetrinu með fjölskyldunni. Lífið 25. desember 2020 10:52
Þrír greindust í gær Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Innlent 25. desember 2020 10:41