Chelsea vann Meistaradeildina - myndir Chelsea-menn fögnuðu gríðarlega á Allianz Arena í kvöld þegar liðið tryggði sér sigur í Meistaradeildinni í fyrsta sinn í sögu félagsins. Chelsea vann þá þýska liðið Bayern München í vítakeppni eftir að staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. Fótbolti 19. maí 2012 23:20
Di Matteo: Við erum með marga leikmenn með stórt hjarta Roberto di Matteo, stjóra Chelsea, tókst hið ótrúlega. Hann tók við Chelsea-liðinu í tómu tjóni í marsbyrjun en nú rúmum tveimur mánuðum síðar hefur hann stýrt Chelsea til sigurs í Meistaradeildinni. Fótbolti 19. maí 2012 22:34
Cech fór í rétt horn í öllum sex vítum Bayern - varði þrjú Ein af allra stærstu hetjum Chelsea í München í kvöld var tékkneski markvörðurinn Petr Cech sem átti magnaðan úrslitaleik og magnað tímabil í Meistaradeildinni. Cech varði þrjú víti Bæjara í leiknum, eitt í framlengingunni og tvö í vítakeppninni þar sem að hann fór í rétt horn í öllum spyrnum Bayern. Fótbolti 19. maí 2012 22:23
Drogba: Þetta var skrifað í skýin fyrir löngu síðan Didier Drogba var hetja Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í München í kvöld þegar Chelsea vann titilinn eftir sigur á Bayern í vítakeppni. Drogba tryggði Chelsea framlengingu með því að skora jöfnunarmarkið tveimur mínútum fyrir leikslok og skoraði síðan úr síðustu spyrnunni í vítakeppninni. Fótbolti 19. maí 2012 22:09
Frank Lampard: Drogba er hetjan okkar Frank Lampard átti flottan leik á miðju Chelsea þegar liðið tryggði sér sigur í Meistaradeildinni með því að vinna Bayern München í úrslitaleiknum á Allianz Arena í München. Fótbolti 19. maí 2012 21:59
Chelsea vann Bayern í vítakeppni | Drogba og Cech voru hetjur liðsins Chelsea vann Meistaradeildina í fyrsta sinn eftir að hafa unnið Bayern München 4-3 í vítakeppni á þeirra eigin heimavelli á Allianz Arena í München. Didier Drogba og Petr Cech voru hetjur Chelsea í þessum leik. Drogba tryggði Chelsea framlengingu með því að skora jöfnunarmarkið tveimur mínútum fyrir leikslok og skoraði síðan úr síðustu spyrnunni í vítakeppninni. Petr Cech varði aftur á móti víti Arjen Robben í framlengingunni og tók síðan tvö víti Bæjara í vítakeppninni. Fótbolti 19. maí 2012 18:15
Byrjunarliðin í München: Bertrand byrjar en Torres er á bekknum Jupp Heynckes, þjálfari Bayern og Roberto Di Matteo, stjóri Chelsea hafa tilkynnt inn byrjunarliðin sín í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem hefst klukkan 18.45 á Allianz Arena í München. Leikurinn er í beinni á Stöð 2 Sport. Fótbolti 19. maí 2012 18:02
Cech: Ég mæti undirbúinn ef að það verður vítakeppni Petr Cech, tékkneski markvörðurinn hjá Chelsea, segist hafa unnið heimavinnu sína fyrir leikinn á móti Bayern München fari svo að úrslitaleikur Meistaradeildarinnar endi í vítakeppni. Cech er viss um að Chelsea geti klárað leikinn í venjulegum leiktíma en hefur samt sem áður skoðað vel upptökur af vítum leikmanna Bayern. Fótbolti 19. maí 2012 17:45
Ætlar Di Matteo að byrja með Ryan Bertrand í úrslitaleiknum í kvöld? Enskir fjölmiðlar spá því að Ryan Bertrand verði í byrjunarliði Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í München í kvöld en þessi 22 ára strákur hefur aldrei spilað leik í Meistaradeildinni áður og lék aðeins 7 leiki í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Fótbolti 19. maí 2012 15:30
Drogba ekki tilbúinn að segja að þetta sé síðasti leikurinn hans Didier Drogba, framherji Chelsea, hefur ekkert viljað tjá sig um hvort að úrslitaleikur Meistaradeildarinnar í München í kvöld, verði síðasta leikurinn hans með Chelsea. Drogba er orðinn 34 ára gamall, samningur hann við enska félagið rennur út í sumar og Chelsea hefur ekki viljað gera við hann tveggja ára samning eins og Drogba sækist eftir. Fótbolti 19. maí 2012 14:00
Höddi Magg hitti stuðningsmenn Bayern og Chelsea í miðborg München Hörður Magnússon, íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport, er staddur í München í Þýskalandi þar sem hann ætlar að fylgjast með úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld. Leikur Bayern München og Chelsea hefst klukkan 18.45 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Fótbolti 19. maí 2012 13:32
Ronaldo um sig og Messi: Ekki hægt að bera saman Ferrari og Porsche Cristiano Ronaldo segir að það sé erfitt að bera tvo ólíka leikmenn saman eins og sig sjálfan og Lionel Messi hjá Barcelona. Þeir skoruðu saman 96 mörk í spænsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni og eru í flestra huga tveir bestu knattspyrnumenn heims. Fótbolti 18. maí 2012 23:30
Þjálfari Bayern: Drogba er ekki bara góður leikmaður, líka frábær leikari Jupp Heynckes, þjálfari Bayern München, hrósaði Didier Drogba ekki bara fyrir knattspyrnuhæfileika heldur einnig fyrr leikarahæfileika á blaðamannafundi fyrir úrslitaleik Bayern og Chelsea í Meistaradeildinni sem fer fram í München á morgun. Fótbolti 18. maí 2012 22:45
Hamann: Bayern mun ekki ráða við Drogba Dietmar Hamann, fyrrum miðjumaður Bayern München, Liverpool og þýska landsliðsins, spáir því að Chelsea vinni Bayern München í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á morgun og ástæðan fyrir því sé Didier Drogba. Fótbolti 18. maí 2012 20:30
Meistaradeildin: Geir spáir Bayern sigri Hörður Magnússon, íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport, er staddur í München í Þýskalandi þar sem hann mun lýsa úrslitaleik Meistaradeildarinnar á morgun á Stöð 2 Sport en þar mætast Bayern München og Chelsea. Hörður hitti Geir Þorsteinsson, formann KSÍ, og ræddi við hann um leikinn. Fótbolti 18. maí 2012 15:45
Cristiano Ronaldo: Mourinho er betri en Sir Alex Cristiano Ronaldo heldur því fram að Jose Mourinho sé besti þjálfarinn í heimi. Ronaldo hefur farið lofsamlegum orðum um Mourinho eftir að Real Madrid endaði þriggja ára sigurgöngu Barcelona í spænsku deildinni. Fótbolti 18. maí 2012 12:00
Robert Huth: Bayern vinnur Chelsea 3-1 Þjóðverjinn Robert Huth, varnarmaður Stoke, var fenginn til þess að spá í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á milli Bayern München og Chelsea sem fram fer í München á laugardaginn. Fótbolti 17. maí 2012 19:15
Lyon vann Meistaradeildina annað árið í röð Franska félagið Olympique Lyonnais tryggði sér sigur í Meistaradeild kvenna í fótbolta í kvöld með því að vinna 1. FFC Frankfurt 2-0 í úrslitaleiknum á Ólympíuleikvanginum í München. Bæði mörk franska liðsins komu í fyrri hálfleiknum. Fótbolti 17. maí 2012 17:57
Lahm: Ég myndi aldrei hegða mér eins og Terry á móti Barcelona Philipp Lahm, fyrirliði Bayern München, fordæmdi framkomu kollega síns hjá Chelsea á blaðamannafundi fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar en Bayern mætir Chelsea á Allianz Arena á laugardaginn. Fótbolti 17. maí 2012 14:45
Mata talar um að vinna þrjá titla til viðbótar í sumar Þetta gæti verið stórt sumar fyrir Spánverjann Juan Mata hjá Chelsea. Hann hefur þegar unnið enska bikarinn með Chelsea-liðinu á sínu fyrsta tímabili en er með augastað á þremur titlum til viðbótar í sumar. Enski boltinn 16. maí 2012 16:30
David Luiz og Cahill æfðu með Chelsea í dag Roberto Di Matteo, stjóri Chelsea, fékk góðar fréttir fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar þegar miðverðirnir David Luiz og Gary Cahill fengu grænt ljóst og mega því fara að æfa á ný. Luiz og Cahill hafa ekki spilað undanfarnar vikur vegna meiðsla. Fótbolti 15. maí 2012 15:35
Redknapp ætlar að mæta til München og styðja Bayern Harry Redknapp, stjóri Tottenham, ætlar að mæta á úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fer fram í München á laugardaginn. Leikurinn skiptir Tottenham miklu máli þótt að liðið sé ekki á staðnum. Fótbolti 14. maí 2012 19:45
Royson Drenthe sakar Messi um kynþáttaníð Royson Drenthe, fyrrum leikmaður Real Madrid, hefur komið fram í sviðsljósið með ásakanir um kynþáttaníð á hendur besta knattspyrnumanni heims, Lionel Messi hjá Barcelona. Drenthe heldur því fram að Messi hafi kallaði hann "negro" eða "negra" í mörgum leikjum. Fótbolti 8. maí 2012 20:00
Átta ára stúlka af Nesinu leiðir leikmann Chelsea eða Bayern Hin átta ára gamla Lovísa Scheving datt heldur betur í lukkupottinn þegar hún var dregin út í Meistaradeildarleik Kreditkorts. Hún fær að leiða einn leikmann út á völlinn í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þann 19. maí næstkomandi. Fótbolti 8. maí 2012 16:00
Özil: Ég vona að Bayern vinni Chelsea í úrslitaleiknum Mesut Özil, leikmaður Real Madrid og þýska landsliðsins, heldur með Bayern München á móti Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fer fram á Allianz Arena í München 19. maí næstkomandi. Fótbolti 4. maí 2012 22:00
Robben samdi við Bayern til ársins 2015 Hollendingurinn Arjen Robben ætlar að spila áfram með þýska liðinu Bayern Munchen en hann gekk í dag frá nýjum samningi sem nær til ársins 2015. Robben hefur spilað með Bayern frá árinu 2009. Fótbolti 3. maí 2012 17:45
Ballack: Bayern líklegra en Chelsea Micheal Ballack, fyrrverandi leikmaður Bayern München og Chelsea, segir Bayern hafa tilfinningalegt forskot fyrir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, sem haldinn verður á heimavelli Bayern, þann 19. maí. Fótbolti 1. maí 2012 22:45
UEFA gefur grænt ljós á að John Terry lyfti bikarnum á loft John Terry fyrirliði enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea er enn helsta fréttaefnið á Bretlandseyjum og víðar eftir að hann fékk rauða spjaldið í undanúrslitum Meistaradeildarinnar gegn Barcelona frá Spáni. Chelsea leikur til úrslita gegn FC Bayern á heimavelli þýska liðsins í München þann 19. maí. Terry verður í leikbanni en í gær gaf UEFA það út að Terry geti tekið þátt í verðlaunaafhendingunni eftir leik fari svo að Chelsea verði Evrópumeistari. Fótbolti 27. apríl 2012 10:15
Mourinho klár í aðra atlögu að Meistaradeildartitlinum Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Real Madrid, segir stíganda í árangri liðs síns og að tapið gegn Bayern München auki á áhuga hans að stýra liðinu á næstu leiktíð. Þá verði gerð önnur atlaga að Meistaradeildartitilinum. Fótbolti 26. apríl 2012 10:56
Terry fengi ekki að taka á móti bikarnum í München John Terry fyrirliði enska liðsins Chelsea verður í leikbanni þegar liðið leikur til úrslita í Meistaradeild Evrópu þann 19. maí gegn FC Bayern München. Terry mun ekki fá leyfi til þess að sitja á varamannabekknum í leiknum og knattspyrnusamband Evrópu þarf að gefa sérstakt leyfi ef Terry á að fá að taka móti Meistaradeildarbikarnum í leiklok fari svo að Chelsea verði Evrópumeistari. Fótbolti 26. apríl 2012 10:30