Halda sig inni vegna gosmóðu Viðkvæmustu hóparnir hafa haldið sig við inni við síðustu daga vegna gosmóðu frá Eldgosinu í Geldingadölum að sögn varaformanns Samtaka lungnasjúklinga . Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun brýnir fyrir fólki að fylgjast vel með loftgæðum. Innlent 5. júlí 2021 18:33
„Þurfum að setja okkur í loftgæðagosgír“ Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun brýnir fyrir fólki að tileinka sér að kanna loftgæði í nágrenni við sig vegna mengunar frá eldgosinu í Geldingadölum. Fólk með öndunarfærasjúkdóma eigi að forðast útiveru þegar mengun er mikil. Búast megi við færri sólardögum í sumar vegna gosmóðu og þoku. Innlent 5. júlí 2021 12:01
Auðvitað eigum við að banna olíuleit Tækifæri framtíðarinnar eru græn. Það er ekki aðeins siðferðislega rétt að setja loftslagsmálin á oddinn, vitandi hvaða áhrif loftslagsbreytingar hafa þegar haft og munu hafa ef ekki verður breytt um kúrs, heldur jafnframt efnahagslega gáfulegt. Skoðun 3. júlí 2021 11:01
Vara við gosmóðunni sem greinist ekki í mælingum Móðan sem liggur yfir höfuðborgarsvæðinu og hefur gert frá því snemma í morgun er gosmóða frá eldgosinu í Fagradalsfjalli í bland við þokuloft. Gosmóðan inniheldur mengun sem hefur náð að umbreytast og greinist hún því ekki með hefðbundnum mælingum á brennisteinsdíoxíði (SO2). Innlent 2. júlí 2021 14:33
Höfðu nokkrar mínútur til að flýja þegar bærinn brann til grunna Íbúar Lytton í Kanada áttu fótum sínum fjör að launa í gærkvöldi þegar skógareldur umlukti þorpið með litlum fyrirvara. Þeir flúðu í allar áttir en þorpið brann nánast allt til kaldra kola á nokkrum mínútum. Erlent 1. júlí 2021 20:06
Málsvari olíurisa lýsir undirróðri gegn loftslagsaðgerðum Olíurisinn Exxon Mobil hefur beitt sér gegn loftslagsvísindum í gegnum hulduhópa og er í nánum samskiptum við hóp þingmanna til að grafa undan loftslagsaðgerðum Bandaríkjastjórnar. Þetta viðurkennir málafylgjumaður í samtali sem var tekið upp á laun. Viðskipti erlent 1. júlí 2021 13:33
Kviknað í bænum eftir röð hitameta Íbúum bæjarins Lytton í Bresku-Kólumbíu í Kanada var skipað að flýja heimili sín vegna gróðurelda sem geisa þar í gær. Met yfir hæsta hita sem mælst hefur í Kanada hefur verið slegið nokkrum sinum í bænum undanfarna daga og náði hitinn mest tæpum 50°C. Erlent 1. júlí 2021 08:39
Skyndilegum dauðsföllum fjölgar vegna hitabylgjunnar Fjöldi fólks hefur látist af völdum hitabylgjunnar sem nú gengur yfir Kanada. Lögreglu hafa borist 130 tilkynningar vegna skyndilegra dauðsfalla frá því á föstudag en í flestum tilvikum er um að ræða eldra fólk með undirliggjandi sjúkdóma. Erlent 30. júní 2021 06:55
Vill orku Hvammsvirkjunar til að mæta markmiðum um orkuskipti Landsvirkjun hefur sótt um virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá. Virkjunin er í nýtingarflokki rammaáætlunar og vonast forstjórinn til að þokkaleg sátt geti náðst um hana. Innlent 29. júní 2021 23:23
Dagsgömlum hitametum splundrað Heitasti dagurinn skæðrar hitabylgju sem gengur yfir vesturströnd Norður-Ameríku splundraði hitametum sem voru varla sólarhringsgömul í gær. Í Kanada mældist hitinn 47,9°C í þorpinu Lytton sem er hæsti hiti sem hefur nokkru sinni mælst í landinu. Erlent 29. júní 2021 08:47
Hitamet falla í heiftarlegri hitabylgju Svæsin hitabylgja gengur nú yfir norðvestur Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna og hafa hitamet þegar verið slegin á nokkrum stöðum um helgina. Viðvaranir hafa verið gefnar út vegna lífshættulegs hita. Erlent 27. júní 2021 20:16
Hvað með trukkana? Trukkur, samkvæmt orðabók, er stór og kraftmikill vörubíll. Trukkar eru okkur mikilvægir þó flest okkar leiði hugann sjaldnast að þeim. Skoðun 24. júní 2021 15:30
Fordæmalaus aukning í hitun jarðar síðustu ár Jörðin fangar nú tvöfalt meiri hita en hún gerði árið 2005 og er aukningin sögð fordæmalaus. Aukningin er sögð jafngilda því að fjórar kjarnorkusprengjur líkt og þeirri sem varpað á Hiroshima væru sprengdar á hverri sekúndu. Erlent 22. júní 2021 23:56
Vilja setja Kóralrifið mikla á hættulista Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, og áströlsk stjórnvöld deila enn um stöðu Kóralrifsins mikla sem er að finna norðaustur af meginlandi Ástralíu. Erlent 22. júní 2021 09:04
Sumarið svíkur Íslendinga Klárlega einn mesti kuldi af þessum toga í áraraðir, segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Innlent 15. júní 2021 10:06
Ósamræmi í orðum og gjörðum íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum Helsta markmið Parísarsáttmálans hljóðar upp á að takmarka meðalhlýnun Jarðar um 1.5 gráðu frá iðnbyltingu. Ljóst er þó að þrátt fyrir núverandi markmið þjóða stefnir í að Jörðin muni hlýna um 3 til 4 gráður. Skoðun 15. júní 2021 07:00
Ólíkir ráðherrar saman á fundi NATO fyrir hönd Íslands Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins (NATO) funduðu í höfuðstöðvum þess í Brussel í dag. Tveir ráðherrar Íslands sátu fundinn en þeir hafa nokkuð misjafna sýn á hlutverk bandalagsins og hvort Ísland eigi í raun heima þar. Innlent 14. júní 2021 22:52
G7-ríkin héldu að sér höndum um kolabruna Engin ákvörðun var tekin um hvenær bruna á kolum verður alfarið hætt á fundi sjö helstu iðnríkja heims sem lauk í gær. Ríkið sammæltust aðeins um að hætta fjármögnun nýrra kolaorkuvera sem búa ekki yfir tækni til að binda kolefni. Erlent 14. júní 2021 12:57
Attenborough fundar með leiðtogum G7 í dag Náttúruvísinda- og sjónvarpsmaðurinn David Attenborough mun tala á fundi G7 ríkjanna í dag. Hann hefur þegar biðlað til leiðtoga ríkjanna að grípa til drastískra aðgerða ef forðast á náttúruhamfarir. Ríkin munu ræða umhverfismál á fundi sínum í dag. Erlent 13. júní 2021 08:56
Loftlagsmótmæli við G7 leiðtogafundinn Umhverfisverndarsamtökin Extinction rebellion blésu í gær til fjölmennra mótmæla í Cornwall þar sem leiðtogafundur G7 ríkjanna fer fram um helgina. Erlent 12. júní 2021 13:06
Stefna að 50 prósenta samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda Íslensk stjórnvöld ásamt Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi stefna í sameiningu að 50 prósenta samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda vegna olíunotkunar íslensks sjávarútvegs frá 2005 til 2030. Innlent 10. júní 2021 14:30
Er hægt að leysa loftslagsvandann með því að breyta sporbraut tunglsins um jörðu? Væri hægt að leysa loftslagsvandann með því að breyta sporbraut tunglsins um jörðu eða sporbraut jarðar um sólu? Að þessu spurði Louie Gohmert, þingmaður Repúblikanaflokksins, á nefndarfundi á þriðjudag. Erlent 10. júní 2021 07:35
Mesti styrkur koltvísýrings í meira en fjórar milljónir ára Meðalstyrkur koltvísýrings í lofthjúpi jarðar í maí var helmingi hærri en áður en menn byrjuðu að losa gróðurhúsalofttegundir í stórum stíl. Hann hefur ekki verið meiri í meira en fjórar milljónir ára, löngu fyrir tilvist mannkynsins. Erlent 8. júní 2021 13:12
Hvað gerum við nú? Hvað segjum við, hvað gerum við, nú þegar faraldurinn tekur að lægja? Við höfum lært að líta inn á við, að takast á við einmanaleika og innilokun. Við höfum uppgötvað á ný hve mikils virði mannleg samskipti, tengsl, ást og umhyggja eru. Skoðun 7. júní 2021 08:31
Torfajökull gæti orðið næsti þekkti jökullinn sem hverfur Um þriðjungur yfirborðstaps íslenskra jökla frá lokum 19. aldar hefur átt sér stað á þessari öld. Miðlungsstórri jöklar eins og Torfajökull hafa tapað allt að 80% flatarmáls síns og telur jarðfræðingur að hann gæti horfið strax á næstu tveimur áratugum. Innlent 5. júní 2021 08:30
Hlýnun gæti farið út fyrir mörk Parísarsamkomulagsins á allra næstu árum Um 40% líkur eru nú sagðar á því að hnattræn hlýnun nái 1,5°C á að minnsta kosti einu ári af næstu fimm samkvæmt nýju mati Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO). Líkurnar á að hlýnun fari umfram metnaðarfyllra markmið Parísarsamkomulagsins eru aðeins sagðar munu aukast eftir því sem tíminn líður. Erlent 27. maí 2021 00:01
Shell dæmt til að draga hressilega úr útblæstri Dómstóll í Haag í Hollandi dæmdi í dag hollenska olíurisann Shell til að draga verulega úr útblæstri sínum á gróðurhúsalofttegundum. Shell á samkvæmt dómunum að draga úr útblæstri félagsins um 45 prósent fyrir árið 2030, miðað við útblástur árið 2019. Viðskipti erlent 26. maí 2021 14:13
Áhugasamir kaupendur grænnar orku knýja dyra hjá Landsvirkjun Landsvirkjun finnur fyrir stórauknum áhuga á raforkukaupum, meðal annars frá fjárfestum sem hyggja á græna eldsneytisframleiðslu. Forstjórinn segir þó enga ákvörðun liggja fyrir um smíði nýrra virkjana til að mæta eftirspurninni en lýsir vonbrigðum með leyfisferli vegna vindorku. Viðskipti innlent 23. maí 2021 22:44
G7 ríkin ætla að hætta að fjármagna kolaorkuver Erindrekar G7 ríkjanna hafa komist að samkomulagi um aðgerðir til að draga úr hækkun hitastigs á jörðinni vegna manngerðra veðurfarsbreytinga. Aðgerðirnar taka mið af því að hitastig hækki ekki um meira en eina og hálfa gráðu. Erlent 21. maí 2021 15:53
Losun frá íslenskum iðnaði dróst aðeins saman Stöðvun á starfsemi kísilvers PCC á Bakka í fyrra er talin meginástæða 1,8% samdráttar á losun gróðurhúsalofttegunda frá iðnaði á Íslandi sem heyrir undir evrópsks viðskiptakerfis með losunarheimildir á milli ára í fyrra. Innlent 21. maí 2021 10:00