Dunleavy framlengir við Clippers Þjálfarinn Mike Dunleavy hefur framlengt samning sinn við félagið um fjögur ár og fær fyrir það um 21 milljón dollara. Los Angeles Times greindi frá þessu í gærkvöld. Dunleavy hefur átt stóran þátt í því að rífa lið Clippers upp úr meðalmennskunni og þrátt fyrir að leiktíðin í ár hafi ekki byrjað glæsilega, en liðið náði besta árangri í þrjá áratugi á síðustu leiktíð. Körfubolti 28. nóvember 2006 15:00
Tíu sigrar í röð hjá Dallas Dallas vann í nótt 10. leikinn í röð í NBA deildinni þegar liðið vann sigur á Minnesota 93-87 í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni. Josh Howard og Dirk Nowitzki skoruðu 15 stig hvor fyrir Dallas en Kevin Garnett skoraði 19 stig og hirti 12 fráköst fyrir Minnesota. Körfubolti 28. nóvember 2006 13:32
Dallas - Minnesota í beinni í nótt Leikur Dallas og Minnesota í NBA deildinni verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan hálf tvö í nótt. Dallas er heitasta liðið í NBA og hefur unnið níu leiki í röð og þá er leikur kvöldsins fín upphitun fyrir leik Dallas og Sacramento sem sýndur verður beint á Sýn á föstudagskvöldið klukkan eitt. Körfubolti 27. nóvember 2006 20:45
Fimmti sigur Denver í röð Carmelo Anthony skoraði 33 stig þegar Denver lagði LA Clippers á heimavelli 103-88 í NBA deildinni í nótt. Þetta var fimmti sigurleikur Denver í röð í deildinni og er Anthony stigahæsti leikmaður deildarinnar það sem af er með 31 stig að meðaltali. Corey Maggette var besti leikmaður Clippers í leiknum með 22 stig og 12 fráköst. Körfubolti 27. nóvember 2006 13:31
Dallas með níunda sigurinn í röð Dallas vann í nótt sinn níunda leik í röð í NBA deildinni þegar liðið skellti New Orleans á heimavelli sínum, en Utah Jazz tapaði loks eftir átta leikja sigurgöngu þegar liðið tapaði fyrir Golden State á útivelli. Körfubolti 26. nóvember 2006 14:24
Dallas og Utah með 8 sigra í röð Utah og Dallas eru án efa heitustu liðin í NBA deildinni um þessar mundir en í nótt unnu bæði lið sinn áttunda leik í röð í deildinni. Dallas lagði San Antonio á útivelli og Utah skellti LA Lakers og er enn með bestan árangur allra liða í deildinni. Körfubolti 25. nóvember 2006 13:59
Indiana - Cleveland í beinni í nótt Það verður mikið um dýrðir í NBA deildinni í nótt þar sem ekkert var leikið í gærkvöld vegna þakkagjörðarhátíðarinnar í Bandaríkjunum. Nokkrir mjög athyglisverðir leikir verða í nótt og NBA TV sjónvarpsstöðin á Fjölvarpinu sýnir leik Indiana og Cleveland beint klukkan eitt eftir miðnættið. Körfubolti 24. nóvember 2006 19:14
Sigurganga Utah Jazz heldur áfram Spútniklið Utah Jazz hélt áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í nótt þegar liðið skellti Sacramento á útivelli 110-101. Þetta var 11. sigur liðsins í fyrstu 12 leikjunum í vetur og er liðið öllum að óvörum í efsta sæti deildarinnar. Þetta var auk þess þriðji leikurinn í röð þar sem lið Utah vinnur upp 16 stiga forskot eða meira í síðari hálfleik. Körfubolti 23. nóvember 2006 13:48
LA Clippers - Seattle í beinni í nótt Leikur Los Angeles Clippers og Seattle Supersonics verður á dagskrá NBA TV sjónvarpsstöðvarinnar á Fjölvarpinu klukkan 3:30 í nótt. Lið Clippers heldur uppteknum hætti frá í fyrra og hefur byrjað leiktíðina mjög vel svo hætt er við því að Seattle eigi á brattann að sækja í Staples Center í nótt. Körfubolti 22. nóvember 2006 23:00
Koba Bryant skoraði 40 stig gegn Clippers Kobe Bryant, leikmaður LA Lakers í NBA deildinni, er nú óðum að finna fyrra form eftir hnéuppskurð í sumar. Hann skoraði 40 stig í 105-101 sigri Lakers á grönnum sínum í LA Clippers í nótt. Elton Brand skoraði 20 stig og hirti 15 fráköst fyrir Clippers og Corey Magette skoraði einnig 20 stig. Lakers hefur unnið 8 leiki og tapað aðeins 3. Körfubolti 22. nóvember 2006 13:28
Besta byrjun í sögu Utah Jazz Utah Jazz vann í nótt sjötta leik sinn í röð í NBA deildinni og hefur unnið 10 af fyrstu 11 leikjum sínum í upphafi leiktíðar, sem er félagsmet. Liðið skellti Toronto 101-96 á heimavelli í nótt og er í efsta sæti deildarinnar, en lenti þó 16 stigum undir á tímapunkti í síðari hálfleik rétt eins og í leiknum þar á undan. Körfubolti 21. nóvember 2006 13:57
Duncan afgreiddi Sacramento Tim Duncan lék sinn besta leik á tímabilinu þegar San Antonio vann þægilegan sigur á Sacramento í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Duncan skoraði 35 stig og hirti 14 fráköst í 108-99 sigri San Antonio. Körfubolti 20. nóvember 2006 13:10
Aðgerðin á Shaq gekk vel Tröllið Shaquille O´Neal gekkst undir aðgerð á hné í gær, sem gekk afar vel, að sögn lækna hans. Búist er við því að Shaq hefji endurhæfingu á hnénu strax í dag. Körfubolti 20. nóvember 2006 12:00
Arenas skoraði 45 stig í sigri á Cleveland Gilbert Arenas var sjóðandi heitur og skoraði 45 stig þegar lið hans Washington bar sigurorð af Cleveland í NBA-deildinni í nótt. Sigurganga Utah Jazz heldur áfram og í nótt lá Pheonix í valnum. Körfubolti 19. nóvember 2006 15:08
Utah heldur sínu striki Utah Jazz hélt áfram á sigurbraut sinni í NBA-deildinni og í nótt sigraði liðið Seattle á útivelli, 118-109. Utah er með besta vinningshlutfallið í deildinni; hefur unnið átta af níu leikjum sínum. Körfubolti 18. nóvember 2006 11:24
Shaquille O´Neal þarf í aðgerð NBA meistarar Miami Heat verða án miðherja síns Shaquille O´Neal næstu 4-6 vikurnar eftir að læknar liðsins tilkynntu í kvöld að hann þyrfti í uppskurð vegna hnémeiðsla. Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir meistarana, sem hafa ekki byrjað leiktíðina með neinum glæsibrag. Körfubolti 18. nóvember 2006 01:40
Cleveland - Minnesota í beinni í nótt Leikur Cleveland Cavaliers og Minnesota Timberwolves verður sýndur beint á NBA TV á Fjölvarpinu í kvöld og hefst klukkan hálf eitt eftir miðnætti. Cleveland er í efsta sæti Austurdeildarinnar og hefur farið ágætlega af stað, en Minnesota er í miklu basli í Vesturdeildinni og á von á erfiðum leik gegn LeBron James og félögum. Körfubolti 17. nóvember 2006 21:37
Webber ósáttur við hlutskipti sitt Framherjinn Chris Webber hjá Philadelphia 76ers hefur farið fram á fund með eiganda liðsins og lýst yfir óánægju sinni með það hvað hann fær lítið að spila. Webber skoraði aðeins 6 stig á 23 mínútum í síðasta leik með liði sínu. Körfubolti 17. nóvember 2006 15:51
Houston lagði Chicago Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Golden State vann góðan sigur á Sacramento og Houston skellti Chicago á heimavelli þrátt fyrir að glutra enn og aftur niður góðu forskoti í lokin. Körfubolti 17. nóvember 2006 13:48
Iverson greiðir fyrir útför látins stuðningsmanns Allen Iverson, leikmaður Philadelphia 76ers í NBA deildinni, hefur boðist til að greiða fyrir útför 22 ára gamals drengs frá Philadelphia sem lést í gær, þremur árum eftir að hann varð fyrir skotárás í borginni. Körfubolti 16. nóvember 2006 23:00
Golden State - Sacramento í beinni Aðeins tveir leikir fara fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Houston tekur á móti Chicago og þá eigast við Kaliforníuliðin Golden State Warriors og Sacramento Kings, en sá leikur verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni NBA TV á Fjölvarpinu og hefst klukkan 3:30 í nótt. Körfubolti 16. nóvember 2006 22:33
Kenyon Martin úr leik Framherjinn Kenyon Martin verður ekki meira með liði sínu Denver Nuggets á tímabilinu eftir að í ljós kom að hnémeiðsli hans voru mun alvarlegri en talið var í fyrstu. Martin fór í minniháttar uppskurð í gær sem áætlað var að héldi honum frá keppni í um tvo mánuði, en þá kom í ljós að meiðslin voru mun alvarlegri en talið var. Körfubolti 16. nóvember 2006 16:27
Charlotte lagði San Antonio Mjög óvænt úrslit urðu í NBA deildinni í nótt þegar lið Charlotte Bobcats vann annan sigur sinn á leiktíðinni á útivelli gegn San Antonio Spurs eftir framlengingu 95-92. Þetta var annað tap San Antonio á leiktíðinni og hafa bæði töpin komið á heimavelli liðsins. Tony Parker skoraði 25 stig fyrir San Antonio en nýliðinn Adam Morrison skoraði 27 fyrir Charlotte. Körfubolti 16. nóvember 2006 14:39
Orlando - Denver í beinni á miðnætti Leikur Orlando Magic og Denver Nuggets verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld. Hér er um að ræða mjög forvitnilegan leik fyrir margra hluta sakir, því Denver hefur ekki landað sigri í Orlando síðan í mars 1992. Körfubolti 15. nóvember 2006 19:34
Óvænt gengi Utah Jazz heldur áfram Utah Jazz er með besta árangur allra liða í NBA deildinni eftir að liðið lagði LA Clippers 112-90 á heimavelli sínum í nótt. Utah hefur unnið 7 leiki og tapað 1, en lið Clippers hafði unnið 5 leiki í röð áður en það lá í Salt Lake City í nótt. Körfubolti 15. nóvember 2006 14:15
Golden State - Toronto í beinni Leikur Golden State Warriors og Toronto Raptors verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í nótt klukkan 3:30. Golden State hefur byrjað ágætlega undir stjórn Don Nelson, en hjá Toronto er fjölmenn sveit Evrópubúa enn að slípa sig inn í NBA deildina. Körfubolti 14. nóvember 2006 21:15
Enn tapa New York og Boston Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og unnust þeir allir á útivöllum. Cleveland lagði New York í Madison Square Garden, Seattle vann óvæntan sigur á New Jersey og Orlando skellti Boston. Körfubolti 14. nóvember 2006 14:39
New York - Cleveland í beinni í nótt Leikur New York Knicks og Cleveland Cavaliers verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld klukkan hálf eitt eftir miðnætti. Mikil ólga er í herbúðum New York líkt og í fyrra og pressan mikil á Isiah Thomas þjálfara, en Cleveland hefur verið í vandræðum með lakari lið deildarinnar það sem af er leiktíðinni. Hægt er að nálgast dagskránna á NBA TV á heimasíðu Sýnar. Körfubolti 13. nóvember 2006 17:15
Fimmti sigur LA Clippers í röð LA Clippers vann í nótt fimmta leik sinn í röð eftir tap í fyrsta leiknum þegar liðið skellti New Orleans 92-76 á heimavelli sínum. Þetta var þriðja tap New Orleans í röð, en liðið vann fjóra fyrstu leiki sína í upphafi leiktíðar. Körfubolti 13. nóvember 2006 05:21
LA Lakers - Memphis í beinni Leikur LA Lakers og Memphis Grizzlies verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Digital Ísland í kvöld klukkan 2:30. Kobe Bryant er nú kominn á fullt með liði Lakers á ný eftir meiðsli, en hefur þó haft mjög hægt um sig í stigaskorun í síðustu leikjum. Körfubolti 12. nóvember 2006 21:47